Náttúrufræðingurinn - 2018, Blaðsíða 37
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
117
sem á grunnu vatni afmarkast af hreyf-
ingum sjávar, og á dýpra vatni af dvín-
andi áhrifum sólarljóss. Í þeim rann-
sóknum á Vestfjörðum og í Húnaflóa
sem hér er fjallað um voru kóralþör-
ungar vöxtulegastir og útbreiddastir á
grunnu vatni, 7–20 metra dýpi eða svo,
en strjálli og rýrari þar fyrir neðan.
Franska heitið maërl er notað um
kalkþörungaset. Ekki mun þó samkomu-
lag um nákvæma skilgreiningu á því
heiti (Karl Gunnarsson, munnl. uppl.).
Reynt hefur verið að nota heitið
mærlingur hér á landi en það hefur ekki
fest í sessi. Auk dauðra kalkþörunga eru
í setinu ýmis íblöndunarefni og leifar
margvíslegra annarra lífvera, og land-
rænt efni af ýmsu tagi.
Kalkþörungar eru mjög hægvaxta
lífverur. Könnun, sem starfsmenn Haf-
rannsóknastofnunar2 gerðu að ósk Kalk-
þörungafélagsins á árunum 2013–2014 á
framleiðni og kalkmyndun kalkþörunga
á botni við Reykjanes í Djúpi leiddi í ljós
að framleiðni kalks er þar um 220 g/m2
á ári. Þetta er í lægri kanti mæliniður-
staðna í Norður-Atlantshafi.
Fjórir kjarnar úr kalkþörungaseti
við Reykjanes í Ísafjarðardjúpi voru
viðfangsefni BS-verkefnis við Háskóla
Íslands.3 Með mælingum á segulviðtaki
og kolefnisinnihaldi setsins mátti tengja
myndunarsögu efnisins í kjarnanum
við sögu annarra setkjarna frá þessum
landshluta. Niðurstaðan var meðal
annars að setið hefði myndast á nútíma
(síðustu 10 þúsund árum).
Kalkþörungaset hefur lengi verið
hagnýtt í öðrum löndum. Til dæmis
hefur það verið numið við Cornwall í
Englandi og nýtt til jarðvegsbóta frá 18.
öld að minnsta kosti, og við Frakklands-
strendur frá upphafi 19. aldar.4 Vinnsla
á þessum svæðum hefur dregist mjög
saman. Kalkþörungar hafa verið hag-
nýttir víðar á Bretlandseyjum, svo sem
á Írlandi. Auk nýtingar til jarðvegsbóta
hefur notkun kalkþörunga til íblöndunar
í skepnufóður farið vaxandi og einnig
sem fæðubótarefni fyrir menn. Á síðustu
áratugum hefur þrengt að kalkþörunga-
námi af umhverfisástæðum. Kóralþör-
ungar eru viðkvæmir fyrir hvers kyns
röskun. Lifandi kóralþörungar mynda
sérstakt vistkerfi á botni þar sem mikill
fjöldi lífverutegunda hefur búsetu. Þeir
skýla ungviði af ýmsu tagi, og þykja því
verðir varðveislu.5
4. mynd. Endurvarpssnið yfir Langanesgrunn frá SV til NA. Sniðið er 1200 metra langt. Setlög
ofan á klöpp eru auðkennd. Þau mynda hjalla báðum megin við klapparbotn á miðju grunninu
og ná hér um sjö metra þykkt. Lega sniðsins er sýnd á 6. mynd. Láréttar línur sýna endur-
varpstíma hljóðmerkis og eru 10 millisekúndur milli lína, sem jafngildir um 7,5 metra dýpi. –
Seismic reflection profile across Langanesgrunn from SW to NE showing sediments on top of
bedrock. These form terraces on both sides of a bedrock ridge exposed along the centre of
the Langanesgrunn. Maximum sediment thickness in this section about seven metres. Position
of section indicated in Fig. 6. Horizontal scale lines at an interval of 10 milliseconds, or ca. 7.5
metres. Length of section 1200 metres.
Áður hefur nokkuð verið fjallað
um útbreiðslu kalkþörunga við Ísland.
Helgi Jónsson6 hefur lýst auðugu sam-
félagi kalkþörunga í Arnarfirði og vitn-
aði í Bjarna Sæmundsson um kalkþör-
unga í fjörðum inn af Ísafjarðardjúpi.
Einnig skýrði hann frá kalkþörungum
í Eyjafirði og í fjörðum á Austurlandi.
Þá minntist hann á kalkþörunga í Hval-
firði. Adey7 og Adey o.fl.8 könnuðu
kalkþörungaskán víðs vegar við landið.
Karl Gunnarsson9 hefur lýst kalkþör-
ungasvæðinu við Langanes í Arnarfirði,
meðal annars útbreiðslu þörunganna
þar og öðrum þörungum sem þar
þrífast. Karl hefur auk þess fundið kalk-
þörunga á botni víðs vegar við landið,
svo sem í Hvalfirði, Eyjafirði og á Aust-
fjörðum (Karl Gunnarsson, munnl.
uppl. 2018). Kjartan Thors og Guðrún
Helgadóttir10 fundu kalkþörunga víða
um sunnanverðan Húnaflóa þegar þau
leituðu að skeljasandi til notkunar við
jarðvegsbætur.
Þannig hefur vitneskja um tilvist
kalkþörunga á ýmsum svæðum við
Ísland legið fyrir um alllangt skeið.
5. mynd. Endurvarpssnið inn Reykjarfjörð frá N til S. Sniðið er 1260 metra langt. Setlög á klöpp
eru auðkennd. Klöppin myndar breiðan þröskuld í mynni fjarðarins og setlögin hafa myndast
ofan á honum. Þykkt setlaganna er að mestu um fimm metrar, en rúmlega átta metrar nyrst
og syðst. U.þ.b. 7,5 metrar á milli láréttra lína. Lega sniðsins er sýnd á 7. mynd. – A North-
-South seismic reflection profile representing a 1260 metres’ long section from Reykjarfjörður.
Sediments are seen to overlie a broad bedrock threshold at the mouth of the fjord. Sediment
thickness of about five metres reaches about eight metres at the northern and southern ends
of the section. The position of the profile is shown in Fig. 7.