Morgunblaðið - 04.12.2018, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 4. D E S E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 285. tölublað 106. árgangur
20 dagartil jóla
Jólasveinalitabókin er á
jolamjolk.is
FLYTJA FJÓR-
AR MISMUN-
ANDI MARÍUR
NÍU BÆKUR TILNEFNDAR
ANDSTÆÐUR OG
BLÆBRIGÐI NÁTTÚR-
UNNAR Í ÁRATUGI
FJÖRUVERÐLAUN Í ÞREMUR FLOKKUM 31 VATNIÐ Í NÁTTÚRU ÍSLANDS 12KASTANÍUJÓL 30
Stórvirkar vinnuvélar unnu við að
hreinsa helstu umferðaræðar
Akureyrar, þar á meðal Gilið, í
gær, en snjó hefur kyngt þar niður
að undanförnu. Snjódýpt á Akur-
eyri undanfarna daga hefur slegið
tvö mánaðamet. Í gærmorgun
mældist snjódýptin 105 sentimetr-
ar, sem er það mesta sem hefur
mælst þar í desember, að sögn
Trausta Jónssonar, veðurfræðings
á Veðurstofu Íslands. Snjódýptin
mældist næstmest dagana 7.-9.
desember 1965, fyrir 53 árum, og
þá mældist hún 100 sentimetrar.
Að morgni föstudagsins 30.
nóvember síðastliðinn mældist snjó-
dýptin á Akureyri 75 sentimetrar
og var það mesta snjódýpt sem þar
hefur mælst í nóvembermánuði.
Næst mest snjódýpt mældist þar 22.
og 23. nóvember árið 1972, en þá
var hún 70 sentimetrar.
Frost var um allt land í gær.
Mesti kuldinn var á Torfum í Eyja-
firði, en þar mældist frostið 19,4°C .
Veðurstofan spáir áframhaldandi
snjókomu eða éljum fyrir hádegi í
dag og tveggja til 18 stiga frosti.
Mestur verður kuldinn á norðan- og
austanverðu landinu. »10 Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Stefán Gunnar Sveinsson
Kristján H. Johannessen
Forsætisnefnd Alþingis samþykkti í
gær að taka Klausturmálið til athug-
unar vegna mögulegra brota á siða-
reglum fyrir alþingismenn, en átta
þingmenn höfðu sent nefndinni er-
indi vegna þess. Þá óskaði forsætis-
nefnd eftir því að ráðgefandi siða-
nefnd þingsins kæmi saman til þess
að undirbúa umfjöllun og álit um
málið, sem afhent yrði forsætisnefnd
sem fyrst.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
formaður siðanefndarinnar, sagði í
samtali við Morgunblaðið að nefndin
myndi fara yfir erindi forsætisnefnd-
ar, en gat ekki svarað því hversu
langan tíma vinna nefndarinnar
myndi taka. Í nefndinni sitja auk
Ástu Ragnheiðar þau Hafsteinn Þór
Hauksson, dósent við lagadeild Há-
skóla Íslands, og Salvör Nordal,
doktor í heimspeki og umboðsmaður
barna.
Alþingi kom saman í fyrsta sinn frá
því að málið kom upp í gær, og tóku
varamenn sæti á þingi í stað þeirra
Gunnars Braga Sveinssonar og
Bergþórs Ólasonar, þingmanna Mið-
flokksins, sem báðir eru farnir í
launalaust leyfi um ótilgreindan tíma
vegna málsins. Þá tilkynntu þeir Karl
Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson,
fyrrverandi þingmenn Flokks fólks-
ins, að þeir hygðust starfa saman sem
óháðir þingmenn, en þrjá þingmenn
þarf til þess að mynda nýjan þing-
flokk samkvæmt reglum þingsins.
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í
stjórnmálafræði, segir í samtali við
Morgunblaðið að ástandið sé án for-
dæma. Hann bendir á að álit siða-
nefndar sé einungis ráðgefandi og að
það sé þingmanna sjálfra að ákveða
hvort þeir segi af sér.
Klausturmálið
til siðanefndar
Forsætisnefnd samþykkir að taka málið til athugunar
Morgunblaðið/Eggert
Þingfundur Þingmenn voru ábúðarfullir við upphaf þingfundar í gær.
MBaðst afsökunar »4 og 6
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjórn munu leggja fram til-
lögu um að Gagnaveita Reykja-
víkur verði seld, en önnur umræða
um fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar fer fram í dag. Eyþór Arn-
alds, oddviti sjálfstæðismanna,
segir að með sölunni væri hægt að
minnka skuldir samstæðu borgar-
innar umtalsvert og bætir við að
Gagnaveitan hafi ekki skilað hagn-
aði en starfi engu að síður á sam-
keppnismarkaði í fjarskiptum.
Sala Gagnaveitunnar og lækkun
skulda væri því að mati Eyþórs
skynsamleg forgangsröðun á þess-
um tímapunkti. „Eins skiptis tekjur
af sölu byggingarréttar eru ekki í
hendi á næstu árum. Endurmat
eigna hefur síðustu árin skilað
borginni hagnaði upp á tugi millj-
arða. Ólíklegt er að sú þróun haldi
áfram,“ segir Eyþór. »2
Vilja selja
Gagnaveitu
Reykjavíkur
Morgunblaðið/Eggert
Áætlun Frá fundi borgarstjórnar.
Vetrarríki
á Norður-
landi
Snjódýpt síðustu daga á Akureyri sló met fyrir bæði nóvember- og desembermánuð
Bílaumferðin á hringveginum
jókst umtalsvert í seinasta mánuði
miðað við sama mánuð fyrir ári.
Umferðin jókst um 9,1% í nýliðnum
mánuði skv. mælingum Vega-
gerðarinnar. Þetta er meiri umferð
en reiknað hafði verið með og er nú
útlit fyrir að umferðin á hringveg-
inum aukist um 4,5% á árinu öllu.
Mest jókst umferðin um Norður-
land eða um 13,2% en minnst um
Suðurland eða um 6,9%.
Meiri bílaumferð
en spáð hafði verið