Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2018, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.12. 2018 VETTVANGUR Sennilega er hugur okkar einistaðurinn þar sem við njótumfullkominnar friðhelgi. Samtal sem við eigum við okkur sjálf er þannig séð „okkar á milli“. En um leið og við leyfum hugsunum okkar að birtast í orðum eða gjörðum eru þær strangt til tekið komnar út í almanna- rýmið. Þá gerast ýmsar spurningar áleitnar. Ég sit í flugstöð og skrifa þessar línur. Ekki veit ég hvort sessunautar mínir eru læsir á hugsanir mínar, sem nú eru teknar að birtast á skján- um fyrir framan mig, sýnilegar öllum þeim sem horfa yfir öxl mér. Á ég þá ekki þessar hugsanir mínar einn lengur? Má þá hver sá sem verður þeirra áskynja fara með þær að vild í mínu nafni? Þegar ég byrjaði í fréttamennsku undir lok áttunda áratugarins var okkur uppálagt að tilkynna viðmæl- endum, í símtölum sem við áttum við þá, ef væri verið að taka þá upp á seg- ulband. Síðan líður tíminn og á námskeiði sem ég sótti í Kaupmannahöfn þegar ég gegndi stöðu fréttaritara Sjón- varps á Norðurlöndum um miðjan ní- unda áratuginn, minnist ég þess hve löngum tíma var varið í að vega og meta hvenær réttlætanlegt væri að vitna í orð viðmælenda sem féllu eftir að formlegu viðtali lauk. Eitt dæmi, sem stuðst var við, var sjónvarpsviðtal við ráðamann um stöðu flóttamanna í Svíþjóð. Þegar viðtalinu, sem var ósköp slétt og fellt, lauk, rúllaði bandið engu að síður áfram án þess að eftir því væri tekið fyrst í stað. Gerðist viðmælandinn nú illyrtur í garð flóttamanna. Ég man ekki betur en að nið- urstaðan hafi orðið sú að hrakmælin hafi verið birt. Á þessum tíma þótti þetta hins vegar vera prinsipp- mál, sem ástæða væri að ræða af alvöru. Og þá er spurt, skiptir máli hvað ég hugsa eða fyrst og fremst hvað ég á end- anum segi og síðan að sjálfsögðu hvað ég geri? Tilefnið er að nú heyrist því haldið fram að við þurfum að þekkja innræti manna. Þá skipta hugsanir að baki gjörðum þeirra máli og að sjálf- sögðu það sem sagt er í kunningja- hópi, og er þá gjarnan bætt við að vín sé innri maður, samkvæmt, að vísu, vafasömu máltæki. Á heimspekilegum nótum þarf þá að spyrja hvort það sem ég hugsa sé alltaf hin raunverulega mynd af mér; spegilmyndin sem segir hver ég er? Er innri barátta sem kann að vera háð til að vinna á eigin brestum og fordómum einskis virði? Á heimurinn rétt á að rannsaka allt hugsanaferli okkar eða á hann að láta sér nægja það sem við á endanum viljum láta frá okkur fara út í almannarýmið? Enn eitt dæmi úr fréttamennsk- unni í þessu samhengi, þá kominn handan við míkrófóninn. Sem ráð- herra var ég einhverju sinni í löngu viðali við fjölmiðil og fékk ég tækifæri til að lesa það yfir. Eitthvað var þarna sem mér þótti gefa ranga mynd af því sem ég raunverulega meinti og vildi ég því breyta orðum mínum. „Já, en þú sagðir þetta, við eigum það á bandi.“ Þar með taldi fjölmiðillinn sig vera kominn með eignarhald á óbirt- um orðum mínum. En átti viðtalið ekki að snúast um mínar skoðanir, og þá það sem ég raunverulega vildi segja að yfirveguðu ráði? Ég hef tekið afdráttarlausa afstöðu með uppljóstrurum þegar um er að ræða líkur á svindli og misferli. Þegar slíku misferli sleppir hef ég hins veg- ar fyrirvara. Hvar landamærin skuli vera liggur engan veginn í augum uppi og það er sameiginlegt verkefni okkar allra að finna út hvar við viljum hafa þau. Viðfangsefnið er ekki auðvelt; að forðast þöggun á ranglæti og ofbeldi, hvort sem er í orðum eða gjörðum, en jafnframt skapa okkur félagslega umgjörð sem ekki er um of