Morgunblaðið - 08.12.2018, Síða 27

Morgunblaðið - 08.12.2018, Síða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018 Vetrarsól Á þessum árstíma er blessuð sólin lágt á lofti en hún lætur sig ekki muna um að mála sín meistaraverk fyrir okkur mannfólkið. Hér má sjá hana baða Keili hlýrri birtu sinni. Eggert Mannkynið er óðum að hverfa úr sveit inn í borgir. Með því slitna náttúrulegar rætur við umhverfið utan þeirra sem áður fyrr hjálpaði til skilnings á tilverunni. Einn- ig hérlendis er þessi þróun í fullum gangi, þótt ef til vill gangi hún hægar en í þéttbýlli löndum. Við slíkar aðstæður er góð fræðsla um umhverfið í skólum, á náttúrusöfnum og í fjölmiðlum mikilvægari en áð- ur. Því er það fagnaðarefni að eftir langt hlé og afturför í málefnum náttúrusafns á höfuðborgarsvæðinu skuli nú vera komin fjölbreytt sýning um íslenska náttúru í Perlunni á Öskjuhlíð í samstarfi margra að- ila. Fyrsti vísirinn varð sýnilegur með ís- helli og jöklasýningu fyrir rösku ári, en nú á fullveldisdaginn 1. desember birtist mönn- um framhald sem ekki verður jafnað við annað en hástökk í sýningarhaldi af þessu tagi hérlendis. Þar kemur til fjölþætt marg- miðlun ásamt textaskýringum, lifandi og sérhönnuð sýnishorn, steindir og berg- myndanir, að ógleymdu stjörnuveri af full- komnustu gerð. Hér verður stiklað á örfá- um atriðum úr langri og oft dapurlegri sögu, uns þáttaskil urðu fyrir um þremur árum. Frá áhugastarfi HÍN í daufa ríkisforsjá Hið íslenska náttúrufræðifélag sem stofn- að var árið 1889 hóf þá þegar að koma á fót náttúrufræðisafni sem árið 1908 fékk inni í sýningarsal í Safnahúsinu við Hverfisgötu og var þar til ársins 1947. Þá gaf félagið ríkinu safnið til eignar gegn loforði um að byggt yrði yfir það á lóð Há- skólans. Við það var ekki staðið en á árunum 1967-2008 hélt Náttúrufræðistofnun Íslands uppi sýningu náttúrugripa í leiguhúsnæði við Hlemm, sem nýttist ekki síst skólum. Um 1990 starfaði stjórnskipuð nefnd sem lagði m.a. til að byggt yrði yfir sýningarhald sérstakt Nátt- úruhús í eigu ríkisins, Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar á lóð sem enn er merkt þessu verkefni í Vatnsmýrinni. Fjár- veiting til þessa máls birtist í stjórnarfrumvarpi árið 1992, en þá hljópst annar stjórnarflokkur þess tíma undan merkjum og ekkert marktækt gerð- ist næstu 15 árin. Árið 2007 voru sett lög um Náttúruminjasafn Íslands og yfir það var skipaður forstjóri sem fékk hins vegar enga áheyrn hjá menntamálaráðuneytinu næstu fimm árin. Í ársbyrjun 2012 sendi Ríkisendurskoðun frá sér harðorða skýrslu um málefni safnsins, sem þá var enn nafnið tómt. Þrátt fyrir umræðu á Alþingi 3. febr- úar 2012 og fyrirheit þáverandi stjórnvalda um aðgerðir sat við það sama af opinberri hálfu fram á árið 2017. „Perluvinir“ buðu fram aðstoð Í framhaldi af skýrslu Ríkisendurskoð- unar kom í febrúar 2012 saman fimm manna áhugahópur sem kallaði sig Perlu- vini. Í honum voru Hjörleifur Stefánsson arkitekt, Þórunn S. Þorgrímsdóttir sýning- arhönnuður, Árni Hjartarson, formaður HÍN, Álfheiður Ingadóttir, ritstjóri Nátt- úrufræðingsins, og undirritaður. Höfðu tvö þau fyrstnefndu skrifað grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar 2012 þar sem þau lögðu til að komið yrði upp á vegum Náttúrminja- safnsins sýningu í Perlunni, en Orkuveita Reykjavíkur hafði þá nýlega boðað