Morgunblaðið - 08.12.2018, Page 19
UNICEF-dagurinn
verður haldinn í
verslun Lindex í
Smáralind í dag
frá kl 13-16.
Margt verður
um að vera;
jólasveinninn
mætir og geta
gestir og gangandi fengið mynd af
sér með sveinka, hægt verður að
lita jólakort í föndurhorni og
krakka-karíókí verður í boði með
þeim Þórunni Antoníu og Dóru Júl-
íu.
Einnig mun starfsfólk UNICEF
bjóða börnum og fullorðnum upp á
fræðslu og sýna hvernig hjálpar-
gögn keypt á Íslandi geta nýst
börnum í neyð. Samstarf UNICEF
og Lindex hefur skilað um 25 millj-
ónum kr. til barna um allan heim.
Dagur UNICEF í
Lindex í Smáralind
Skoðið LAXDAL.is/yfirhafnir
Skipholti 29b • S. 551 4422
MAX & MOI
fágaðar og flottar
úlpukápur
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra við-
burða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
16 dagar til jóla
Ljúfri jólastemningu er heitið í
skógræktinni í Heiðmörk um
helgina. Jólamarkaðurinn í Elliða-
vatnsbænum er opinn í dag og á
morgun, frá kl. 12-17. Tónlistarfólk
og rithöfundar mæta á svæðið og í
Rjóðrinu verður kveiktur varð-
eldur. Nánari dagskrá er á face-
booksíðu Jólamarkaðarins. Einnig
er hægt að velja sér jólatré í Jóla-
skóginum á Hólmsheiði.
Morgunblaðið/Eggert
Heiðmörk Fjör á Jólamarkaðnum.
Jólastemning
í Heiðmörkinni
Allt um sjávarútveg
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Fyrirtæki sem sérhæfir sig í innflutningi, samsetningu og sölu á
heimsþekktum og þrautreyndum vörum sem notaðar eru í
útbyggingar, svalalokanir, glugga, rennihurðir og fleira. Velta 250
mkr. og mikil verkefni framundan.
• Ungt og hratt vaxandi veitingastaður (2 staðir) þar sem áhersla er
lögð á hollan skyndibita í hádeginu og á kvöldin. Veltan í ár áætluð
280 mkr. og EBITDA 20 mkr. Miklir möguleikar á að fjölga stöðum
undir vörumerkinu sem hlotið hefur góðar viðtökur.
• Lítið framleiðslufyrirtæki sem framleiðir sérhæfða vöru fyrir heimili og
fyrirtæki. Velta um 40 mkr. nokkuð stöðug. Afkoma jöfn og góð.
• Arðsamt fyrirtæki með langa reynslu sem flytur inn og selur
véltæknibúnað aðallega tengdum sjávarútvegi, fiskeldi, en einnig
öðrum iðnaði. Velta undanfarin ár hefur verið á bilinu 150-200 mkr.
og EBITDA 25-40 mkr.
• Rótgróið iðnfyrtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á vörum úr plasti.
Ársvelta á bilinu 250-300 mkr.
• Ein þekktasta hárvöruheildverslun landsins með mjög þekkt merki
fyrir fagaðila. Góð velta og afkoma.
• Fyrirtæki sem sérhæfir sig í greiðslulausnum á afmörkuðu en þekktu
sviði leitar eftir auknu hlutafé. Spennandi fjárfestingakostur með
miklum möguleikum á arðsemi, gangi áætlanir eftir.
• Mjög gott fyrirtæki sem sérhæfir sig í lagningu á þakdúk sem það
flytur sjálft inn. Veltan á bilinu 150-200 mkr. og afkoman mjög góð.
Eigendur tilbúnir að vinna áfram eins og þörf krefur.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur
saman, sýnir stuðning og samhug
eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is
90 ára afmæli
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
JÓLASÖFNUN
Jólaskógurinn í Hamrahlíð í Mos-
fellsbæ, við Vesturlandsveginn,
verður opnaður á morgun, sunnu-
dag, kl. 13. Fjölmargt verður á dag-
skránni. Bæjarstjórinn mun saga
fyrsta tréð, eldsmiður sýnir listir
sínar, harmónikkuleikur mun óma
um skóginn auk þess sem skólakór
Varmárskóla mun syngja vel valin
lög. Farið verður í fjársjóðsleit í
skóginum með börnunum og svo
ætla Þorri og Þura að mæta á stað-
inn. Hægt verður að gæða sér á
skógarkaffi, lummum og heitu
súkkulaði. Jólasveinninn mun mæta
í skóginn og halda uppi stuðinu.
Síðast en ekki síst verður hægt að
ganga um skóginn og velja jólatré.
Opnun jólaskógar í Hamrahlíð
Litla hafpulsan svokallaða, yfir
tveggja metra há stytta í Reykjavík-
urtjörn sem hefur vakið töluverða
athygli fyrir athyglisverða lögun
sína þar sem hún þykir minna á kyn-
færi karlmanns, hefur orðið fyrir
skemmdum og má segja að hún hafi
misst höfuðið.
Ekkert er vitað á þessari stundu
um orsökina en svo virðist sem
skemmdarverk hafi verið unnin á
pulsunni. Einnig gæti verið að veð-
urofsi í nótt hafi orðið þess valdandi
að turn styttunnar hefur brotnað af
sökkli hennar.
Verkið er eftir listakonuna Stein-
unni Gunnlaugsdóttur og er styttan
hennar framlag til 100 ára afmælis
fullveldis Íslands. Steinunn sagði í
samtali við mbl.is að upphaflega
hefði hún ekki ætlað verkinu að líkj-
ast karlmannskynfærum.
„Þetta er pulsa sem situr eins og
hafmeyjan á lítilli brauðbollu úti í
tjörninni, er bísperrt og ánægð með
sig, en svo er hún líka lítil hafpulsa í
tjörn, handalaus og einhver kynja-
vera sem veit ekki hversu öflug hún
er. Svo er hún pínu óhugnanleg,“
sagði Steinunn í samtali við mbl.is í
lok október.
Steinunn segir að óneitanlega sé
einnig einhver kynusli í pulsunni.
„Þetta er bæði hafmeyja, sem er
yfirleitt kvenkyns, en líka typpi, þar
sem það er mjög erfitt að vinna með
pulsuform án þess að það verði
typpi. En mér fannst það ekkert
slæmt,“ sagði hún einnig.
Skúlptúrinn er hluti af Cycle--
listahátíðinni sem fór fram í fjórða
sinn í október undir yfirskriftinni
Þjóð meðal þjóða og með sýningunni
lauk tveggja ára rannsókn á fullveldi
Íslands í samhengi við nýlendusög-
una, að sögn Guðnýjar Guðmunds-
dóttur, listræns stjórnanda hátíð-
arinnar. Samkvæmt upplýsingum
frá Reykjavíkurborg stóð til að Litla
hafpulsan myndi standa í tjörninni
fram í desember. thor@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Litla hafpulsan Verkið er eftir Steinunni Gunnlaugsdóttur og er framlag hennar til 100 ára afmælis fullveldis Ís-
lands. Óvíst er um orsök þess að pulsan er nú höfuðlaus, en til stóð að hún myndi standa í Tjörninni fram í desember.
Litla hafpulsan höfuðlaus
Skemmdarvargar eða óveður unnu spjöll á pulsunni