Morgunblaðið - 04.12.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2018
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Laserlyfting
Þéttir slappa húð á andlit og hálsi
Árangur af Laserlyftingu er sambærilegur við árangur af andlitslyftingu
með skurðaðgerð en það sem laserlyfting hefur fram yfir andlitslyftingu
er að einstaklingur getur farið í vinnu beint eftir meðferð.
15% afsláttur af gjafabréfum hjá Húðfegrun
Bylting ímeðferð á línum, hrukkumog slappri húð.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú skalt varast óþarfa eyðslu í dag.
Láttu ekki áhyggjur halda fyrir þér vöku,
þær gufa upp ef þú veitir þeim ekki athygli.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að finna þér lausar stundir
til þess að eyða í friði og ró. Reyndu að
skipta þér ekki of mikið af öðrum. Gættu
tungu þinnar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er mikið slúðrað í kringum
þig og ætlast er til að þú takir þátt í leikn-
um. Ef þú mögulega getur væri mikið
gæfuspor að greiða skuld að fullu áður en
vikan er á enda.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Einhver þér eldri gæti gefið þér
góð ráð í dag. Einhver hefur þig fyrir rangri
sök og þér sárnar það. Hið rétta kemur þó
fljótt í ljós.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gættu þess að sýna ekki of hörð við-
brögð við orðum eða athöfnum annarra.
Þú gerir stormandi lukku í jólaboðunum í
ár.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það sem þér finnst erfiðast að gefa
upp á bátinn er þörfin fyrir að hafa alltaf
rétt fyrir þér. Gættu þess að taka heilsuna
ekki sem sjálfsagðan hlut.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert heimakær og ferðast helst ekki
nema nauðsyn krefji. Gerðu hvaðeina sem
þú getur til þess að víkka sjóndeildarhring-
inn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sýndu varfærni á öllum svið-
um, ekki síst í peningamálunum, því það
tekur oft skamma stund að gera afdrifarík
mistök á því sviði.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Taktu einn hlut fyrir í einu því
ef þú ert með of mörg járn í eldinum fer
allt úr böndunum. Láttu rómantísku
draumana rætast.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Stundum er besta ákvörðunin
sú að gera ekki neitt, lofa hlutunum bara
að þróast í rólegheitum. Einhver er eins og
grár köttur í kringum þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Visst verkefni mun hanga yfir
þér mánuðum saman ef þú brettir ekki upp
ermarnar. Mundu að vinir þínir hafa áhrif á
hugsanir þínar og þannig á framtíð þína.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Velgengni þín að undanförnu veldur
þér gleði en einhverjir virðast öfunda þig.
Reyndu að mæta stundvíslega þar sem þín
er vænst.
Fyrir helgi sendi Helgi R.Einarsson mér limru um
„Vandamál líðandi stundar“:
Vandamál finnast hér víða,
vammlausir hjá þeim þó sníða.
Samt gleyma víst sér,
sýnist nú mér
sumir, er detta þeir í’ða.
Guðmundur Arnfinnsson víkur
að því sama á Boðnarmiði –„Afsök-
unarbeiðni þingmanns“:
Oft ég bulla, elskan mín,
orða sullu kokkur,
ég var fullur, ég er svín,
ég er drullusokkur.
Ég er dóni, ég er flón,
ég er róni mesti,
yfirsjónar iðrast tjón,
illum þjóna lesti.
Og á heimasíðu sinni segir
Hjálmar Freysteinsson:
Þau héldu fámennan fund
og fjölluðu drykklanga stund
um kvenfólksins alla
kosti og galla
í klaustri við templarasund.
– Og heldur síðan áfram: „Þetta
er nú svo ógeðslegt mál að það er
varla hægt að yrkja um það.“
Halldór Þorsteinsson kom við „Á
barnum“:
Á barnum þeir brennivín drukku
þá býsna mörg fúkyrðin hrukku
úr mannanna munnum
meiðyrða brunnum
neðar og neðar þar sukku.
Jón Gissurarson vekur athygli á
að „oft er í holti heyrandi nær og
DV og Stundin ekki langt undan“:
Orða skulum vanda val
virðum bæði sprund og hal.
