Morgunblaðið - 08.12.2018, Qupperneq 43
DÆGRADVÖL 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú stendur frammi fyrir ráðgátu sem
þú þarft að beita öllum þínum hæfileikum til
þess að finna lausnina á. Þótt þér finnist
margt á móti þér skaltu varast að bregðast of
harkalega við.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert snillingur en þér þykir samt ekki
ýkja þægilegt þegar aðrir taka eftir því. Vertu
viðbúinn því að komast að ýmsu óvæntu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gleymdu vonlausum málefnum
heimsins og gerðu eitthvað sem þú getur
klárað í dag. Þetta er góður dagur til að setja
fram langtímaáætlun.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Skemmtileg tækifæri berast upp í
hendurnar á þér og þú átt umfram allt að
leyfa sköpunarkraftinum að njóta sín. Láttu
ekkert standa í veginum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það þarf stundum ekki löng kynni til
þess að verða fyrir miklum áhrifum af annarri
persónu. Láttu ekki draga þig inn í þrætur
eða samningaviðræður.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gættu þess að láta ekki vinaböndin
trosna, heldur legðu þig fram um að rækta
þá, sem þér eru kærir. Láttu ekkert verða til
að æsa þig upp.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að leysa ákveðið mál heima fyrir
og það þolir enga bið svo þú verður hreinlega
að láta það ganga fyrir öllu öðru. Hnýttu
lausa enda.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Óvænt tækifæri berst upp í
hendurnar á þér og nú hefur þú enga afsökun
fyrir því að nýta þér það ekki. Hlustaðu vand-
lega á það sem nánir vinir hafa að segja þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér finnst eins og einhver sé að
leggja stein í götu þína. Líttu á þetta sem
tækifæri til sjálfskoðunar og til að íhuga hluti
sem þú lítur yfirleitt framhjá.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Taktu það ekki óstinnt upp þótt
aðrir séu með spurningar um tilgang þinn og
starfsaðferðir. Nýttu þér það til þess að átta
þig á því hvað þú vilt til tilbreytingar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vinir eiga sinn þátt í því að blása
lífi í hugmyndir þínar. Vertu viss um það.
Hafðu auga með öllum smáatriðum, hvort
sem þér finnast þau skipta einhverju máli,
eða ekki.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Taktu frumkvæðið og bættu aðstæður
í núverandi vinnu eða fyrsta skrefið í þá átt
að skipta um starfsvettvang. Þú hefur mikið
til þíns máls og fólk hlustar á þig.
Víkverji heillaðist á sínum tíma afbókunum um galdradrenginn
Harry Potter. Þegar bækurnar komu
út átti hann börn á þeim aldri að upp-
lagt var að lesa bækurnar fyrir þau
þannig að hann hafði afbragðsafsök-
un fyrir því að leggjast í þessar bók-
menntir. Víkverji minnist þess að
þegar fyrsta bókin kom út leyndist
hún í pakka undir jólatré og að kvöldi
aðfangadags hófst lestur fyrir svefn-
inn. Börnin sofnuðu samstundis, en
Víkverji lagði bókina ekki frá sér fyrr
en á síðustu síðu.
x x x
Þegar leið á bókaflokkinn varspennan orðin svo mikil að ekki
var þolinmæði til að bíða eftir að bæk-
urnar kæmu út á íslensku. Lét Vík-
verji þá tilleiðast og glímdi við að
þýða þær beint úr ensku. Fyrir Vík-
verja var þetta frábær æfing og
merkilega lítið barst af kvörtunum.
Þetta rifjaðist upp fyrir Víkverja
þegar hann í vikunni heimsótti á ný
undraheim J.K. Rowling, höfundar
bókanna um Harry Potter.
x x x
Myndin Furðuskepnur: GlæpirGrindelwalds er nú sýnd í bíó.
Harry Potter kemur þar vissulega
ekki fyrir enda gerist myndin nokkru
áður en hann kemur til sögunnar.
