Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2018, Blaðsíða 28

Náttúrufræðingurinn - 2018, Blaðsíða 28
Náttúrufræðingurinn 108 1. tafla. Tegund gagna, staðir gagnaöflunar og tímabil. – Data collected, where and when. Hengilssvæðið (A) Hvalárvirkjun (B) Virkjunarhugmyndir í 3. áfanga rammaáætlunar (C) Energy utilization proposals from the third The Master Plan for Nature Protection and Energy Utilization Tegund gagna Type of data Spurningakönnun (1.135 gild svör) Survey, 1,135 valid responses 15 hálfstöðluð viðtöl 15 semi-structured interviews Spurningakönnun (2.075 gild svör) og 63 hálfstöðluð viðtöl Survey, 2,075 valid responses and 63 semi-structured interviews Staðir Locations Nesjavellir, Dyradalur, Reykjadalur Ófeigsfjörður og Strandir norðanverðar Spurningakönnun við (Surveys at) Aldeyjarfoss, Hagavatn, Nýjadal, Hólaskjól og við Seltún og Trölladyngju á Reykjanesskaga, auk Skagafjarðar. Viðtöl í (interviews in) Skagafirði, Skaftárhreppi, Bláskógabyggð, Suður-Þingeyjarsýslu, á höfuðborgarsvæðinu (capital area) og Akureyri Tímabil Period Sumar 2017 Summer 2015 Haust 2015 Autumn 2015 Sumar 2015 og vor 2016 Summer 2015 and spring 2016 fyrir ferðaþjónustuna, þau „vöruvæð- ast“, en verða jafnframt einsleitari og missa sérstöðu sína. Hættan er sú að áfangastaðir öðlist eingöngu skiptagildi á hnattvæddu markaðstorgi ferðaþjón- ustu. Á 4. mynd er 2. og 3. mynd rennt saman til að skýra samspilið milli lífs- ferils áfangastaða og arðsemisgapsins. Þar má sjá hvernig tækifæri til arðsemi af ferðaþjónustu eru hvað mest þegar áfangastaður er við það að mynda tengsl sín við mögulega gesti og vaxa. Dæmi um þetta má sjá í vexti íslenskrar ferða- þjónustu undanfarin ár. Hins vegar er áskorunin sú að skilja hverjir hafa hag af því að fylla arðsemisgapið í tilfelli hvers áfangastaðar, hvernig það er gert og hvaða afleiðingar það hefur. Áskorunin fyrir ferðaþjónustuna hér á landi hlýtur að vera sú að forðast stig massatúrisma eða fjöldaferðamennsku og þannig stig hnignunar samkvæmt líkani Butlers. Það telur Debord þó óhjákvæmilegt um alla áfangastaði ferðamanna, þ.e. að þeir verði að lokum staðleysur hins hreina skiptagildis. GÖGN OG AÐFERÐIR Tvö svæði verða hér sérstaklega rýnd til að skilja betur þær breytingar sem verða á eðli áfangastaða ferðamanna í náttúru Íslands með bættu aðgengi í kjölfar virkjunarframkvæmda. Annars vegar verða rýnd gögn sem aflað var sumarið 2017 meðal gesta á Hengils- svæðinu (A). Þar var lagt mat á áhrif fyrirhugaðra virkjana á upplifun gesta, útivist og ferðahegðun. Hins vegar er byggt á matsskýrslu Verkíss um Hval- árvirkjun í Ófeigsfirði1 og rannsókn á áhrifum virkjunarinnar á ferða- mennsku og útivist (B).50 Þessar tvær nýlegu rannsóknir verða settar í sam- hengi við röð fyrri rannsókna um áhrif virkjunarframkvæmda á ferðamennsku og útivist vegna vinnu við 3. áfanga rammaáætlunar (verndar- og orkunýt- ingaráætlunar) (C). Fjórar af virkjun- arhugmyndunum sem þar um ræðir eru í Skjálfandafljóti, þrjár í Skagafirði, tvær á Sprengisandi, tvær á Reykjanes- skaga, ein í Skaftá og ein við Hagavatn. Kannanirnar sem gerðar voru meðal ferðamanna eru þeim annmarka háðar að þær eru gerðar að sumri til og lýsa því einungis viðhorfi þeirra sem fara um viðkomandi svæði á sumrin. Yfirlit gagna má sjá í 1. töflu. Síðastnefnda gagnasafnið (C) sam- anstendur af tvenns konar gögnum. Annars vegar var spurningakönnun lögð fyrir ferðamenn við Aldeyjarfoss, Hagavatn, Nýjadal, Hólaskjól, og Seltún og Trölladyngju á Reykjanesskaga, auk Skagafjarðar. Gagnasöfnun hófst um miðjan júlí 2015 við Seltún og lauk um miðjan ágúst við Skjálfandafljót og var listunum dreift í 5–7 daga á hverjum stað. Einn spyrill dreifði spurninga- listum til ferðamanna á áfangastöð- unum að jafnaði allan daginn. Alls fengust 2.075 útfylltir spurningalistar. Flest svör fengust frá ferðamönnum við Seltún, eða 751, en fæst við Nýjadal, eða 88 svör. Samantekt þessara kannana má sjá í skýrslu Önnu Dóru Sæþórsdóttur, Birgittu Stefánsdóttur og Þorkels Stef- ánssonar.51 Hins vegar voru tekin hálf- stöðluð viðtöl í byrjun árs 2016 við 63 ferðaþjónustuaðila á sex svæðum: 19 í Skagafirði, 17 á höfuðborgarsvæðinu, 8 í Skaftárhreppi, 6 í Bláskógabyggð, 7 í Suður-Þingeyjarsýslu (Norðurþingi, Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi) og 6 á Akureyri. Viðmælendur voru valdir með markvissri úrtaksaðferð þar sem leitast var við að tala við þá sem hafa beinna hagsmuna að gæta á því svæði þar sem viðkomandi virkjun gæti haft áhrif. Slíkir hagsmunir eru einkum taldir felast í því að vera með ferðir um svæðið eða reka gistingu í næsta nágrenni við það. Ýtarlega greiningu á niðurstöðum úr þessum rannsóknum má sjá í sex útgefnum skýrslum, einni um hvert svæði.52-57 Gögnin um áhrif virkjunar Hvalár á ferðamennsku og útivist (B) byggjast á 15 hálfstöðluðum viðtölum frá tímabil- inu 27. október til 27. nóvember 2015, þar af fimm við ferðamenn og átta við ferðaþjónustuaðila. Tveir viðmæl- endur féllu ekki beint í þessa flokka. Byggt var á fimm fyrirfram ákveðnum þemum: 1) núverandi starfsemi/reynsla af ferðamennsku, 2) núverandi aðdrátt- arafl svæðisins, 3) framtíðaráform og væntingar, 4) núllkostur, þ.e. framtíð svæðisins án virkjunar og 5) viðhorf til fyrirhugaðrar Hvalárvirkjunar. Auk þess var viðmælendum veitt rými til að bæta við eigin sjónarmiðum eða annarri reynslu eða viðhorfum.50 Sumarið 2017 var aflað gagna um ferðamenn yfir þrjú tímabil, 1. júní til 6. júlí, 7. júlí til 10. ágúst og síðast 11. ágúst til 15. september á Hengilssvæð- inu (A) og lýsandi tölfræði unnin úr þeim á vegum Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri (RHA). Gögnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.