Morgunblaðið - 11.12.2018, Page 10

Morgunblaðið - 11.12.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2018 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is E N N E M M / S ÍA / N M 9 0 7 1 3 Renault Zoe 41 kWh rafhlaða, 300 km drægi* RENAULT ZOE 100% RAFBÍLL TIL AFGREIÐSLU STRAX! „ÞÚ HLEÐUR SJALDNAR ÁRENAULT“ VEGLEGUR VETRARPAKKI Verðmæti allt að 300.000 KR. Með nýjum Renault í desember Fyrsta ábyrgðarskoðun · Keramik lakkhúðun fyrir veturinn Gæða vetrardekk · Vönduð gúmmímotta í skott Verð: 3.790.000 kr. Meðal staðalbúnaðar í Renault Zoe er: Lykillaust aðgengi, 7" snertiskjár með bluetooth kerfi, 16" álfelgur, tímastillir á miðstöð með varmadælu, leðurklætt aðgerðarstýri, LED dagljós. *300 km drægi hverrar hleðslu miðast við uppgefnar tölur framleiðanda við staðlaðar bestu mögulegar aðstæður (WLTP) Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Nánast ómögulegt er að ná fram 100% dekkun farsímaþjónustu hér á landi með hefðbundinni uppbyggingu farsímakerfisins á landi. Þetta kemur fram í skriflegu svari samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrir- spurn Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur alþingismanns um farsímasamband. Lilja Rafney spurði annars vegar um það hve mörg þeirra svæða, sem höfðu einungis NMT-farsímasím- band þegar það kerfi var lagt niður 2010, hefðu enn ekkert samband. Hins vegar vildi hún vita hvort ráð- herra hygðist beita sér fyrir því að svæði án farsímabands fengju það og ef svo væri, hvernig tímasett áætlun væri í þeim efnum. Verst skilyrði á Norðausturlandi Í svari við fyrri spurningunni kem- ur fram að samkvæmt greiningu Póst- og fjarskiptastofnunar á NMT- þjónustu árið 2005 og farsímaþjón- ustu utan dyra nú er engin farsíma- þjónusta tiltæk á 4% landsins í heild. Verst eru skilyrði á Norðausturlandi þar sem ekki er farsímasamband á 6% lands sem er 200 metra yfir sjáv- armáli. Í svari við seinni spurningunni er gerð grein fyrir kostum og göllum NMT-kerfisins og ástæðum þess að það var lagt niður eftir að farsíma- notendur færðu sig yfir í nýrri og öfl- ugri tækni GSM-farsímaþjónust- unnar. Bent er á að framundan sé að 5G-tækni verði tekin í notkun sem krefst mun þéttara sendanets en hingað til. Ennfremur megi búast við aukinni þjónustu í framtíðinni frá lágfljúgandi gervihnöttum. Í svarinu segir að farsímasamband sé ekki hluti af skilgreindri lág- marks- eða grunnþjónustu í fjar- skiptum sem ríkið tryggi ein- staklingum og fyrirtækjum. Það sé hér eins og annars staðar veitt á markaðslegum forsendum. Út- breiðslan er mikil því 99,7% lögheim- ila hafa aðgang að því, 95,7% aðgang- ur sé á vegum utan þéttbýlis og 90,1% á vegum í yfir 200 metra hæð yfir sjávarmáli. Mikil útbreiðsla Tetra-kerfis Þá er bent á að útbreiðsla Tetra- kerfisins sé mjög mikil og víða meiri en almennra farsímakerfa. Víðast ef ekki alls staðar um landið sé nú hægt að ná sambandi með gervihnatta- síma. Loks segir ráðuneytið að vel sé hægt að meta þörf fyrir bætta far- símaútbreiðslu á tilteknu svæði sem er án þjónustu. Slík skoðun sé reglu- lega í gangi og styðji ríkið uppbygg- ingu eftir atvikum þar sem þörfin er hvað brýnust. Gert er ráð fyrir því að stjórnvöld leggi áfram fé af mörkum í slík verk- efni ef með þarf og þá einkum með hliðsjón af brýnum öryggissjónar- miðum. 4% landsins eru án farsímaþjónustu  Farsímaþjónusta ekki grunnþjón- usta sem ríkið tryggir  Þjónustan veitt á markaðslegum forsendum Útbreiðsla farsímaþjónustu nú og NMT áður Svæði þar sem engin farsímaþjónusta er í boði nú Svæði sem höfðu NMT-farsímaþjónustu árið 2005 Heimild: Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið *Áætluð útbreiðsla á landsvísu á þeim tíma er flestir sendar voru í rekstri árið 2005 en kerfið var lagt niður árið 2010. Engin farsímaþjónusta (GSM, 3G eða 4G) í nóvember 2018 óháð þjónustuveitanda NMT-farsímaþjónusta árið 2005* NMT áður en engin farsímaþjónusta nú Meira en helmingur jarðarbúa, 3,9 milljarðar manna, hefur nú aðgang að netinu. Þetta segir ITU, upplýsinga- og fjarskipta- stofnun Sameinuðu þjóðanna í nýrri skýrslu. Forstöðumaður ITU, Houlin Zhou, hvetur til þess að gert verði átak til að tryggja að enginn sé án netsambands. Netið hefur sífellt eflst í hin- um ríkari löndum heims. Þar höfðu 51,3% fólks aðgang árið 2005 samanborið við 80,9% núna. Enn stórstígari framfarir hafa þó orðið í þróunarlöndun- um. Þar eru nú 45,3% manna nettengdir, en voru 7,7% fyrir 13 árum. Mest er aukningin í Afríku, þar sem netnotkun hef- ur aukist úr 2,1% í 24,4% frá 2005. Farsímanúmerum hefur einnig fjölgað gífurlega og eru orðin fleiri en allir jarðarbúar. Meirihluti með aðgang ÚTBREIÐSLA NETSINS Net Mikil aukning notkunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.