Morgunblaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018
Vetrarsól Á þessum árstíma er blessuð sólin lágt á lofti en hún lætur sig ekki muna um að mála sín meistaraverk fyrir okkur mannfólkið. Hér má sjá hana baða Keili hlýrri birtu sinni.
Eggert
Mannkynið er óðum að
hverfa úr sveit inn í borgir.
Með því slitna náttúrulegar
rætur við umhverfið utan
þeirra sem áður fyrr hjálpaði
til skilnings á tilverunni. Einn-
ig hérlendis er þessi þróun í
fullum gangi, þótt ef til vill
gangi hún hægar en í þéttbýlli
löndum. Við slíkar aðstæður er
góð fræðsla um umhverfið í
skólum, á náttúrusöfnum og í
fjölmiðlum mikilvægari en áð-
ur. Því er það fagnaðarefni að eftir langt
hlé og afturför í málefnum náttúrusafns á
höfuðborgarsvæðinu skuli nú vera komin
fjölbreytt sýning um íslenska náttúru í
Perlunni á Öskjuhlíð í samstarfi margra að-
ila. Fyrsti vísirinn varð sýnilegur með ís-
helli og jöklasýningu fyrir rösku ári, en nú
á fullveldisdaginn 1. desember birtist mönn-
um framhald sem ekki verður jafnað við
annað en hástökk í sýningarhaldi af þessu
tagi hérlendis. Þar kemur til fjölþætt marg-
miðlun ásamt textaskýringum, lifandi og
sérhönnuð sýnishorn, steindir og berg-
myndanir, að ógleymdu stjörnuveri af full-
komnustu gerð. Hér verður stiklað á örfá-
um atriðum úr langri og oft dapurlegri
sögu, uns þáttaskil urðu fyrir um þremur
árum.
Frá áhugastarfi HÍN
í daufa ríkisforsjá
Hið íslenska náttúrufræðifélag sem stofn-
að var árið 1889 hóf þá þegar að koma á fót
náttúrufræðisafni sem árið 1908 fékk inni í
sýningarsal í Safnahúsinu við Hverfisgötu
og var þar til ársins 1947. Þá gaf félagið
ríkinu safnið til eignar gegn loforði um að
byggt yrði yfir það á lóð Há-
skólans. Við það var ekki staðið
en á árunum 1967-2008 hélt
Náttúrufræðistofnun Íslands
uppi sýningu náttúrugripa í
leiguhúsnæði við Hlemm, sem
nýttist ekki síst skólum. Um
1990 starfaði stjórnskipuð nefnd
sem lagði m.a. til að byggt yrði
yfir sýningarhald sérstakt Nátt-
úruhús í eigu ríkisins, Háskóla
Íslands og Reykjavíkurborgar á
lóð sem enn er merkt þessu
verkefni í Vatnsmýrinni. Fjár-
veiting til þessa máls birtist í
stjórnarfrumvarpi árið 1992, en
þá hljópst annar stjórnarflokkur þess tíma
undan merkjum og ekkert marktækt gerð-
ist næstu 15 árin. Árið 2007 voru sett lög
um Náttúruminjasafn Íslands og yfir það
var skipaður forstjóri sem fékk hins vegar
enga áheyrn hjá menntamálaráðuneytinu
næstu fimm árin. Í ársbyrjun 2012 sendi
Ríkisendurskoðun frá sér harðorða skýrslu
um málefni safnsins, sem þá var enn nafnið
tómt. Þrátt fyrir umræðu á Alþingi 3. febr-
úar 2012 og fyrirheit þáverandi stjórnvalda
um aðgerðir sat við það sama af opinberri
hálfu fram á árið 2017.