Engu að síður er þar ýmislegt kunn-
uglegt úr bókunum um Harry Potter
og hafði Víkverji gaman af að vera
dembt á ný í heim galdra og furðu-
vera. Eins og venjulega í sögum
Rowling er mikið í húfi, en húmorinn
er aldrei langt undan. Ekki skemmdi
fyrir að þarna troða upp þrír íslenskir
leikarar, Ólafur Darri Ólafsson, Ingv-
ar E. Sigurðsson og Álfrún Gísladótt-
ir. Vel af sér vikið.
x x x
Víkverji hefur áður haft á hornumsér að kvikmyndahúsin skuli
ekki þýða nöfn mynda nema í undan-
tekningartilvikum. Á kvikmyndasíð-
unni í Morgunblaðinu sést að heiti
eru aðeins þýdd ef um er að ræða
barnamyndir (þó ekki alltaf) eða
myndir frá löndum utan hins ensku-
mælandi heims. Víkverji tekur einnig
eftir að íslensk heiti íslenskra mynda
eru ekki þýdd á ensku, heldur fá að
halda sér. Það er vel. vikverji@mbl.is
Víkverji
Og þetta er vitnisburðurinn: Guð hef-
ur gefið okkur eilíft líf og þetta líf er í
syni hans.
(Fyrsta Jóhannesarbréf 5.11)
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is
Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
Glæsilegar
jólagjafir
Undirföt
Náttföt
Náttkjólar
Sloppar
Opið alla
daga til jóla
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Þetta veðuráhlaup er.
Oft það dauða ber með sér.
Krakkaormur í það fer.
Ástarkennd í brjósti þér.
„Lausnin varð til með morg-
unkaffinu,“ hjá Helga R. Einars-
syni, „og nú fær hún vængi“!:
Ástarkennd og voða veldur,
veggja- finnst þar -krot,
veðuráhlaup aukin heldur.
Eru þetta skot.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Skot er nafn á hreti hér.
Hel oft skotið ber með sér.
Krakki í skammaskotið fer.
Skot er ást í brjósti þér.
Þá er limra:
Í tófuleit Skarphéðinn skytta
og Skjöldólfur fyllibytta
skolla fundu,
skothvellir drundu,
og Skjöldólfi tókst að hitta.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Nú er úti regn og rok,
raftar brotna og fjúka,
vísnagátu í vikulok
við mér tókst að ljúka:
Þetta er háttur þinn og minn.
Þar að auki báturinn.
Flutning sumir fá með því.
Fastir sama margir í.
Tómas Guðmundsson skrifar rit-
dóm í Helgafell um Ljóðmæli Páls
Ólafssonar. Þar segir: „Orðkynngi
hans er sjaldnast hávær og jafnvel
beittustu skammavísur hans verða
minnisstæðari fyrir hið skáldlega
rúmtak þeirra en fyrir níðið sjálft,
þótt hnitmiðað sé:
Fyrir lygina sem þú laugst á mig,
Loðmfirðingarógur,
hrykki ei til að hýða þig
Hallormsstaðaskógur.“
Ingólfur Ómar Ármannsson yrk-
ir um veðrið:
Ergja lyndi illar spár
úti vindar gjalla.
Úr himinlindum hrynja tár
hvín í tindum fjalla.
Og í lokin eftir Magnús Teits-
son:
Stóri Jónas býr á Borg,
bólginn upp af feiti,
laus við alla synd og sorg,
– svona að mestu leyti.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Skotin geiga oftar en ekki
Í klípu
„SKO, NÚ ER NÓG KOMIÐ!
ERU ÞETTA ÞAKKIRNAR SEM ÉG FÆ FYRIR
AÐ SLEPPA YKKUR VIÐ SÍÐDEGISLÚRINN? ”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VASKURINN VAR STÍFLAÐUR.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að telja niður dagana
að brúðkaups deginum.
ÉG BRAUT
LAMPA Í DAG
ÉG BRAUT TVÆR SKÁLAR
OG BLÓMAVASA
FRÁBÆRT! VIÐ ERUM MJÖG
STOLT AF ÞVÍ AÐ
VERA KETTIR
ÉG HEYRI RADDIR Í
HÖFÐINU Á MÉR!
HEFURÐU SÉÐ
ÁSTÆÐU TIL
ÞESS AÐ HITTA
LÆKNINN?
NEI! ÉG HEYRI BARA RADDIR, ÉG SÉ EKKI
OFSJÓNIR!