Morgunblaðið - 08.12.2018, Side 49
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég kynntist Joseph CosmoMuscat fyrst er hann varmeðlimur í hinni ógurlegu
Celestine, en hún fór mikinn við
endaðan fyrsta áratug þessarar
aldar. Þar áður hafði hann spilað
með harðkjarnasveitinni Brothers
Majere. Ég reit mikið um Celest-
ine á sínum
tíma, enda ærið
tilefni, hljóm-
sveitin spilaði
mulningsrokk af
slíku offorsi að
manni leið helst
eins og skrið-
dreki væri að
keyra yfir mann. Yndislegt! Ég sá,
fann og vissi að Joseph, sem lék á
gítar þar, væri tónlistarmaður og
hann myndi sinna henni á einn eða
annan hátt, hvort sem Celestine
væri til eða ekki. Mér hlýnaði því
um hjartaræturnar er ég sá hann
og félaga hans í Seint, Daníel
Oddsson, leika á afmælishátíð
Norræna hússins í sumar (Dagný
Silva tilheyrir bandinu einnig, sem
hefur verið að þróast úr eins-
mannsbandi í hljómsveit í gegnum
árin). Joseph söng sínar heims-
endastemmur af miklu öryggi og
listfengi, „Depeche Mode á sýru“
Heimur á heljarþröm
Kuldi? Seint hóf feril sinn í vélrænu kuldapoppi en bjartara viðhorf til
veraldarinnar liggur til grundvallar sköpuninni í dag.
hugsaði ég. Heimsendaleg en smá
súrrealísk stemning yfir (David
Lynch) en maður fann líka fyrir
áhrifavöldum þeim sem Joseph
hefur nefnt. Nine Inch Nails, Kill-
ing Joke, Burial, Massive Attack
(og þá einkum Mezzanine). Þeir
félagar gerðu vel í því að móta og
mynda eigin stíl upp úr þessu öllu
saman, og á sviði var þetta að
virka.
Fyrsta plata Seint, Saman,
kom út 2015 (sex laga stuttskífa)
og í fyrra kom breiðskífan Post
Pop/The Last Day With Us út.
Nýjasta platan, The World is Not
Enough, kom svo út í sumar og
forláta vínyll var að berast glóð-
volgur úr pressu (hann liggur
hérna í tuttugu sentimetra fjar-
lægð, þar sem ég skrifa). Á nýj-
ustu plötunni er bjartara yfir,
styttra í melódíur og eitthvað sem
kalla mætti von rennur á milli
hljóðrásanna. Svo virðist sem ein-
hvers konar persónulegur þroski
sé að hafa áhrif á tónsmíðarnar,
eitthvað sem Joseph hefur gengist
við.
Í viðtali við Fréttablaðið sagði
hann m.a.: „Einlægnin er nýi töff-
araskapurinn að mínu mati,“ segir
Joseph. „Mannkynið er að færast
meira í áttina að skynsemi og
kærleika og fólk hefur opnari hug.
Maður er bara að reyna að finna
hið góða í sjálfum sér jafnt sem
öllum öðrum. Ég sé tónlistina sem
framlengingu á þeirri hugsjón.“
Saga þessarar plötu er bundin
í mikla sorg, en góður vinur Jos-
ephs, Gói (Ingólfur Bjarni Krist-
insson) svipti sig lífi árið 2017. Í
viðtali við Grapevine segir Joseph:
„Hvað tónlistina varðar, þá kom
bara að ákveðnum vatnaskilum
hjá mér. Ég hætti að einblína á
þetta neikvæða og fór að einbeita
mér að vexti og bata, að græða
sár og reyna að umfaðma hið góða
og jákvæða. Þessi viðhorfsbreyt-
ing fór eðlilega inn í tónlistina, og
sú orka hafði áhrif á hvernig ég
samdi nýja efnið. Þegar vinur
minn féll frá, var ég að vinna að
plötunni, og þá gerðist þetta.“
Pistilritari hefur verið að
skrifa dálítið um þessa vakningu
hjá nýrri kynslóð, sjá t.d. Auði,
þar sem það er talinn styrkur, en
ekki veikleiki, að opna sig og leyfa
sér að vera viðkvæmur. Opna á
þessa náttúrulegu næmni sem við
höfum öll.
Viðtalið í Fréttablaðinu, sem
ég vísaði til hérna fyrr, er hreint
út sagt magnað þar sem Joseph
talar af yfirvegun og kærleika um
menn og málefni og er mjög svo
greinilega gömul sál. Þar segir
hann m.a. og ég geri það að loka-
orðunum hér: „Við verðum að
hlusta á hvert annað og taka mark
á því ef fólki líður illa,“ segir
hann. „Ég mæli sterklega með að
fólk elski sjálft sig og fari vel með
sig. Þá fyrst geturðu haft jákvæð
áhrif á aðra í kringum þig og þar
af leiðandi hjálpað öðrum að yf-
irstíga erfiðleika sína ... Bara það
að heilsa, brosa og spyrja hvernig
fólk hefur það getur breytt öllu.“
» Á nýjustu plötunnier bjartara yfir,
styttra í melódíur og
eitthvað sem kalla
mætti von rennur
á milli hljóðrásanna.