Illsku bundið óráðs hjal
aldrei framar viðhaft skal.
Málæði er mörgum skætt
mannorð getur niður tætt
aukið sár er seint mun grætt
sundurlyndi af sér fætt.
Hallmundur Kristinsson hélt
þræðinum:
Víst eru mörgum völdin kær.
Veruleikinn er snúinn.
Oft er í holti heyrandi nær
herlegum tækjum búinn.
Gunnar J. Straumland var með á
nótunum:
Tungukorða temja skal,
taum og skorður finna.
Gaspur forðast, göfga tal,
gæta orða sinna.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af vandamálum
og afsökunarbeiðni
„Hann eyÐir meiri tíma meÐ vinunum
sínum en meÐ mér.” „Aftur aÐ teikniborÐINU, vitringur!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar lífið tekur nýja
stefnu.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HEFURÐU EKKERT
BETRA AÐ GERA!
ÞAÐ GLEÐUR MIG AÐ SEGJA
ÞÉR AÐ ÞAÐ HÖFUM VIÐ EKKI
HENDUR
Á LOFT!
KLAP
PKL
APP KLA
PP
ÞEIR
MISSKILDU
ÞETTA!
USSS! HONUM ER
ALVEG SAMA!
VEI
VEI!
HJÓNABANDS-
RÁÐGJÖF
Veturinn virðist loks vera kominneftir að hafa látið bíða nokkuð
eftir sér. Kunningjar Víkverja og
venslamenn hafa þurft að vaða snjó
upp að klofi í höfuðstað Norðurlands
síðustu daga og nú er útlit fyrir snjó-
komu sunnan heiða sömuleiðis. Vík-
verji tekur því sem að höndum ber
og reynir að kippa sér ekki mikið
upp við þetta. Þó skal það nú viður-
kennt að helst af öllu vildi Víkverji
spóla með öllu yfir þessa árstíð og
losna við kuldann, snjóinn og
slabbið.
x x x
Hins vegar getur Víkverji ekkibeint barmað sér yfir hlutskipti
sínu árið 2018. Stóru áhyggjuefnin
snúa að því að skafa af bílnum og
moka frá húsinu. Þessu var aðeins
öðruvísi farið hér á árum áður eins
og lesa má í ágætri bók Hallgríms
Helgasonar, Sextíu kíló af sólskini,
sem nú liggur á náttborði Víkverja.
Bókin sú gerist fyrir norðan í upp-
hafi tuttugustu aldarinnar og þar
segir meðal annars af glímum lands-
manna við veðrið fyrr á tíð. Frásagn-
ir af því þegar heilu fjölskyldurnar
hurfu með snjóflóðum gera áhyggj-
ur af því að verða blautur í fæturna á
leið inn í Bónus fremur kjánalegar.
x x x
Bók Hallgríms er raunar fyrir-takslesning. Víkverji hefur lokið
við um 250 síður og telur óhætt að
mæla með henni. Og þannig virðist
einnig um fleiri bækur í jólabóka-
flóðinu þetta árið. Jafnvel mætti full-
yrða að óvenju margar forvitnilegar
bækur sé þar að finna í ár. Víkverji
er í það minnsta ákveðinn í að kom-
ast yfir bók Þórunnar Valdimars-
dóttur um Skúla fógeta og bók Ólafs
Gunnarssonar, Listamannalaun.
Venju samkvæmt verður gluggað í
Íslenska knattspyrnu eftir Víði Sig-
urðsson, en sú bók hefur komið út á
hverju ári í næstum fjóra áratugi.
Eins er saga landsliðsfyrirliðans Ar-
ons Einars Gunnarssonar spennandi
kostur enda maðurinn forvitnilegur
og virðist tilbúinn að gefa af sér í
bókinni. Sú er ekki alltaf raunin í
bókum sem þessari. Og svo eru það
blessaðir krimmarnir; Arnaldur,
Yrsa, Ragnar og þau öll. vikverji@m-
bl.is
Víkverji
Umfram allt hafið brennandi kær-
leika hvert til annars því að kærleikur
hylur fjölda synda.
(Fyrra Pétursbréf 4.8)