Morgunblaðið - 04.12.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2018
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
AIR OPTIX® COLORS
Linsur í lit
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Tilkynnt var um niðurstöður verðlaunasamkeppni um hönnun
viðbyggingar við Stjórnarráðshúsið, sem og skipulag svo-
nefnds Stjórnarráðsreits í Safnahúsinu í gær. Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra afhenti þar verðlaun fyrir bestu til-
lögurnar og verða þær sem lentu í fyrsta sæti hafðar til
hliðsjónar við hönnunina á viðbyggingunni og skipulag
Stjórnarráðsreitsins. Þá opnaði Katrín sýningu á öllum tillög-
unum sem bárust.
Þeir Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason
hjá KURTOGPÍ urðu hlutskarpastir í samkeppninni um við-
byggingu við Stjórnarráðshúsið, ásamt samstarfsmönnum
sínum Garðari Snæbjörnssyni, Jóhönnu Høeg Sigurðardóttur
og Ólafi Baldvini Jónssyni. Í umsögn dómnefndar segir meðal
annars að tillaga þeirra einkennist af „skilningi á þörfum
starfseminnar“ og að niðurstaðan sé „einföld en fáguð um-
gjörð um starfsemi forsætisráðuneytisins“.
Í samkeppninni um skipulag Stjórnarráðsreitsins hlutu
T.ark Arkitektar og SP(R)INT Studio fyrstu verðlaun, en þau
Karl Kvaran, Ivon Stefán Cilia, Sahar Ghaderi, og Sara
Mortazavi, arkitekt skipa hönnunarteymið. Í umsögn dóm-
nefndar segir meðal annars að höfundum tillögunnar hafi
„tekist vel að ná því markmiði sínu að framtíðarmynd
Stjórnarráðsreitsins verði öruggt, aðgengilegt, fjölbreytt,
skjólsælt og manneskjulegt umhverfi“.
Tilkynnt um niðurstöður samkeppni um hönnun á viðbyggingu við Stjórnarráðið og skipulag Stjórnarráðsreits
Tillögurnar hafðar til hliðsjónar við uppbyggingu
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Fjárhagsáætlun og fimm ára áætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árin 2019-
2023 verður tekin til annarrar um-
ræðu á fundi borgarstjórnar í dag.
Fulltrúar minnihlutans hafa lagt til
margvíslegar breytingatillögur á
áætluninni, og vilja fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks meðal annars að
Gagnaveita Reykjavíkur verði seld.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæð-
isflokksins, segir sölu á nettenging-
um hvorki hluta af grunnrekstri
Reykjavíkurborgar né hefðbundn-
um grunnrekstri Orkuveitu Reykja-
víkur en hann leggur til að söluand-
virðið verði nýtt til að lækka skuldir
og fjármagnskostnað í samstæðu
Reykjavíkurborgar. Eyþór segir að
tugir milljarða séu bundnir í Gagna-
veitunni sem sé dótturfélag Orku-
veitu Reykjavíkur. Það hafi vaxið
með hlutafjárframlögum frá Orku-
veitunni og áætlar Eyþór að fjárfest-
ingar frá upphafi verkefnisins nemi
um 30 milljörðum króna að núvirði.
Milljörðum veitt í veituna
Borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti í október 2012 að selja allt að
49% hlut í félaginu og var þá haldið
opnu að selja meira síðar. Eyþór
segir að þrátt fyrir það hafi áfram
verið fjárfest í verkefninu fyrir
meira en 10 milljarða króna á þeim
sex árum sem liðin eru síðan þá.
„Nær tuttugu ár eru síðan Orkuveit-
an fór að fjárfesta í nettengingum og
síðan þá hafa öflugir aðilar í fjar-
skiptum búið til samkeppnismarkað.
Það er því engin þörf fyrir aðkomu
Reykjavíkurborgar að þróun neyt-
endamarkaðar í fjarskiptum og eng-
in þörf fyrir að Orkuveita Reykjavík-
ur fóstri áfram þetta þróunar-
verkefni,“ segir Eyþór.
