Morgunblaðið - 30.11.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.11.2018, Blaðsíða 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2018 Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is FJÖLPÓSTUR SEM VIRKAR *könnun Zenter apríl 2016. 61% landsmanna lesa fjölpóst 70% kvenna lesa fjölpóst 58% neytenda taka eftir tilboðum á vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst* Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar Kristín Heimisdóttir, tannlæknir og lektor við tannlæknadeildHáskóla Íslands, á 50 ára afmæli í dag. Hún er tannréttinga-sérfræðingur og er með eigin stofu í Valhöll og hefur yfirum- sjón með tannréttingum í tannlæknanáminu. Hún var formaður Tann- réttingafélagsins 2006-2013 og formaður Tannlæknafélagsins 2012-2015. „Fyrir þremur árum kúventi ég í lífinu þegar við hjónin keyptum bóndabæinn Hjarðartún sem er í bakgarði Hvolsvallar og er stoltust af því í dag að vera smali. Ég fer á fjall á hverju hausti með Rangvell- ingum í Laufaleitir og fór úr þessu félagsmálastússi yfir í að vera hrossabóndi en við eigum um 60 hross. Það eru einungis tíu ár síðan ég eignaðist minn fyrsta hnakk svo ég er ekki alin upp í hesta- mennsku,“ segir Kristín aðspurð. Hún er þó ekki alveg hætt í félagsmálunum því hún er stjórnar- formaður Lýðheilsusjóðs og situr í stjórn Hollvinasamtaka MR og er í stjórn Nemendasambandsins sem heldur utan um júbílantaböll MR. „Ég er svo mikill MR-ingur. Við hjónin lifum sem sagt tvöföldu lífi, bú- um í bænum þegar við erum að vinna en erum alltaf í sveitinni þess á milli. Lífið er í sveitinni.“ Eiginmaður Kristínar er Bjarni Elvar Pétursson, prófessor og deildarforseti tannlæknadeildar HÍ. Börn þeirra eru Gréta Rut tannlæknanemi, Heimir kvikmyndagerðarmaður og Tryggvi nemi í Laugalækjarskóla. Kristín verður í faðmi fjölskyldunnar í dag en hún hélt upp á af- mælið í október með því að ferðast með vinkonum sínum. „Við sigld- um um Miðjarðarhafið og skoðuðum m.a. uppgröft í Pompeii og Her- kúlaneum á Ítalíu. Hestakonan Kristín að ríða fjörurnar á Snæfellsnesi á uppáhalds- hestinum sínum, Ófeigssyninum Kiljan. Er stoltust af því að vera smali Kristín Heimisdóttir er fimmtug í dag G uðmundur Jóelsson fæddist í Reykjavík 30.11. 1948 en ólst upp í Garði og Sandgerði. Hann varð gagnfræð- ingur frá Gaggó Aust 1965, lauk samvinnuskólaprófi frá Bifröst 1967, hóf nám í endurskoðun haust- ið 1969, hjá Geir Geirssyni, lögg. endurskoðanda, og hlaut löggild- ingu sem endurskoðandi vorið 1975. Guðmundur var skrifstofumaður hjá Olíufélaginu hf. 1967-68, starfs- maður Ríkisábyrgðasjóðs 1969, starfaði á endurskoðunarskrifstofu SÍS 1969-74 og vann hjá Bókhalds- þjónustunni Berg hf. á Egilsstöðum 1975. Guðmundur hóf rekstur eigin endurskoðunarstofu í október 1975 en hefur verið einn af eigendum að Bókun sf. endurskoðun frá 1977, sem allt til ársloka 2016 var til húsa í Hamraborg 1 í Kópavogi. Hann hefur síðan verið í samstarfi við BDO-endurskoðun í Skútuvogi 1e í Reykjavík. Guðmundur átti heima í Garði og Sandgerði til 1967, í Reykjavík 1967-74, á Egilsstöðum 1975 en hef- ur síðan búið í Kópavogi. Guðmundur æfði og keppti með knattspyrnufélaginu Reyni í Sand- gerði á yngri árum. Hann hefur verið virkur félagi í Félagi löggiltra endurskoðenda frá 1975, sat í stjórn félagsins 1982-84 og ritstýrði tímariti þess um skeið. Hann sat í sóknarnefnd Hjallakirkju í Kópa- vogi 1997-2007, þar af sem varafor- maður 2002-2007. Hann hefur frá árinu 2002 verið félagi í Krumma- klúbbnum, bridgeklúbbi „heldri bridgespilara“ sem stofnaður var árið 1964 og gegnir þar nú forystu- hlutverki sem „Stórkrummi“. Þá Guðmundur Jóelsson endurskoðandi – 70 ára Með konu og dætrum Guðmundur og Anna Margrét með dætrunum þremur, Aldísi, Erlu Dögg og Gunnhildi Ástu. Ferðagarpur og lífs- glaður baráttujaxl Gullmolarnir hans afa síns Þær Lilja Margrét og Klara Marie. Egilsstaðir Hafþór Ingi Sveinbjörnsson fæddist þann 16. apríl 2018 á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað. Foreldrar hans eru Þóra Birgit Jó- hannesdóttir og Svein- björn Hrafn Kristjáns- son og eldri systkini hans eru Heiðrún Bára, f. 2013, og Guðni Kristján, f. 2016. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.