Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2018, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.12. 2018
VETTVANGUR
Sennilega er hugur okkar einistaðurinn þar sem við njótumfullkominnar friðhelgi. Samtal
sem við eigum við okkur sjálf er
þannig séð „okkar á milli“. En um leið
og við leyfum hugsunum okkar að
birtast í orðum eða gjörðum eru þær
strangt til tekið komnar út í almanna-
rýmið.
Þá gerast ýmsar spurningar áleitnar.
Ég sit í flugstöð og skrifa þessar
línur. Ekki veit ég hvort sessunautar
mínir eru læsir á hugsanir mínar,
sem nú eru teknar að birtast á skján-
um fyrir framan mig, sýnilegar öllum
þeim sem horfa yfir öxl mér. Á ég þá
ekki þessar hugsanir mínar einn
lengur? Má þá hver sá sem verður
þeirra áskynja fara með þær að vild í
mínu nafni?
Þegar ég byrjaði í fréttamennsku
undir lok áttunda áratugarins var
okkur uppálagt að tilkynna viðmæl-
endum, í símtölum sem við áttum við
þá, ef væri verið að taka þá upp á seg-
ulband.
Síðan líður tíminn og á námskeiði
sem ég sótti í Kaupmannahöfn þegar
ég gegndi stöðu fréttaritara Sjón-
varps á Norðurlöndum um miðjan ní-
unda áratuginn, minnist ég þess hve
löngum tíma var varið í að vega og
meta hvenær réttlætanlegt væri að
vitna í orð viðmælenda sem féllu eftir
að formlegu viðtali lauk.
Eitt dæmi, sem stuðst var við, var
sjónvarpsviðtal við ráðamann um
stöðu flóttamanna í Svíþjóð. Þegar
viðtalinu, sem var ósköp slétt og fellt,
lauk, rúllaði bandið engu að síður
áfram án þess að eftir því væri tekið
fyrst í stað. Gerðist viðmælandinn nú
illyrtur í garð flóttamanna. Ég man
ekki betur en að nið-
urstaðan hafi orðið sú
að hrakmælin hafi
verið birt. Á þessum
tíma þótti þetta hins
vegar vera prinsipp-
mál, sem ástæða væri
að ræða af alvöru.
Og þá er spurt,
skiptir máli hvað ég
hugsa eða fyrst og
fremst hvað ég á end-
anum segi og síðan að
sjálfsögðu hvað ég
geri? Tilefnið er að nú heyrist því
haldið fram að við þurfum að þekkja
innræti manna. Þá skipta hugsanir að
baki gjörðum þeirra máli og að sjálf-
sögðu það sem sagt er í kunningja-
hópi, og er þá gjarnan bætt við að vín
sé innri maður, samkvæmt, að vísu,
vafasömu máltæki.
Á heimspekilegum nótum þarf þá
að spyrja hvort það sem ég hugsa sé
alltaf hin raunverulega mynd af mér;
spegilmyndin sem segir hver ég er?
Er innri barátta sem kann að vera
háð til að vinna á eigin brestum og
fordómum einskis virði? Á heimurinn
rétt á að rannsaka allt hugsanaferli
okkar eða á hann að láta sér nægja
það sem við á endanum viljum láta frá
okkur fara út í almannarýmið?
Enn eitt dæmi úr fréttamennsk-
unni í þessu samhengi, þá kominn
handan við míkrófóninn. Sem ráð-
herra var ég einhverju sinni í löngu
viðali við fjölmiðil og fékk ég tækifæri
til að lesa það yfir. Eitthvað var þarna
sem mér þótti gefa ranga mynd af því
sem ég raunverulega meinti og vildi
ég því breyta orðum mínum. „Já, en
þú sagðir þetta, við eigum það á
bandi.“ Þar með taldi fjölmiðillinn sig
vera kominn með eignarhald á óbirt-
um orðum mínum. En átti viðtalið
ekki að snúast um mínar skoðanir, og
þá það sem ég raunverulega vildi
segja að yfirveguðu ráði?
Ég hef tekið afdráttarlausa afstöðu
með uppljóstrurum þegar um er að
ræða líkur á svindli og misferli. Þegar
slíku misferli sleppir hef ég hins veg-
ar fyrirvara. Hvar landamærin skuli
vera liggur engan veginn í augum
uppi og það er sameiginlegt verkefni
okkar allra að finna út hvar við viljum
hafa þau.
Viðfangsefnið er ekki auðvelt; að
forðast þöggun á ranglæti og ofbeldi,
hvort sem er í orðum eða gjörðum, en
jafnframt skapa okkur félagslega
umgjörð sem ekki er um of fordæm-
andi og gerir þeim sem verður á í líf-
inu afturkvæmt.
