Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 96

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 96
Náttúrufræðingurinn 176 Grikkir fornaldar veltu fyrir sér eðli alheims, lífs og sálar. Í fyrsta kafla bókar sinnar rekur Guðmundur athug- anir Aristótelesar og nokkurra sam- tímamanna hans. Þeir höfðu veitt því eftirtekt að viss einkenni lágu í fjöl- skyldum, eða virtust berast frá for- eldrum til afkvæma eða afkomenda í öðrum ættlið. Þar sem aðferðir við athuganir voru á frumstigi var eðli erfða á huldu og mynstur erfða óskilgreind. Þá trúðu menn enn á sjálfskviknun lífs, sem gengur þvert á lögmál erfða- fræðinnar. Aristóteles og Hippókrates veltu fyrir sér eðli erfða en settu fram ólíkar tilgátur: Afleiðing vökva eða efna frá foreldrum – eða verk yfirnáttúru- legra afla? Önnur spurning sem brann á Forngrikkjum var hvort erfðir væru á einhvern hátt tengdar lífsháttum einstaklinga. Með öðrum orðum: Hefur lífsstíll einstaklings áhrif á erfðir? Verða afkvæmi til að mynda stærri ef foreldrar fá góðan kost? Tilgátan um að áunnir eiginleikar erfist varð síðar kjarninn í þróunarhugmyndum Frakkans Jeans- -Baptistes Lamarcks (1744–1829). Í öðrum kafla fjallar Guðmundur um ævi hans og störf, og rekur ýtarlega frum- legar hugmyndir hans um þróun lífsins á jörðinni. Lamarcks er einkum minnst sem forvígismanni þróunarkenningar sem byggðist á erfðum áunninna eig- inleika, en hann var fjölhæfur náttúru- fræðingur og lagði mikið af mörkum bæði í grasafræði og líffræði hryggleys- ingja. Mikilvægust er sú hugmynd hans að tegundir séu ekki fastmótaðar heldur breytist í tímans rás. Með orðum Guð- mundar: „Hann frelsaði lífið bæði frá boðum guðs og takmörkunum tímans.“ Það er merkilegt skref í sögu vísindanna. Bresku náttúrufræðingarnir Charles Darwin (1809–1882) og Alfred Russel Wallace (1823–1913) komust að sömu niðurstöðu þegar þeir uppgötvuðu náttúrulegt val (e. natural selection) og hvernig það drífur þróun tegundanna. Wallace er viðfangsefni þriðja kafla bókarinnar. Hann var nær ómenntaður en víðlesinn af sjálfsdáðum. Hann fór í náttúrurannsóknaleiðangra til Suður- Ameríku og til Indónesíu þar sem hann vann fyrir sér með öflun fuglshama og annarra náttúrugripa fyrir ríka safnara. Á báðum svæðum fann hann landfræði- leg mynstur í dreifingu og eiginleikum lífvera. Til að mynda tók hann eftir því að nálægar eyjar í Indónesíu höfðu yfir- leitt svipaða tegundasamsetningu, nema á einum eyjaklasa. Þar var samsetn- ing tegunda mjög ólík milli samliggj- andi eyja, og má skipta eyjaklasanum í tvö tegundalega ólík svæði með því að draga línu í gegnum hann frá norðri til suðurs. Línan er kennd við Wallace. Þetta líflandafræðilega mynstur orsak- ast af landreki og þróun lífvera á land- svæðum á löngum jarðsögulegum tíma. Guðmundur setur skrif og starf Wallace vitanlega í samhengi við störf Darwins. Hann fjallar þó ekki frekar um hinn síð- arnefnda, enda hefur Uppruni tegund- anna verið þýdd á íslensku og einnig fjallaði Einar Árnason um hann í bók- inni Arfleið Darwins.b Margir þekkja söguna af tékkneska munknum Mendel, sem æxlaði saman ertum og afhjúpaði þannig lögmál erfða. Guðmundur bætir verulega við þá frásögn í fjórða kafla bókarinnar. Þar segir hann sérstaklega frá bakgrunni Mendels og rifjar upp spurningarnar sem hann vildi svara. Mendel var ekki efnaður og þjáðist af prófkvíða, sem var bagalegt því hann hafði áhuga á kennslu en gat ekki lokið kennarapróf- inu. Engu að síður fékk hann vinnu sem kennari og kenndi áfram eftir að hann varð munkur. Hann var svo lán- samur að komast til Vínar í nám og kynntist þar austurríkismönnunum Franz Unger (1800–1870) og Christian Doppler (1803–1853). Unger rannsakaði kynblendinga og frjóvgun plantna og er talið að Mendel hafi skipulagt tilraunir sínar til að rannsaka eðli kynblendinga, en ekki endilega til að kanna eiginleika erfða. Einnig hefur því verið haldið fram að eðlisfræðingurinn Doppler (sem dopplerhrifin eru kennd við) hafi veitt Mendel innsýn í tölulegar greiningar, sem þóttu byltingarkenndar við líf- fræðirannsóknir (og líklega einnig aðrar rannsóknir aldarinnar). Líffræðingar þess tíma héldu (eins og sumir kollegar þeirra enn í dag) að lýsing á eiginleikum lífvera væru hin einu réttu fræði, og að tölurnar ætti að eftirláta stærð- fræðingunum. Talið er að töluleg fram- setning Mendels á niðurstöðum sínum hafi átt þátt í því að samtímamenn hans vanmátu mikilvægi þeirra. Árið 1900 voru lögmál Mendels enduruppgötvuð og erfðafræðin komst aftur á skrið. Fimmti kafli fjallar um danska líf- fræðinginn Wilhelm Johannsen (1857– 1927) sem rannsakaði breytileika í hreinum línum byggs og bauna. Hreinar línur eru búnar til með því að æxla plöntu við sjálfa sig, og endurtaka það í nokkrar kynslóðir til að gera plönturnar arfhreinar um sem flest gen. Plöntu- ræktendur höfðu áttað sig á mikilvægi hreinna lína, og þær voru mikilvæg- asti efniviður erfðafræðitilrauna þeirra Mendels og Johannsens. Sá síðarnefndi er þekktastur fyrir að skilgreina hug- tökin arfgerð og svipgerð. Arfgerðin er samsetning allra gena einstaklings. Með svipgerð er á hinn bóginn átt við alla eig- inleika einstaklings. Fyrir tiltekna flugu væru það t.a.m. útlit hennar, hreyfigeta, þol við sjúkdómum og jafnvel atferli. Með skilgreiningum Johannsens var unnt að gera skýran mun á genunum og eiginleikunum sem þau hafa áhrif á. Færri vita að Johannsen sýndi fram á það að þótt margir einstaklingar hafi nákvæmlega sömu arfgerð er svipgerð b Athyglisvert er hversu lítils hugmyndir Lamarcks voru metnar á Bretlandi, og eins hversu lengi franskir líffræðingar hunsuðu þróunarkenningu Darwins og Wallace. Guðmundur Eggertsson, prófessor emeritus.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.