Þá gagnrýnir hann að fimm ára
áætlun borgarinnar geri, að hans
mati, ráð fyrir óhóflegri skuldsetn-
ingu, á sama tíma og tekjustofnar
borgarinnar eru í botni. „Sú leið að
losa landfestar á Gagnaveitu
Reykjavíkur og láta hana standa á
eigin fótum myndi minnka áhættu í
rekstri borgarinnar, lækka vaxta-
gjöld og stuðla að bættu sam-
keppnisumhverfi á fjarskiptamark-
aði,“ segir Eyþór.
Leggja til að Gagnaveitan verði seld
Síðari umræða um fjárhagsáætlun borgarinnar í dag
Dagur segir tillögu um að leggja niður SEA órökstudda
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra sagði í sérstöku ávarpi sem
birt var með tillögunum í gær að
stefnt hefði verið að því lengi að
reisa viðbyggingu við gamla
Stjórnarráðshúsið og koma allri
starfsemi forsætisráðuneytis fyrir á
einum stað. Bætti hún við að slíkt
fyrirkomulag myndi vera „sann-
kölluð bylting fyrir ráðuneytið og
starfsfólk þess sem líður vissulega
fyrir það að vera dreift á milli húsa“.
Forsætisráðherra sagði einnig að
lögð hefði verið rík áhersla á að
horft yrði til hugmyndafræði sjálf-
bærrar þróunar og vistvænnar
hönnunar, og að meðal annars hefði
verið horft til orkunýtni, efnisvals
og heilsuverndar við hönnunina og
áhersla lögð á að neikvæð um-
hverfisáhrif yrðu lágmörkuð í öllu
ferlinu. „Þetta mun hafa áhrif á vel-
líðan þeirra sem munu starfa í bygg-
ingunum en það er jafnframt von
mín að þær framsæknu hugmyndir
sem bárust geti orðið til fyrir-
myndar í öðrum framkvæmdum hér
á landi í framtíðinni, ekki síst að því
er varðar sjálfbærni og vistvæna
hönnun og verði jafnframt lyftistöng
fyrir þróun byggingarlistar hér á
landi,“ segir Katrín.
Bylting fyrir ráðuneytið
Lengi stefnt að
viðbyggingu við
Stjórnarráðið
Morgunblaðið/Hari
Viðbygging Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra afhenti verðlaunin í gær.
Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, tilkynnti á
facebook-síðu sinni í gær að hún
hygðist leggja til að stjórnkerfi
borgarinnar yrði einfaldað með því
að skrifstofa eigna og atvinnuþró-
unar í Reykjavík, SEA, yrði lögð
niður og verkefni hennar færð til
skipulagssviðs. Skrifstofan hefur
haft yfirumsjón með ýmsum verk-
efnum á vegum borgarinnar, þar á
meðal bragganum í Nauthólsvík og
Mathöllinni við Hlemm. Segir Hild-
ur að þó að verkefnin séu góð eigi
þau að vera á hendi einkaaðila en
ekki borgarinnar og bætir hún við
að frjálsleg „ráðstöfun skattfjár til
uppbyggingar kaffihúsa og veit-
ingastaða hafi bitnað á grunnþjón-
ustu borgarinnar“.
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri sagði í samtali við Morgun-
blaðið að erfitt væri að taka tillögu
Hildar alvarlega, þar sem hún væri
sett fram án nokkurs haldbærs rök-
stuðnings. „Skrifstofa eigna- og at-
vinnuþróunar vinnur mikilvægt
starf að fjölmörgum verkefnum og
mörg þeirra eru tekjuskapandi fyr-
ir borgina. Skrifstofan á meðal ann-
ars góðan hlut í því að Reykjavíkur-
borg skilaði átta milljarða afgangi
á fyrstu níu mánuðum ársins. Það
má ekki síst rekja til aukinna tekna
af byggingarétti en eitt megin-
verkefni skrifstofunnar er að vinna
að margvíslegri framþróun borgar-
innar og tekjuöflun í gegnum sölu
lóða og byggingarréttar,“ sagði
Dagur.
Vill leggja SEA niður