sölu hússins til einkaaðila. Davíð Oddsson, rit- stjóri Morgunblaðsins og frumkvöðull að byggingu Perlunnar, tók mjög jákvætt und- ir safnhugmyndina (Mbl. 10. febr. 2012) og Reykjavíkurborg opnaði fyrir leigu á Perl- unni í þessu skyni og eyrnamerkti upphæð í verkefnið. Perluvinir sendu Katrínu Jak- obsdóttur, þáverandi menntamálaráðherra, erindi 15. febr. 2012 þar sem sagði m.a.: „Við höfum í huga að húsnæðið, að breyttu breytanda, þurfi að standast kröfur um nú- tímalega vísindamiðlun og að sýningar þar geti endurspeglað gagnvirk áhrif manns og náttúru.“ Ríkisstjórnin sem tók við 2013 að- hafðist hins vegar lengi vel ekkert í málinu þrátt fyrir eftirrekstur Perluvina, borgar- stjórnar og Hilmars J. Malmquist, forstjóra safnsins. Perla norðursins ehf. verður til Haustið 2015 brugðu Perluvinir á það ráð að breikka hópinn, efndu í einkahlutafélag til að ýta á eftir aðgerðum og fengu til liðs við sig um 80 manns. Félagið leitaði til Finnboga Jónssonar um stjórnarforystu sem hann hefur gegnt síðan af alkunnri atorku og tók síðar einnig við stjórnarfor- mennsku í Perlu norðursins ehf. Það gerðist í sama mund haustið 2015 að fram komu fjárhagslega öflugir aðilar, sem áhuga höfðu á að fjárfesta í sýningum í Perlunni og höfðu hafið undirbúning í því skyni. For- ystu fyrir þeim hafði Gunnar Gunnarsson lögmaður, nú forstjóri Perlu norðursins. Varð sammæli með þeim og Perluvinum um tilboð til Reykjavíkurborgar um leigu á Perlunni til langs tíma undir náttúrusýn- ingu. Var það samþykkt einróma í borgar- ráði 3. mars 2016. Hófst þá þegar undirbún- ingur að sýningu og breytingu á húsnæðinu í samvinnu við Ingimar Sveinsson, arkitekt Perlunnar. Jafnframt kynnti Perla norðurs- ins ehf. menntamálaráðuneytinu tilboð um að Náttúruminjasafn Íslands fengi endur- gjaldslaust sýningaraðstöðu til a.m.k. 15 ára í sérstöku 340 m2 rými í Perlunni og að auki að kosta fyrir safnið laun tveggja safnkenn- ara, m.a. til að taka á móti skólanemendum. Kristján Þór Júlíusson, þáverandi mennta- málaráðherra, sýndi þessu strax áhuga og samningur var að lokum undirritaður með blessun Lilju Alfreðsdóttur menntamála- ráðherra 30. ágúst sl. Alþingi samþykkti jafnframt að leggja safninu til nauðsynlegt fjármagn til uppsetningar á sýningarþætti, sem ber heitið Vatnið í náttúru Íslands. Ég hygg að sjaldan hafi tekist að leysa úr jafn flóknu og fjölþættu verkefni á svo stuttum tíma, og það þrátt fyrir alvarlegan eldsvoða á svæðinu sl. vor. Stór áfangi á langri leið Af fjölmörgu markverðu sem gerðist í tengslum við fullveldisafmælið um liðna helgi mun náttúrusýningarnar í Perlunni framvegis bera hátt. Með þeim hefur tekist í samvinnu einkaaðila, áhugafólks og stjórn- valda að bæta svo um munar úr áratuga vanrækslu. Ákvæði í sáttmála núverandi ríkisstjórnar vekur jafnframt vonir um að áfram verði sótt fram, því að þar er gert ráð fyrir framtíðarhönnun fyrir öflugt Nátt- úruminjasafn Íslands við hlið annarra höf- uðsafna. Reynslan úr Perlunni á Öskjuhlíð mun væntanlega auðvelda mönnum að fóta sig á því stórbrotna verkefni. Eftir Hjörleif Guttormsson »Ég hygg að sjaldan hafi tekist að leysa úr jafn flóknu og fjölþættu verkefni á svo stuttum tíma … Hjörleifur Guttormsson Sýningarnar í Perlunni – Lykill að innsýn í íslenska náttúru Höfundur er náttúrufræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.