Að undanförnu hafa gerningaveður
geisað í tilfinningalífi þjóðarinnar eft-
ir samkomu nokkurra þingmanna og
síðan mikinn og stundum óvæginn
fréttaflutning af
samtalinu sem
þar fór fram, að
ógleymdri svið-
setningu á uppá-
komunni á fjöl-
um Borgar-
leikhússins.
Eftir liggja
margir sárir,
þeir sem töluðu
og hinir sem um
var rætt og að
sjálfsögðu fjöl-
skyldu- og ástvinahringur.
En nú á enn að bæta í. Sá ein-
staklingur sem stóð að upptöku á um-
ræddu samtali sætir rannsókn og er
svo að skilja að verið sé að undirbúa
lögsókn.
Til hvers? Til þess að einstakling-
urinn sem í hlut á sé látinn finna til te-
vatnsins; er meiningin að gjalda líku
líkt, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn,
eins og segir í Gamla testamentinu?
Í mínum huga er þetta mál stærra
en svo að það snúist um einstakar
persónur þótt þessa stundina sé svo
að sjálfsögðu. Það snýst um meiðandi
orð en einnig, og alls ekki síður, um
aðkomu fjölmiðla og samfélagsins al-
mennt að málum af þessu tagi. Þetta
er einnig stærra en svo að það verði
leyst fyrir dómstólum. Ef horft er
víðar og til þeirrar orðljótu umræðu á
netinu, sem að einhverju leyti hefur
birst okkur í fjölmiðlum á undan-
förnum mánuðum, þá þykir mér við
standa á tímamótum.
Öll berum við ábyrgð á andanum í
samfélaginu; hvaða gildi við viljum
hafa að leiðarljósi og þá ekki síst
hvort kallað er á réttlæti eða hefnd.
Ég held það hafi verið Gandhi sem
sagði að ef við létum auga fyrir auga
og tönn fyrir tönn lögmálið gilda,
enduðum við tannlaus og sjónlaus.
Varla getur það talist eftirsóknar-
vert.
Hve lengi á ég orðin mín?
’Viðfangsefnið er ekkiauðvelt; að forðastþöggun á ranglæti og of-beldi, hvort sem er í orð-
um eða gjörðum, en jafn-
framt skapa okkur
félagslega umgjörð sem
ekki er um of fordæmandi
og gerir þeim sem verður
á í lífinu afturkvæmt.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
Thinkstock
Örn Úlfar Sæv-
arsson @ornulf-
ar tísti um jóla-
kort:
„Við sendum
engin jólakort
þetta árið - peningurinn sem spar-
ast fer í skatta og þaðan til Íslands-
pósts. Góðar stundir.“
Hrafn Jónsson @hrafnjonsson
var líka með hugann við jólin:
„Ég tala kannski um þetta á
hverju ári, en það nær eiginlega
engri átt hversu ógeðslega gott Þú
komst með jólin til mín er. Ég er
búinn að heyra það svona 10 sinn-
um í þessari viku og gírast full-
komlega upp í hvert EINASTA
skipti.“
Edda Sif Páls-
dóttir @EddaSif-
Palsd tísti um val á
íþróttamanni ársins
en hún hafði skrifað
stjórn Samtaka
íþróttafréttamanna póst þar sem hún
sagðist ekki geta mætt og þóst brosa
með samtökum sem líta undan þegar
félagsmaður beitir annan ofbeldi:
„Í síðustu viku hófst árlegt ferli
við að velja íþróttamann ársins og
mig langaði ekki að taka þátt. Ég
sendi stjórn SÍ þennan tölvupóst og
var í kjölfarið beðin afsökunar bæði
persónulega og í þessari yfirlýsingu.
Það skipti mig máli og ég kaus í gær.“
Sævar Helgi
Bragason @sa-
evarhb deildi
færslu úr mynda-
vél Nasa á Twitter:
„Dýrka það að
myndavél NASA „tali“ íslensku. En
það er svo sem mér að þakka. Gef
sjálfum mér því high five.“
AF NETINU
Happy Talk kertastjakar
kr. 6.900, 9.800 og 16.000 Spiladósir kr. 6.600
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík
Sími 588 0488 | feldur.is
BÖRKUR
Leðurhanskar
7.600
HULDA
Minnkaskinkápa
598.900
Gleðilega hátið
EIR
Úlpa m/refaskinni
158.000
DRÍFA
Skinnkragi
31.900
VINDUR
Rauðrefstrefill
15.500
SKJÓL
leðurhúfa/refaskinn
35.800
Opið frá 11- 23
í dag Þorláksmessu