Morgunblaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ráðast þarf í umfangsmiklar fram- kvæmdir við Reykjavíkurflugvöll svo hann uppfylli alþjóðlegar kröfur. Þetta kemur fram í minnisblaði Isavia til Alþingis vegna fimm ára samgönguáætlunar, 2019-2023. Þar segir að til að uppfylla evrópskar reglugerðir um flugvelli þurfi m.a. að setja upp aðflugsljós á öllum varaflugvöllunum þremur fyrir millilandaflug, í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum, og mið- línuljós á Reykja- víkurflugvelli fyrir árslok 2021. Það kosti 400-500 milljónir. Guðjón Helga- son, upplýsinga- fulltrúi Isavia, segir áætlað að hlutur Reykja- víkur í þessu efni sé 52%, Akur- eyrar 28% og Egilsstaða 20%. Fram kemur í minnisblaðinu að áætlað sé að endurnýja malbik tveggja flugbrauta á Reykjavíkur- flugvelli árin 2022 og 2023. Núver- andi malbik hafi verið lagt árin 2002 og 2003 en reiknað sé með að ending malbiks á flugbrautum sé 15-20 ár. Guðjón segir að endurnýja þurfi malbikað slitlag á 15-20 ára fresti. Endurnýja þarf flughlöðin Þá segir í umsögn Isavia að skemmdir séu komnar fram á flug- hlöðum á Reykjavíkurflugvelli. Með staðbundnum holuviðgerðum undan- farin ár hafi yfirlögn verið frestað. Spurður hvort það standi til að endurnýja flughlöðin og ráðast í uppbyggingu sem dugir í lengri tíma segir Guðjón að „til lengri tíma litið [sé] ódýrara að endurnýja stór mal- bikuð svæði í einu, en að fara í holu- viðgerðir á hverju ári“. „Undanfarin ár hefur ekki fengist fjármagn til að endurnýja malbik á flughlöðum. Því hefur aðeins allra nauðsynlegasta viðhaldi verið sinnt með holufyllingum. Ef halda á starf- semi áfram á flughlöðunum er nauð- synlegt á einhverjum tímapunkti, ekki í fjarlægri framtíð, að endur- nýja flughlöð á Reykjavíkurflugvelli. Á meðan ekki fæst fjármagn í end- urnýjun eða uppbyggingu verður ekki ráðist í slíkar framkvæmdir. Meðan flugvöllurinn er í rekstri þarf að tryggja rekstraröryggi. Til- lögur Isavia um viðhaldsfram- kvæmdir miða að því að tryggja áfram rekstraröryggi og öryggi í umferð flugvéla á flugvöllum.“ Flughlöð á Reykjavíkurflugvelli standast ekki reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi á Ís- landi. Guðjón segir áætlað að kostn- aður við úrbætur á þessu sviði sé á bilinu 150-500 milljónir króna. Mikil viðhaldsþörf hefur safnast upp á flugvöllum landsins Flugvellir utan Keflavíkur VOPNAFJÖRÐUR 2022 Endurnýjun á veður- og fjarskiptabúnaði. REYKJAVÍK 2020 Flugbrautir yfirsprautaðar með asfaltblöndu. 2021 Malbikun flug- brautaraxla. 2022-2023 Endurnýjun á malbiki beggja flugbrauta. 2022 Endurnýjun á þaki slökkvistöðar. Leiðsögu- og ljósabúnaður: 2019 Viðhald á fjar- lægðarmæli (DME-stefnu- vita) og veðurbúnaði. 2020 Viðhald á Localizer- stefnuvita*, veðurbúnaði og flugbrautarljósum. 2021 Viðhald á veður- búnaði. 