Náttúrufræðingurinn - 2018, Blaðsíða 48
Náttúrufræðingurinn
128
3. mynd. Inngrafið á smásjána er merki með
nafni framleiðandans, framleiðslunúmeri
hennar og nafni. – Signature with quotation
marks and name on tube. Ljósm./Photo: Timo
Mappes, www.musoptin.com.
ræktarfélög. Hann kom áfram að veiði-
málum, sat 1930–1932 í milliþinganefnd
sem undirbjó lög um lax- og silungsveiði,
var varaformaður veiðimálanefndar frá
1933 til æviloka og formaður nefndar
sem vann árin 1954–1955 að endur-
skoðun laga um lax- og silungsveiði.
SMÁSJÁIN HEIMDAL
Um smásjána Heimdal og heiti
hennar segir Reinsch 1927 (þýðing GSJ):4
Ég gaf smásjánni nafnið HEIMDAL
til minningar um Ísland þar sem fornar
germanskar sagnir og goðafræði lifa
enn meðal þjóðarinnar. Í rannsóknar-
leiðangri á Íslandi árið 1925 reyndist
frumgerð feltsmásjárinnar HEIMDAL
mér ómissandi félagi og varð ég aldrei
fyrir vonbrigðum með hana. Ég gat því
ekki veitt smásjánni betri guðföður en
goðið Heimdall, goðið með næmustu
skynfærin, sem heyrir grasið gróa og
sér jafnt nótt og dag.
Reinsch lagði á það mikla áherslu
við undirbúning Íslandsferðarinnar að
koma öllum búnaði sínum haganlega
fyrir og láta hann taka sem minnst pláss.
Hann leitaði í því skyni til sjóntækja-
framleiðandans Karls Reicherts með
hugmynd sína um sérstaka ferðasmá-
sjá, sem væri fyrirferðarlítil og saman-
brjótanleg en gæfi þó hefðbundnum
rannsóknarstofusmásjám ekkert eftir
í gæðum. Reichert tók honum vel og
starfsmenn fyrirtækis hans aðstoðuðu
Reinsch við smíðina (1.–3. mynd).
Með orðinu feltsmásjá (þ. Feld-
mikroskop, d. feltmikroskop, e. field
microscope) um smásjá af bestu gæðum
til rannsókna utandyra hafði Reinsch
í raun skilgreint nýtt hugtak í fræðum
sínum. Hann gerði kröfu um sömu tækni
og stillingar og í rannsóknarstofusmá-
sjám, þ.e. hefðbundnar linsur, auðveld
linsuskipti, gallalausa gróf- og fínstill-
ingu, sýnaborð sem væri að minnsta
kosti 70 mm í þvermál og fullnægjandi
búnað til lýsingar. Smásjána skyldi vera
hægt að brjóta saman og þar yrðu engir
skrúfaðir hlutir sem þyrfti að skipta um
og kynnu því að týnast. Henni skyldi
vera hægt að pakka í lítinn og léttan en
höggþolinn kassa.
Smásjáin fór í framleiðslu eftir að
Reinsch lést og var notuð nokkuð víða
á meginlandi Evrópu við vatnalíffræði-
rannsóknir, en síður í enskumælandi
löndum. Hún virðist einnig hafa verið
markaðssett fyrir hernaðarþarfir, að
minnsta kosti í Japan.6
Í grein frá 1933 um vatnalíffræðileg
rannsóknartæki segir Franz Ruttner
(1882–1961) forstöðumaður Vatnalíf-
fræðistöðvarinnar í Lunz og höf-
undur Fundamentals of Limnology, sem
er kennslubók í vatnalíffræði:7 „Til líf-
fræðilegra feltrannsókna notum við
hina velþekktu ferðasmásjá HEIM-
DAL frá Reichert. Hún tekur nánast
ekkert pláss og hefur reynst afburða-
vel [þ. ausgezeichnet, d. fremragende,
e. excellent] í verkefnunum.” Á vefsetri
sjóntækjasafnsins Museum optischer
Instrumente8 segir að fram til ársins
1955 hafi jákvæðar tilvísanir í sérfræði-
tímaritum um notkun smásjárinnar til
rannsókna birst reglulega og að í þeim
komi fram að hún hafi reynst einstak-
lega hentug.
Hraðari og betri samgöngur eru að
líkindum helsta ástæða þess að nú er
minni þörf fyrir feltsmásjá en á fyrri
hluta 20. aldar. Flytja má fersk sýni
milli landshluta á rannsóknarstofu á
nokkrum klukkutímum þannig að sér-
fræðingar kjósa fremur að nýta full-
komna aðstöðu rannsóknarstofunnar
en ófullkomna aðstöðu á sýnatökustað.
Tæknin virðist heldur ekki hafa verið
þróuð áfram þegar hún úreltist.
LOKAORÐ
Friedrich Kurt Reinsch entist ekki
aldur til þess að ljúka verkefnum sínum
hér á landi og birta niðurstöður rann-
sókna sinna í alþjóðlegum tímaritum.
Við vitum aftur á móti hvar hann fór og
hvað hann var að rannsaka og til er ýtar-
leg lýsing á búnaði hans og tækjum.
Reinsch ánafnaði Íslendingum þessi
tæki sín, væntanlega einnig smásjána
Heimdal. Ef tækin hafa borist til Íslands,
sem ekki er staðfest, er ótrúlegt að ekki
séu minjar um þau einhvers staðar þótt
langt sé um liðið. Einnig má vænta þess
að grip eins og þeim sem sýndur er á 1.
mynd hafi verið sýndur nokkur sómi.
Vonandi man einhver eftir að hafa séð
smásjána í skáp, hillu eða kassa og gerir
ráðstafanir til að koma henni í viðeig-
andi vörslu. Ef um er að ræða smásjána
sem Reinsch kom með til Íslands 1925,
frumgerð HEIMDAL, er um vísinda-
sögulegar minjar að ræða.
Smásjáin Heimdal, frumgerðin eða
tæki síðar framleitt, myndi sóma sér
vel sem minnismerki um óvenjulegan
frumkvöðul í vatnalíffræði hér á landi.
SUMMARY
Friedrich K. Reinsch, his
limnological studies in
Iceland and portable field
microscope, Heimdal
Young German scientist, Friedrich
Kurt Reinsch, travelled in Iceland in the
summer 1925 for limnological studies.
He was well prepared, and brought with
him diverse and numerous scientific
instruments. Among the instruments
was a prototype of a microscope he
designed in association with the optical
company C. Reichert in Vienna. This
was a portable field microscope, which
he named Heimdal after the Nordic god
Heimdall. Reinsch was not able to fin-
ish his limnological research in Iceland
because of a cancer disease that he died
of in 1927. Internationally, his name will
be remembered for his Heimdal micro-
scope. He donated his scientific instru-
ments to Iceland after his death, but the
institute that received his donation has
yet to be identified.