„Perluvinir“ buðu fram aðstoð
Í framhaldi af skýrslu Ríkisendurskoð-
unar kom í febrúar 2012 saman fimm
manna áhugahópur sem kallaði sig Perlu-
vini. Í honum voru Hjörleifur Stefánsson
arkitekt, Þórunn S. Þorgrímsdóttir sýning-
arhönnuður, Árni Hjartarson, formaður
HÍN, Álfheiður Ingadóttir, ritstjóri Nátt-
úrufræðingsins, og undirritaður. Höfðu tvö
þau fyrstnefndu skrifað grein í Fréttablaðið
þann 4. febrúar 2012 þar sem þau lögðu til
að komið yrði upp á vegum Náttúrminja-
safnsins sýningu í Perlunni, en Orkuveita
Reykjavíkur hafði þá nýlega boðað sölu
hússins til einkaaðila. Davíð Oddsson, rit-
stjóri Morgunblaðsins og frumkvöðull að
byggingu Perlunnar, tók mjög jákvætt und-
ir safnhugmyndina (Mbl. 10. febr. 2012) og
Reykjavíkurborg opnaði fyrir leigu á Perl-
unni í þessu skyni og eyrnamerkti upphæð í
verkefnið. Perluvinir sendu Katrínu Jak-
obsdóttur, þáverandi menntamálaráðherra,
erindi 15. febr. 2012 þar sem sagði m.a.:
„Við höfum í huga að húsnæðið, að breyttu
breytanda, þurfi að standast kröfur um nú-
tímalega vísindamiðlun og að sýningar þar
geti endurspeglað gagnvirk áhrif manns og
náttúru.“ Ríkisstjórnin sem tók við 2013 að-
hafðist hins vegar lengi vel ekkert í málinu
þrátt fyrir eftirrekstur Perluvina, borgar-
stjórnar og Hilmars J. Malmquist, forstjóra
safnsins.
Perla norðursins ehf. verður til
Haustið 2015 brugðu Perluvinir á það ráð
að breikka hópinn, efndu í einkahlutafélag
til að ýta á eftir aðgerðum og fengu til liðs
við sig um 80 manns. Félagið leitaði til
Finnboga Jónssonar um stjórnarforystu
sem hann hefur gegnt síðan af alkunnri
atorku og tók síðar einnig við stjórnarfor-
mennsku í Perlu norðursins ehf. Það gerðist
í sama mund haustið 2015 að fram komu
fjárhagslega öflugir aðilar, sem áhuga höfðu
á að fjárfesta í sýningum í Perlunni og
höfðu hafið undirbúning í því skyni. For-
ystu fyrir þeim hafði Gunnar Gunnarsson
lögmaður, nú forstjóri Perlu norðursins.
Varð sammæli með þeim og Perluvinum um
tilboð til Reykjavíkurborgar um leigu á
Perlunni til langs tíma undir náttúrusýn-
ingu. Var það samþykkt einróma í borgar-
ráði 3. mars 2016. Hófst þá þegar undirbún-
ingur að sýningu og breytingu á húsnæðinu
í samvinnu við Ingimar Sveinsson, arkitekt
Perlunnar. Jafnframt kynnti Perla norðurs-
ins ehf. menntamálaráðuneytinu tilboð um
að Náttúruminjasafn Íslands fengi endur-
gjaldslaust sýningaraðstöðu til a.m.k. 15 ára
í sérstöku 340 m2 rými í Perlunni og að auki
að kosta fyrir safnið laun tveggja safnkenn-
ara, m.a. til að taka á móti skólanemendum.
Kristján Þór Júlíusson, þáverandi mennta-
málaráðherra, sýndi þessu strax áhuga og
samningur var að lokum undirritaður með
blessun Lilju Alfreðsdóttur menntamála-
ráðherra 30. ágúst sl. Alþingi samþykkti
jafnframt að leggja safninu til nauðsynlegt
fjármagn til uppsetningar á sýningarþætti,
sem ber heitið Vatnið í náttúru Íslands. Ég
hygg að sjaldan hafi tekist að leysa úr jafn
flóknu og fjölþættu verkefni á svo stuttum
tíma, og það þrátt fyrir alvarlegan eldsvoða
á svæðinu sl. vor.
Stór áfangi á langri leið
Af fjölmörgu markverðu sem gerðist í
tengslum við fullveldisafmælið um liðna
helgi mun náttúrusýningarnar í Perlunni
framvegis bera hátt. Með þeim hefur tekist
í samvinnu einkaaðila, áhugafólks og stjórn-
valda að bæta svo um munar úr áratuga
vanrækslu. Ákvæði í sáttmála núverandi
ríkisstjórnar vekur jafnframt vonir um að
áfram verði sótt fram, því að þar er gert
ráð fyrir framtíðarhönnun fyrir öflugt Nátt-
úruminjasafn Íslands við hlið annarra höf-
uðsafna. Reynslan úr Perlunni á Öskjuhlíð
mun væntanlega auðvelda mönnum að fóta
sig á því stórbrotna verkefni.
Eftir Hjörleif
Guttormsson »Ég hygg að sjaldan hafi
tekist að leysa úr jafn
flóknu og fjölþættu verkefni
á svo stuttum tíma …
Hjörleifur
Guttormsson
Sýningarnar í Perlunni –
Lykill að innsýn í íslenska náttúru
Höfundur er náttúrufræðingur.