2022 Viðhald á rafkerfi flugvallarins. Úrbætur til að uppfylla reglugerðir um alþjóða- flugvelli: 2019 Mælingar og gerð hindranakorts (flugkort sem sýnir hæðarhindranir í nágrenni vallarins). 2021 Uppsetning aðflugsljósa að þremur flugbrautum. AKUREYRI 2019 Flugbrautir yfirsprautaðar með asfaltblöndu. 2022 Staðbundnar viðhaldsfram- kvæmdir á malbiki. 2020 Lagning yfirlagsmalbiks á allt flughlaðið og staðbundnar viðgerðir. 2019 Stækkun eða breytingar á flugstöð vegna fjölgunar erlendra farþega og alþjóðaflugs. 2020 Viðhald á fiugstöðvar- byggingu utanhúss, múrviðgerðir og málningarvinna. Leiðsögu- og ljósabúnaður: 2019 Blindflugsbúnaður (ILS**) fyrir aðflug úr norðri að flugbraut 19. 2019 Viðhald á DME-stefnuvita og veðurbúnaði. 2020 Viðhald á ILS-aðflugsbún- aði** á suðurenda flugbrautar og endurnýjun á veðurbúnaði. 2022 Endurnýjun á ILS-aðflugsbún- aði** fyrir flugbraut 01. 2023 Endurnýjun stefnuvita og annars aðflugsbúnaðar. Úrbætur til að uppfylla reglugerðir um alþjóðaflugvelli: 2018-2019 Mælingar og gerð hindranakorts. 2021 Uppsetning aðflugsljósa að flugbraut 19. EGILSSTAÐIR 2021 Malbikun flugbrautar. Malbiksviðgerðir á flughlaði og áframhaldandi viðhald á þaki flugstöðvar. Leiðsögu- og ljósabúnaður: 2019 Endurnýjun á fjarskipta- stjórnkerfi og Localizer-stefnu- vita*. 2020 Endurnýjun á veðurbúnaði. 2022 Endurnýjun á fjarskipta- búnaði og flugbrautarljósum. Úrbætur til að uppfylla reglugerðir um alþjóðaflugvelli: 2018-2019 Mælingar og gerð hindranakorts. 2021 Uppsetning aðflugsljósa að flugbraut 22. VESTMANNAEYJAR 2020-2021 Endurnýjun slitlags á flug- brautum með klæðingu. 2021 Endurnýjun á þaki vélageymslu. Leiðsögu- og ljósabúnaður: 2019 Skipta út stýribúnaði fyrir Ijósabúnað. 2020 Endurnýjun á ljósabúnaði. HÚSAVÍK Undanfarin ár hefur slitlag flugbrautar og búnaður verið endur- nýjaður og verið gert við flugstöðina. 2021 Áframhaldandi viðhald á flugstöð. GRÍMSEY 2022 Endurnýjun á slitlagi flugbrautar. Leiðsögu- og ljósabúnaður: 2021 Endurnýjun á Ijósum og rafkerfi til stýringar á Ijósabúnaði. ÞINGEYRI Ákveða þarf hvort fara eigi í endurnýjun á flugbraut eða skil- greina hana sem lendingarstað með malarslitlagi. Einnig að taka niður flugbrautarljós og setja upp flugbrautarmerkingar í staðinn. BÍLDUDALUR 2019 Endurnýjun slitlags á flug- braut og flughlaði með klæðingu. Leiðsögu- og ljósabúnaður: 2019 Endurnýjun á Ijósum og rafkerfi til stýringar á Ijósabúnaði. ÍSAFJÖRÐUR 2019 Lagning á klæðn- ingaryfirlagi á flugbraut og flughlaði. 2019 Endurnýjun á klæðningu á vélageymslu. Leiðsögu- og ljósabúnaður: 2019 Endurnýjun á flugleiðsöguvita. 2020 Endurnýjun á fjarskiptabúnaði. ÞÓRSHÖFN 2020 Viðhald á slitlagi flugbrautar. Leiðsögu- og ljósabúnaður: 2022 Endurnýjun á flugbrautarljósum. 2023 Endurnýjun á veðurbúnaði. Alþjóðaflugvellir Aðrir áætlanaflugvellir (flugvellir í grunnneti) Heimild: Áætlun Isavia/Magnea Huld Ingólfsdóttir/úr minnisblaði til Alþingis. HÖFN 2023 Endurnýjun á slitlagi flugbrautar. 