Morgunblaðið - 08.12.2018, Síða 52

Morgunblaðið - 08.12.2018, Síða 52
Diskurinn Ancestry með tríói pían- istans Sunnu Gunnlaugs ásamt finnska trompetleikaranum Verneri Pohjola hefur verið valinn einn af 12 djassdiskum mánaðarins á vegum Europe Jazz Network. Tólf djass- gagnrýnendur frá jafnmörgum löndum sjá um valið. Tríóið skipa auk Sunnu þeir Þorgrímur Jónsson kontrabassaleikari og Scott McLe- more trommari. Diskurinn geymir tónsmíðar hljómsveitarmeðlima. Ancestry einn af djass- diskum mánaðarins LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 342. DAGUR ÁRSINS 2018 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.108 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is „Ég get þó sagt þér að engin ákvörðun hefur verið tekin af fjöl- skyldunni og ég hef ekki skrifað undir neina samninga,“ sagði Guð- jón Valur Sigurðsson, landsliðsfyr- irliði í handknattleik, við fyrir- spurn Morgunblaðsins um hvort hann væri á leið til PSG í Frakk- landi eins og franskur fjölmiðill fjallaði um í vikunni. »1 Guðjón hefur ekki skrifað undir neitt ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM mín Gísli Einarsson, Ingólfur Sig- urðsson á trommur og slagverk, Snorri Örn Arnarson á bassa, raf- bassa og kontrabassa og Jónas Orri Matthíasson á gítar. Hrafn- hildur Magnea Ingólfsdóttir sér um sönginn. Dave Koz fyrirmyndin Saxófónleikarinn Dave Koz hef- ur verið fyrirmynd Bjössa frá upphafi og heldur betur hljóp á snærið hjá honum þegar goðið kom í heimsókn til Íslands í sum- ar. „Hann er ótrúlega öflugur og það var skemmtileg tilviljun að eiga með honum stund á kaffi Par- ís, í raun ótrúleg upplifun.“ Bjössi segist leggja mikið upp úr einleik á saxófón, rétt eins og Dave Koz. „Þessi tegund af tónlist er nánast ekki spiluð hér á landi og um að gera að reyna að endur- vekja hana og fá fólk til að hlusta og spila hana meira. Við poppum upp lögin á tónleikunum með flott- um saxófón og smooth-djass-stíl.“ Tónleikarnir hefjast kl. 19.30. Aðgangseyrir er 2.900 kr. og er miðasala hafin (midi.is). Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Björn Kristinsson saxófónleikari, Bjössi sax, blæs til tónleika með Jólaböngsunum í Gamla bíói nk. föstudagskvöld. „Við bjóðum upp á „smooth-djass“ eða leifturdjass af bestu gerð, jólaperlur í djass- og poppbúningi,“ segir hann og bætir við að einnig verði heitt kakó og piparkökur á boðstólum. Raggi Bjarna söngvari keyrði lengi leigubíl með söngnum og Bjössi reyndi að fara sömu leið. „Ég hef verið rútubílstjóri og leigubílstjóri en nú hef ég lagt það allt á hilluna í dágóðan tíma vegna þess að tónlistin er mér meira en allt. Það var svolítið skrýtið að hringja í mömmu þeg- ar ég var á leigubílnum rétt fyrir klukkan sex á aðfangadag í fyrra og óska henni gleðilegra jóla því undir venjulegum kringum- stæðum eru jólin tími fjölskyldu og vina.“ Úrvalslið tónlistarfólks Björn útskrifaðist sem saxófón- leikari frá tónlistarskóla FÍH/ MÍT Menntaskólanum í tónlist sl. vor og hefur að mestu helgað sig tónlistinni frá því hann var tíu ára. „Ég byrjaði að læra á blokk- flautu eins og flestir og eftir að hafa tekið hana í nefið færði ég mig yfir á píanóið,“ rifjar hann upp. „Síðan prófaði ég tromm- urnar, sem gekk ekki, en eitt sinn, þegar mamma var að keyra systur mína í balletttíma, sagði ég upp úr þurru að ég vildi læra á saxófón. Mamma hváði en ég hafði mitt fram og nú er ég við- urkenndur saxófónleikari.“ Að undanförnu hefur Bjössi spilað með Ingó veðurguði og nú hefur hann hóað saman þekktu tónlistarfólki, Jólaböngsunum, til þess að halda uppi fjörinu í Gamla bíói. „Það er valinn maður í hverju rúmi,“ segir hann en með honum leika píanóleikararnir Pálmi Sigurhjartarson og Benja- Tónleikar Bjössa sax í anda Dave Koz  Jólabangsarnir með honum í tónlistarveislu í Gamla bíói Saxófónleikari Björn Kristinsson eða Bjössi sax, gefur lífinu lit. Menningarhúsin í Kópavogi bjóða til fjölskyldustundar í dag milli kl. 13 og 15 í Náttúrufræðistofu Kópa- vogs. Í boði er teiknismiðja þar sem fuglar Náttúrufræðistofu verða teiknaðir undir handleiðslu Ránar Flygenring sem er margverðlaun- aður teiknari en hún myndskreytti meðal annars hina vinsælu bók Fuglar eftir Hjörleif Hjartarson. Fuglarnir sem og önnur dýr í Nátt- úrufræðistofu eru nú komin í jólabúning og hægt er að bæta rauðum jólahúfum og skrauti á myndir. Þátttakan í teiknismiðj- unni er ókeypis. Rán Flygenring stýrir teiknismiðju í dag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.