Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 70
Náttúrufræðingurinn
150
Náttúruminjasafnið opnar
sýningu í Perlunni
Sýning Náttúruminjasafns Íslands, Vatnið í
náttúru Íslands, var opnuð í Perlunni á 100 ára afmæli
fullveldisins, 1. desember s.l. að viðstöddum for-
seta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, Lars Løkke
Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur, Katrínu
Jakobsdóttur forsætisráðherra, Lilju D. Alfreðs-
dóttur mennta- og menningarmálaráðherra og fjölda
annarra gesta.
Um 500 gestir voru við opnunina. Börn og fullorðnir,
fræðimenn, leikmenn, stjórnmálamenn og ferða-
menn sökktu sér ofan í sýningaratriðin og létu vel af.
Safnakennarar taka til starfa í janúar 2019 og fljót-
lega verður hægt að bóka heimsóknir á sýninguna
frá skólum og öðrum hópum.
Á næstu opnum má lesa ávarp Hilmars J. Malmquist
forstöðumanns safnsins og sjá svipmyndir sem Viktor
Richardsson tók við opnunina.
Náttúrufræðingurinn 88 (3–4), bls. 150–157, 2018