Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2018, Side 56

Náttúrufræðingurinn - 2018, Side 56
Náttúrufræðingurinn 136 Á 3. mynd má sjá hvernig styrkur kísils sveiflast yfir árið og þar má sjá örlitla aukningu kísilstyrks í byrjun ágúst, lík- lega vegna minni virkni kísilþörunga í júlí og fyrri hluta ágústmánaðar áður en haustblóminn hefst. Svipaða sveiflu má sjá í styrk nítrats (NO3) á 4. mynd eins og lýst er í kaflanum um styrk leystra næringarefna. Skeljar kísilþörunga falla til botns þegar þörungarnir deyja og mynda þar þykkt teppi af kísilgúr. Það er að samsetningu 55% kísilskeljar, 11% lífrænt efni og um 30% sandur/gjóska. Áður en kísilgúrvinnsla hófst var setið þykkast 9,4 m í Ytriflóa en að meðaltali 4,2 m.9 Rannsókn á samsætum kísils í Mývatni hefur sýnt að kísilskeljarnar leysast upp að hluta eftir að þörungur- inn deyr og getur sú leysing staðið undir allt af 30% af leystum kísli í vatn- inu yfir hásumarið, og að meðaltali um 3,7% af leystum kísli yfir árið.19 Ljóstil- lífun krefst einnig annarra aðalefna í svolitlum mæli, svo sem klórs (Cl), kal- íums (K), kalsíums (Ca), magnesíums (Mg) og brennisteins (S) en áhrifa af upptöku þeirra efna gætir ekki í styrk efnanna í vatninu (3. mynd). Styrkur kalsíums (Ca), magnesíums (Mg), klórs (Cl), flúors (F), brennisteins (S-total og SO4) breyttist lítið yfir árið (3. mynd). Aðalefnasamband brenni- steins er súlfat (SO4) í fersku, köldu yfir- borðsvatni. Hins vegar víkur styrkur SO4 í Mývatni frá heildarstyrk brennisteins (S-total) og mælist hærri en heildar- styrkurinn yfir sumartímann. Munur- inn er sýndur á 3. mynd sem „non SO4- S“. Ekki er ljóst af hverju þetta stafar en margt bendir til þess að lífríkið hafi áhrif á efnaform brennisteins. Munurinn á S-total og SO4 var mestur þegar styrkur á leystu lífrænu kolefni (DOC), lífrænu köfnunarefni (DON) og lífrænum fos- fór (DOP) var mestur (1. viðauki, 3. og 4. mynd). Í niðurstöðum doktorsverkefnis Rebeccu Neely,21 sem byggist að nokkru leyti á þessari rannsókn, kemur fram að mikið safnast fyrir af brennisteini innan vatnsins miðað við það magn sem rennur til vatnsins og frá, og að tillífun og virkni rotgerla á botni vatnsins hafa mikil áhrif á styrk og samsætur brennisteins. Styrkur natríums (Na) minnkaði mikið í apríl og maí en jókst svo aftur (3. mynd). Á sama tíma varð lítil breyting á klórstyrk í Mývatni. Natríum er auðleyst efni sem er ættað úr sjó og bergi. Reikn- ingar byggðir á hlutfalli leysts Cl og bórs (B) í vatnssýnunum sýna að klóríð í útfalli Mývatns í Geirastaðaskurði er úrkomuættað að meðaltali um 81%, og bergættað að 19%.30,31 Sams konar reikn- ingar í Laxá sýna 96% úrkomuættað Cl og 4% bergættað. Ofan við söfn- unarstaðinn í Laxá við Helluvað hafa Kráká og Sortulækur blandast útfalls- vatni úr Mývatni við Geirastaðaskurð. Mólstyrkur Na í úrkomu er rétt ríflega helmingur af styrk Cl32 og hár styrkur Na í Mývatni miðaður við styrk Cl stafar líklegast af innstreymi jarðhitavatns í Mývatn. Vorleysingar valda innstreymi snjóbráðar með lágt hlutfall Na:Cl miðað við hlutfall þess í grunnvatninu, og því minnkar styrkur Na skyndilega á vorin (2. mynd). Styrkur leystra næringarefna Grunnvatnsstraumarnir sem falla í Mývatn bera með sér mikið af bergætt- uðum efnum sem nýtast lífríkinu, svo sem kísli og fosfór (P).7,11,25,26 Straum- arnir bera líka með sér köfnunarefni (N) sem er að mestu úrkomuættað en einnig er jarðhitavatn oft tiltölulega ríkt af ammóníum (NH4). 