Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2018, Side 32

Náttúrufræðingurinn - 2018, Side 32
Náttúrufræðingurinn 112 uppbygging vega í tengslum við virkj- anir er á þennan hátt lögð til grund- vallar bættu aðgengi og þetta aðgengi er talið ferðaþjónustunni til tekna verður áfangastaðurinn sérstöðulaust viðfang, tæknilegt framkvæmdaratriði. Að sitja á endanum uppi með slíkt verðmæta- mat á ferðamannastað er áhyggjuefni þar sem þannig eru slitin öll þau vensl sem móta staðinn. Með því að slíta þessi vensl öðlast allar breytingar á stað lög- mæti í sjálfu sér, þær verða sjálft mark- miðið.62 Í tilfelli víðerna og framkvæmda þar fer málið að snúast um aðgengi aðgengisins vegna. Áfangastaðir sem eru tengdir með vegum og greindir eftir á sem áhuga- verðir staðir, þeir verða þannig hluti þeirra markmiða sem birtast til dæmis í auglýsingum Icelandair, þar sem óþægindum sem felast í upplifun af rými, tíma og stað hefur verið eytt. Til þess að forðast þessi örlög, viðhalda anda viðkomandi staðar og sérstöðu víðerna á Íslandi verður ferðaþjón- ustan sjálf á hverjum stað að taka yfir feril vöruvæðingar með því að skapa vöru úr kostum hvers svæðis. Bent hefur verið á aðrar hugmyndir um landnýtingu í Ófeigsfirði, svo sem að gera landið að þjóðgarði58 eða áfanga- stað vel skipulagðra göngu- og sjóferða og menntaferðaþjónustu (e. academic tourism) fyrir erlenda nema.63 Þessar hugmyndir snúa að uppbyggingu á forsendum byggðarlagsins, sögu þess og sérstöðu, ekki síst uppbyggingu sem gefur innsýn í sambúð manns og náttúru fyrr og nú. Hér er sleginn sá tónn sem glymur nú sífellt hærra um hve samofin við erum umhverfi okkar.64 Hugmyndir um uppbyggingu á forsendum ferða- þjónustu og sérstöðu hvers staðar má einnig lesa út úr rannsóknum ramma- áætlunar þar sem talað er um að lélegir vegir haldi fjöldanum burtu og skapi þar með ákveðna eftirsóknarverða upp- lifun. Áhersla á samspil aðgengis og hvata, sem og sérstöðu staða, þýðir að við þurfum að gera ráð fyrir skapandi innleggi ferðamanna, horfa til þess hvað þeir líta á sem eftirsóknarverða áfanga- staði og hvernig þeir gera það, og rýna hvernig sú sýn mótar hugmyndina um áfangastaðinn Ísland. Með því að gera ráð fyrir innleggi ferðamanna og með því að setja ferðaþjónustu í forgrunn er hægt að auka vægi náttúruverndar og búsetusjónarmiða og skapa áfangastaði á forsendum ferðamanna og heima- fólks. Til að ná hylli ferðamanna verður ferðaþjónustan þó að vöruvæða við- komandi áfangastað og því er hætta á að atvinnugreinin leiki tveimur skjöldum þegar kemur að náttúruvernd. Þá þyrfti að rannsaka hvernig mat á umhverfisáhrifum vegna virkjunar- framkvæmda gæti litið út ef markmiðið er að ná raunverulega utan um náttúru- upplifun gestanna, sem og væntingar heimafólks, án þess að vöruvæða og markaðssetja náttúru. Það er efni í aðra grein og frekari rannsóknir. Íslensk víðerni og lítt röskuð nátt- úra er það sem íslensk ferðaþjónusta selur; kjarninn í ímynd landsins og meginhvati gesta sem hingað koma. Hefðbundin sýn í ferðaþjónustu væri sú að til að þessi vara skili sem mestum arði þurfi að skapa að henni sem best aðgengi. En því meira sem aðgengið er, þeim mun hraðar missir varan sér- stöðu sína. Einnig er hægt að byggja vörur á óaðgengileika og sérstöðu, en til þess þarf ferðaþjónustan sjálf að hafa frumkvæði. Ef virkjunaraðilar verða leiðandi drifkraftur í að skapa aðgengi að víðernum og lítt röskuðum nátt- úrusvæðum er ljóst að smám saman grefur undan sérstöðu þessara svæða. Ferðaþjónustan sjálf þarf að hafa for- ystu um það hvernig aðgengið þróast á forsendum þeirrar vöru sem skal bjóða á hverjum stað. Greinin þarf því að vera forvirk, móta sér stefnu um nýtingu lítt raskaðra náttúrusvæða og víðerna og láta ekki ginnast af gylliboðum um aðgengi aðgengisins vegna. Víðerni eru hins vegar vandmeðfarin auðlind fyrir ferðaþjónustuna og verða auðveldlega vöruvæðingu að bráð með of miklum fjölda ferðamanna. ABSTRACT Harnessing destinations. The role of improved access due to energy utilization in mak- ing for a tourist destination This article details the changes wrought on destinations in Icelandic nature as access to them is improved when energy resources there are harnes- sed. Energy installations, be they hydro- or geopower, are usually accompanied by road infrastructure improvements improving access to till then wilderness areas. This fact is generally publicised as a positive side effect for tourism and recreation. Studies however show that wilderness destinations that become accessible like this will appeal to certain types of tourists and repel others. The aim of this article is to add depth to these studies by exploring the dynamics of destination changes due to power plant development. Literature on the comm- odification of nature and social goods will be analysed and exemplified in current energy development proposals in Iceland. The article builds on ava- ilable research analysing the impact on tourism and recreation of energy development of the Hengill area near Reykjavík, and proposed power plant in Ófeigsfjörður, NW-Iceland, and several proposals studied in the third phase of the master plan for geothermal and hydropower development in Iceland. That analysis along with relevant liter- ature underpins the finding that the tourist industry itself should best guide where access is to be promoted. If not wilderness sites will lose their aura of uniqueness. At the same time the tourist industry must recognise its own role in the commodification of wildernesses and thus the industry’s dual edged role when it comes to nature protection.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.