2021 Viðhald á flugstöð. Leiðsögu- og ljósabúnaður: 2019 Endurnýjun á Ijósabúnaði og rafkerfi til stýringar á þeim. GJÖGUR 2019 Endur nýjun á veðurbúnaði. 2020 Endur - nýjun á fjarskipta- búnaði. **ILS (Instrument Landing System) stendur fyrir nákvæmnisaðflug. Búnaður á flugvellinum sendir flugvél í aðflugi upplýsingar um staðsetningu flug- vélarinnar miðað við flugbrautina (lárétt og lóðrétt). *Localizer er hluti af búnaði flugvallarins fyrir aðflug. Hann sendir upplýsingar um lárétta stað- setningu flugvélar í aðflugi. Byggja þarf upp Reykjavíkurflugvöll  Isavia segir kominn tíma á malbikun brauta, uppbyggingu flughlaða og varnir gegn olíumengun Guðjón Helgason Fram kemur í minnisblaði Isavia að vegna uppsetningar aðflugsljósa að flugbrautum á Reykjavíkur- flugvelli þurfi mögulega að reisa undirstöður fyrir ljósin út í sjó og yfir nýjan veg sem fyrirhugaður er sunnan flugbrautar 01. Aðflugsljós að flugbraut 31 þyrfti að reisa inn á bílastæði við Háskólann í Reykja- vík. Isavia vinni að því að kanna hvort leyfilegt verði að reisa styttri aðflugsljós að þessum flug- brautum. Þau séu ekki á deili- skipulagi þessara svæða. Guðjón Helgason segir ekki til teikningar af þessum búnaði á þessum svæðum. Samkvæmt reglugerð eigi ljósin að ná 420 metra aftan við þröskuld flug- brautar. Það eigi við þær báðar. Fram kemur í minnisblaðinu að á næsta ári þurfi að huga að stækkun eða breytingum á flug- stöð Akureyrar vegna fjölgunar er- lendra farþega. Erfitt sé að taka á móti fjölda ferðamanna í flugstöð- inni eins og hún sé nú, hluti ferða- manna sé í innanlandsflugi og hluti á ferðalagi til eða frá landinu. Spurður hversu mikið þurfi að stækka flugstöðina til að hún mæti þessum kröfum segir Guðjón að hanna þurfi flugstöðvar miðað við mesta mögulega fjölda sem gæti verið á Akureyri, í kringum 500 manns. Miðað við viðmið Isavia á Keflavíkurflugvelli myndi þurfa tæplega 4.000 fermetra til að rúma þann fjölda. Núverandi flugstöð á Akureyri sé um 1.400 fermetrar og rúmi um 150 farþega. Þá segir að vegna nýrrar Evrópureglugerðar, EASA ASR Rules, þurfi að setja upp aðflugs- ljós að flugbraut 19 á Akureyrar- flugvelli. Fyrir núverandi flugbraut án nákvæmnisaðflugs þurfi að reisa 420 metra langa ljósalínu, með 60 metra millibili á milli ljósa. Fyrir flugbraut með nákvæmnis- aðflug þurfi að reisa 900 metra langa aðflugsljósalínu, með 30 metra millibili á milli ljósa. Reisa þurfi aðflugsljósin út í sjó að flug- braut 19. Utan við 500 metra frá flugbrautarenda dýpki sjór hratt. Mögulega þarf ljós í sjónum við Reykjavíkurflugvöll TILLÖGUR ISAVIA AÐ ÚRBÓTUM Morgunblaðið/RAX Horft úr lofti Isavia vill tryggja öryggi Reykjavíkurflugvallar. Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.