33 Samkvæmt rann- sóknarniðurstöðum14,16 ber grunnvatns- streymi í Mývatn aðeins 20% af P og 4% af N sem þarf til að halda uppi mældri frumframleiðni í vatninu. Það sem upp á vantar eru þau næringarefni sem eru í hringrás innan vatnsins og efni sem ber- ast frá andrúmslofti, því auk næringar- efna sem streyma inn með grunnvatni er botnset Mývatns ríkt af næringarefnum. Þau efni sem eru í meiri styrk í botn- seti en í vatnsbol reika úr botnsetinu til vatnsins þar sem þau nýtast lífverum til vaxtar.14 Viðstöðutími vatns í Mývatni er stuttur (27 dagar) og frumframleiðni mikil, sem veldur því að áhrif ljóstil- lífunar á styrk leystra efna eru mjög greinileg (1. og 2. viðauki; 3. og 4. mynd). Ljóstillífun takmarkast af sólarljósi og aðgengi að næringarefnum (1. og 2. jafna). Við ljóstillífun eru tekin upp ólíf- ræn næringarefni (PO4, NO3, NO2, NH4; 4. mynd). Þau bindast og mynda líf- rænan vef sem inniheldur þau nauðsyn- legu næringarefni sem lífverurnar þurfa (1. og 2. jafna). Á sama tíma minnkar styrkur leystra ólífrænna næringarefna í vatninu (4. mynd) og þar með lífaðgengi að þeim efnum. Á meðan á ljóstillífun stendur byggist upp æ meira af lífrænum vef (táknað með C106H263O110N16P1 í 1. og 2. jöfnu) og endurspeglar styrkur líf- rænna agna í vatninu (e. POC og PON, particulate organic carbon / nitrogen, 4. mynd) og styrkur leystra næringarefna á lífrænu formi (DOC, DON og DOP, 2. viðauki og 4. mynd) myndun lífræns efnis á föstu formi. Þó situr stór hluti líf- ræns efnis eftir á botni Mývatns og berst ekki um útfall vatnsins þar sem sýn- unum var safnað. Sá hluti sem situr eftir myndar kísilgúrinn á botni vatnsins. Mesti kísilstyrkur veturinn 2000– 2001 í útfalli Mývatns var 384 µmól/l og minnsti styrkur að sumri 40 µmól/l (1. viðauki og 3. mynd). Ef rennsli er þekkt og gert er ráð fyrir að kísilstyrklækk- unin stafi einungis af upptöku kísilþör- unga á sumrin er hægt að meta nettó- frumframleiðni þeirra. Meðalrennsli í útfalli Mývatns er 33 m3/s og upptaka kísils nemur 345 µmól/l. Reikningar byggðir á þessum gögnum benda til þess að kísilþörungar taki upp um 10 þúsund tonn af kísli (Si) og nemur upp- takan 272 g Si/m2/ár. Ef gert er ráð fyrir að mólhlutföll kísils og kolefnis í kísil- þörungum séu 106:8529 nam frumfram- leiðni kísilþörunga 340 g C/m2 á árinu 2000. Jón Ólafsson gerði sams konar reikninga út frá gögnum sem safnað var 5. mynd. Samband leystu ólífrænu næringar- efnanna fosfórs og köfnunarefnis í Mývatni. DIP: leystur ólífrænn fosfór. DIN: heildarstyrk- ur leysts ólífræns köfnunarefnis. Brotna línan táknar N:P Redfield-hlutfallið (1. og 2. jafna), þ.e. það hlutfall N og P sem plöntur þarfnast. – The relationship between the total dissolved inorganic nutrients phosphorus and nitrogen in Lake Mývatn. DIP: dissolved inorganic phosphorus. DIN: dissolved inorganic ni- trogen. The broken line represents the Red- field ratio (equation 1) which is the nutrient ratio needed by plants. Laxá
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.