Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 20

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 20
Náttúrufræðingurinn 100 sem vert er að taka alvarlega og bendir til þess að gengið sé á veiðistofn urriða umfram nýliðun. Minnkandi afli á lögn í rannsóknarveiðum bendir til þess sama. Út frá niðurstöðum um meðallengd bleikju og urriða við sama aldur sést að urriðinn vex mun hægar en bleikjan og einnig dregur fyrr úr vexti hans en bleikjunnar.29 Minni vaxtarhraði urriða leiðir til þess að lengri tími líður frá hrygningu þar til fiskurinn er kominn í veiðanlega stærð. Samkvæmt veiðiskýrslum hafa að meðaltali 89,2% af bleikju veiðst í Syðri- flóa en 10,8 % í Ytriflóa.35 Þegar miðað er við flatarmál hvors flóa um sig veiðist því hlutfallslega meira af bleikju í Syðri- flóa. Urriðaveiði hefur að meðaltali skipst nærri jafnt á milli flóa, 50,3% í Syðriflóa og 49,7% í Ytriflóa, þrátt fyrir að Ytriflói sé ekki nema um fjórðungur af flatarmáli Mývatns. Það bendir til að skilyrði fyrir urriða séu betri þegar litið er til stærðar flóanna. Þar vega líklega þyngst hrygningarskilyrði og átuskil- yrði, meðal annars mikill fjöldi hornsíla í flestum árum. Bleikjustofn Mývatns hefur verið lítill undanfarin ár. Hrun varð í bleikju- stofninum 1988 en hann náði sér aftur á strik. Eftir annað hrun 1997 hefur nýliðun og veiðistofn ekki náð sér. Niðurstöður rannsóknarveiða 2015 og 2016 gefa vísbendingar um að nýliðun hafi aftur aukist og að bleikjustofninn fari nú stækkandi. Þetta bendir til þess að árangur friðunar sé að verða mælan- legur í rannsóknarveiðum. Væntanlega líða síðan 2–3 ár þar til þessi aukning fer að skila sér í hrygningarstofn. Með fleiri stórum fiskum í hrygningarstofni er von til betri nýliðunar, þar sem fjöldi hrogna og stærð eykst með aukinni fisk- stærð.50 Eftir að dregið hefur verið úr sókn hafa fleiri fiskar möguleika til að hrygna oftar en einu sinni. Minnkandi sókn ætti því að lokum að koma fram í fleiri stórum kynþroska fiskum og hærri afla á sóknareiningu. SUMMARY The Arctic charr in Lake Mývatn. Changes in popula- tion size and exploitation Lake Mývatn is a shallow eutrophic lake in Northeast Iceland. The lake inhabits three fish species Arctic charr (Salvelinus alpinus), brown trout (Salmo 17. mynd. Lengd bleikju eftir aldri, bakreiknuð með athugun á bleikjuhreistri frá árunum 1941, 1957, 1987, 1990 og 2007. – Arctic charr length by age back calculated from scale samples from Lake Mývatn, 1941, 1957, 1987, 1990 and 2007. 16. mynd. Tengsl fjölda lagna og heildarafla bleikju á árunum 1985–2016. – The relationship between the number of nets and the catch in Lake Mývatn. 15. mynd. Tengsl stofnmats (árið t) metið út frá afla í 30–50 mm möskva í rannsóknarveiði, hlutfall þess sem hvert net tekur af heildarstofni og afli í vetrarveiði árið á eftir (t+1). – The correlation between the estimated stock size in the monitoring fishery and the estimated stock size at the beginning of the subsequent fishing season.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.