Seint er raftónlistar-
sveit sem var sett á
laggirnar árið 2014 af
Joseph Cosmo Muscat.
Nýjasta verk sveitar-
innar, The World is
Not Enough, kom út
stafrænt í sumar og var
að koma út á vínylformi
í þessari viku.
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018
Kvikmyndin
Mortal Engines
sem Hera Hilm-
arsdóttir fer með
eitt af aðalhlut-
verkunum í, var
frumsýnd í vik-
unni og hafa við-
tökur gagnrýn-
enda verið bæði
jákvæðar og nei-
kvæðar. Á vefsíðunni Metacritic
sem tekur saman dóma hinna ýmsu
gagnrýnenda, hlýtur kvikmyndin
meðaltalseinkunnina 47 af 100
mögulegum og á sambærilegri vef-
síðu, Rotten Tomatoes, hlýtur hún
meðaltalseinkunnina 40 af 100.
Notendur vefjarins Internet Movie
Database eru hins vegar öllu já-
kvæðari og gefa myndinni að með-
altali einkunnina 7 af 10.
Leikstjóri myndarinnar er
Christian Rivers en Peter Jackson
framleiðir hana.
Fær blendnar við-
tökur gagnrýnenda
Hera Hilmarsdóttir
Aðventuhátíð
Bergmáls verður
haldin í Háteigs-
kirkju á morgun,
sunnudag, kl. 15.
Boðið verður upp
á tónlistarflutn-
ing og hugvekju
sem sr. Sveinn
Andrésson, sókn-
arprestur á Sól-
heimum, sér um.
Bergmál er líknar- og vinafélag
krabbameinssjúkra og langveikra,
sem rekur hvíldarheimili, Berg-
heima, á Sólheimum. Allir vinir og
velunnarar sem vilja næðis njóta
eru hjartanlega velkomnir og að-
gangur er ókeypis.
Aðventuhátíð í
Háteigskirkju
Háteigskirkja
Tónlistarmaðurinn Jón Þór Birgisson, eða Jónsi eins og
hann er kallaður, er tilnefndur til bandarísku Golden
Globe verðlaunanna fyrir lagið „Revelation“ sem hann
samdi með Troye Sivan fyrir kvikmyndina Boy Erased.
Jónsi og Sivan sömdu einnig textann með Brett McLaug-
lin. Af öðrum lögum sem hljóta tilnefningu má nefna
„Shallow“ eftir Lady Gaga úr A Star is Born.
Hvað aðrar tilnefningar í flokki kvikmynda varðar þá
hlýtur kvikmyndin Vice flestar, sex talsins.
Þrjár kvikmyndir hljóta fimm tilnefningar hver: A
Star Is Born, The Favourite og Green Book. Dagblaðið
Guardian vekur athygli á því í frétt sinni um tilnefning-
arnar að nokkrar kvikmyndir sem búast var við að fengju tilnefningar hafi
ekki fengið þær, m.a. Widows og Sorry to Bother You. Þá er einnig vakin
athygli á því að þrjár kvikmyndir af þeim fimm sem tilnefndar eru sem
besta dramamyndin séu eftir þeldökka leikstjóra og með þeldökkum leik-
urum í meirihluta.
Í sjónvarpsdeildinni eru Bretar sterkir og hlutu dramaþættir BBC, A
Very English Scandal, þrjár tilnefningar. Af öðrum tilnefningum má nefna
að Benedict Cumberbatch er tilefnndur fyrir leik sinn í Patrick Melrose og
Julia Roberts fyrir dramaþættina Homecoming.
Jónsi tilnefndur til Golden Globe verðlauna
Jón Þór Birgisson,
Kendrick Lamar
hlýtur flestar til-
nefningar til
Grammy-tónlist-
arverðlaunanna
bandarísku, sem
veitt verða 10.
febrúar á næsta
ári, fyrir tónlist
sína við ofur-
hetjumyndina
Black Panther. Þá eru konur aldrei
þessu vant áberandi í aðalverð-
launaflokkunum fjórum en kynja-
halli hefur oftar en ekki einkennt
verðlaunin og vakti sérstaka at-
hygli á þeim síðustu. Lamar hlýtur
átta tilnefningar, þar af sjö fyrir
tónlist við fyrrnefnda kvikmynd.
Platan sem hefur að geyma tónlist-
ina er tilnefnd sem plata ársins en
þær eru alls átta, þar af fimm plöt-
ur eftir tónlistarkonur, Cardi B,
Kacey Musgraves, Janelle Monae,
H.E.R. og Brandi Carlile og einnig
plötur Drake og Post Malone. Sú
breyting var gerð á verðlaununum í
ár að tilnefna átta plötur í stað
fimm.
Drake fylgir fast á hæla Lamar
hvað fjölda tilnefninga varðar, hlýt-
ur sjö en óvænt þótti að hann væri
ekki tilnefndur fyrir bestu rapp-
plötu.
Lamar hlýtur flestar tilnefningar
Kendrick Lamar
ICQC 2018-20