Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 102

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 102
Náttúrufræðingurinn 182 sýndi fram á að með bólusetningu mætti hægja á sýkingunni í lömbum. Þetta er merkileg niðurstaða og gefur vonir um að sömu aðferð megi beita gegn eyðni í fólki. Iðulega var til hennar leitað varðandi dýrasjúkdóma, einnig eftir að hún var hætt að vinna. Skoðanir hennar vógu þungt. Margrét barðist fyrir heilsuvernd fólks og húsdýra. Lífs- skoðun hennar mótaðist af samhjálp og samhug þeim sem var ríkjandi meðal fólksins á æskuslóðum hennar. Á náms- árum sínum í Bandaríkjunum kynntist hún því viðhorfi að réttur til læknishjálpar gæti verið háður því að sjúklingarnir hefðu efni á að borga fyrir sig eða hefðu tryggingar. Í þvílíku samfélagi vildi hún ekki búa og fyrirleit slík viðhorf til lífs- ins. Það varð með öðru til þess að hún hneigðist til vinstri í stjórnmálaskoðunum. Margrét var föðurlandsvinur og öflugur landvarnarmaður. Hún barðist árum saman ásamt Eydísi dóttur sinni gegn því að Landsnet legði loftlínu yfir jörðina hennar, Landakot. Þeirri baráttu lauk með sigri þeirra. Hæstiréttur dæmdi óheimilt að hefja framkvæmdir við Suðurnesjalínu á landi þeirra, sem þó hafði verið tekið eignarnámi. Með því var brotin á bak aftur hin opinbera loftlínustefna á því svæði. Margrét var tónelsk og opin fyrir nýjungum í vísindum og listum. Hún elskaði allt sem íslenskt var, landið, gróðurinn, íslenska búféð og fólkið, og örverurnar, en þótt hún fylgdist vel með á öllum sviðum mannlífsins var henni minna gefið um stjórnmálin. „Menntun er lykill að farsæld manna, en gróðafíknin er eitur. Jafnrétti er mikilvægara öðru og allir ættu að hafa jafnan rétt til náms og lífs,“ sagði Margrét. Hún var hlynnt þeirri reglu að allir ættu að fá sömu laun en ofurlaun og arðgreiðslur til þeirra sem mest ættu og síst þyrftu á að halda væru af hinu illa. Margrét var eftirminnileg og skemmtilegur samstarfs- maður en ekki allra. Hún þagði ekki yfir því sem hún taldi óhæft. Kollegar hennar og fleiri fengu að kenna á beittum athugasemdum hennar. Hún varð brautryðjandi í Háskóla Íslands, fyrsti kvenprófessorinn, og ruddi víðar brautina. Störfum Margrétar lauk ekki á Keldum eða við Háskólann. Eftir að Kýpurtilrauninni lauk vann hún flesta daga að eigin rannsóknum á rannsóknarstofunni í Ármúla, allt fram á síð- ustu mánuði, löngu eftir að hún var hætt launuðum störfum, og fór á milli í strætisvögnum eða gekk. Margrét var fjölhæfur dugnaðarforkur sem aldrei tók sér frí. Margrét bjó á Keldum meðan hún sinnti rannsóknum þar og börnin hennar tvö, Guðni og Eydís, léku sér í túninu við stöðina og urðu vinir okkar starfsmanna þar. Ég sótti ráð til Margrétar og við bárum saman bækur um varnir gegn smit- hættu af innflutningi fyrir búfé og fólk. Margrét var hófsöm í líferni, hlóð ekki undir sig og vildi ekki láta aðra hafa fyrir sér. Hún kunni ógrynni af vísum, kvæðum og sálmum. „Allt sem er rímað festist í höfðinu á mér,“ sagði Margrét. Hún var gamansöm, hagorð sjálf, hnyttin og hittin. Við vorum í afmæli Tilraunastöðvarinnar að Keldum. Vil hlið okkar stóðu tveir Pálar, tveir Þorsteinar, þrír Halldórar og fjórir Guðmundar. Það var annars undarlegt hve margir nafnar söfnuðust að Keldum. Ég fór að ræða um þetta við Margréti. Þá segir hún: Kátt er á afmæli Keldusvína, kampavíni þau hella í sig. Pálarnir láta nú ljós sitt skína, líklega komnir á efsta stig. Glaðir og reifir Guðmundar glösunum klingja hér og þar. Sigurður Sigurðarson dýralæknir Margrét á Núpshlíðarhálsi 2016. Keilir og Vatnsleysuströnd í baksýn. Ljósm. Hallgrímur Arnarson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.