fordæm- andi og gerir þeim sem verður á í líf- inu afturkvæmt. Að undanförnu hafa gerningaveður geisað í tilfinningalífi þjóðarinnar eft- ir samkomu nokkurra þingmanna og síðan mikinn og stundum óvæginn fréttaflutning af samtalinu sem þar fór fram, að ógleymdri svið- setningu á uppá- komunni á fjöl- um Borgar- leikhússins. Eftir liggja margir sárir, þeir sem töluðu og hinir sem um var rætt og að sjálfsögðu fjöl- skyldu- og ástvinahringur. En nú á enn að bæta í. Sá ein- staklingur sem stóð að upptöku á um- ræddu samtali sætir rannsókn og er svo að skilja að verið sé að undirbúa lögsókn. Til hvers? Til þess að einstakling- urinn sem í hlut á sé látinn finna til te- vatnsins; er meiningin að gjalda líku líkt, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, eins og segir í Gamla testamentinu? Í mínum huga er þetta mál stærra en svo að það snúist um einstakar persónur þótt þessa stundina sé svo að sjálfsögðu. Það snýst um meiðandi orð en einnig, og alls ekki síður, um aðkomu fjölmiðla og samfélagsins al- mennt að málum af þessu tagi. Þetta er einnig stærra en svo að það verði leyst fyrir dómstólum. Ef horft er víðar og til þeirrar orðljótu umræðu á netinu, sem að einhverju leyti hefur birst okkur í fjölmiðlum á undan- förnum mánuðum, þá þykir mér við standa á tímamótum. Öll berum við ábyrgð á andanum í samfélaginu; hvaða gildi við viljum hafa að leiðarljósi og þá ekki síst hvort kallað er á réttlæti eða hefnd. Ég held það hafi verið Gandhi sem sagði að ef við létum auga fyrir auga og tönn fyrir tönn lögmálið gilda, enduðum við tannlaus og sjónlaus. Varla getur það talist eftirsóknar- vert. Hve lengi á ég orðin mín? ’Viðfangsefnið er ekkiauðvelt; að forðastþöggun á ranglæti og of-beldi, hvort sem er í orð- um eða gjörðum, en jafn- framt skapa okkur félagslega umgjörð sem ekki er um of fordæmandi og gerir þeim sem verður á í lífinu afturkvæmt. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is Thinkstock Örn Úlfar Sæv- arsson @ornulf- ar tísti um jóla- kort: „Við sendum engin jólakort þetta árið - peningurinn sem spar- ast fer í skatta og þaðan til Íslands- pósts. Góðar stundir.“ Hrafn Jónsson @hrafnjonsson var líka með hugann við jólin: „Ég tala kannski um þetta á hverju ári, en það nær eiginlega engri átt hversu ógeðslega gott Þú komst með jólin til mín er. Ég er búinn að heyra það svona 10 sinn- um í þessari viku og gírast full- komlega upp í hvert EINASTA skipti.“ Edda Sif Páls- dóttir @EddaSif- Palsd tísti um val á íþróttamanni ársins en hún hafði skrifað stjórn Samtaka íþróttafréttamanna póst þar sem hún sagðist ekki geta mætt og þóst brosa með samtökum sem líta undan þegar félagsmaður beitir annan ofbeldi: „Í síðustu viku hófst árlegt ferli við að velja íþróttamann ársins og mig langaði ekki að taka þátt. Ég sendi stjórn SÍ þennan tölvupóst og var í kjölfarið beðin afsökunar bæði persónulega og í þessari yfirlýsingu. Það skipti mig máli og ég kaus í gær.“ Sævar Helgi Bragason @sa- evarhb deildi færslu úr mynda- vél Nasa á Twitter: „Dýrka það að myndavél NASA „tali“ íslensku. En það er svo sem mér að þakka. Gef sjálfum mér því high five.“ AF NETINU Happy Talk kertastjakar kr. 6.900, 9.800 og 16.000 Spiladósir kr. 6.600 Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík Sími 588 0488 | feldur.is BÖRKUR Leðurhanskar 7.600 HULDA Minnkaskinkápa 598.900 Gleðilega hátið EIR Úlpa m/refaskinni 158.000 DRÍFA Skinnkragi 31.900 VINDUR Rauðrefstrefill 15.500 SKJÓL leðurhúfa/refaskinn 35.800 Opið frá 11- 23 í dag Þorláksmessu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.