Fréttablaðið - 20.04.2019, Blaðsíða 2
Þetta eru svaka-
legar tölur.
Hallgrímur Kristinsson,
stjórnarformaður
FRÍSK
Veður
Suðaustan 10-18 m/s, hvassast V-
lands. Þurrt NA-til. Víða sunnan 10-
15 seinni partinn. Hiti 7 til 16 stig.
Suðvestan 8-15 og skúrir S- og V-til í
dag. Hiti 3 til 12 stig. SJÁ SÍÐU 30
ÁVALLT SÓL SKÍN
KANARÍ
VERÐ FRÁ 75.900 KR.
NÁNAR Á UU.IS
ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS
Ólöglegt bingó
Líkt og undanfarin ár bauð Vantrú upp á bingó á Austurvelli í gær, föstudaginn langa. Þótt slíkt athæfi sé ólöglegt verður að teljast ólíklegt að
bingógestir eða -aðstandendur hafi verið látnir gista fangaklefa í nótt. Ef til vill gæti þetta orðið síðasta ólöglega páskabingó Vantrúar. Frumvarp
dómsmálaráðherra er nú fyrir þingi um breytingar á lögum um helgidagafrið. Ef frumvarpið er samþykkt verður bingóið löglegt. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
TÆKNI Fyrstu þremur þáttunum af
Atvinnumönnunum okkar, sjón-
varpsþáttum Stöðvar 2 þar sem
Auðunn Blöndal tekur íslenska
atvinnumenn í íþróttum tali, hafði
verið hlaðið niður samtals 9.949
sinnum á niðurhalssíðunni deildu.
net í gær. Fyrsta þætti áttundu
þáttaraðar hinna geysivinsælu
HBO-þátta Game of Thrones, sem
sýndir eru á Stöð 2, hafði verið hlað-
ið niður samtals 6.723 sinnum en
þátturinn var fyrst sýndur aðfara-
nótt mánudags.
Þetta segir Hallgrímur Kristins-
son, stjórnarformaður Félags rétt-
hafa í sjónvarpi og kvikmyndum
(FRÍSK), að sé óþolandi. „Það segir
sig sjálft í svona litlu samfélagi eins
og okkar að þetta eru svakalegar
tölur.“ Hallgrímur segir það verst
þegar um íslenska framleiðslu er að
ræða. „Efni sem unnið er af Íslend-
ingum fyrir íslenska peninga. Þá er
það auðvitað mikill skaði.“
Niðurhal sem þetta heftir fram-
leiðslu á öðru íslensku efni, að mati
Hallgríms. Þegar fjöldi sem þessi
sækir íslenskt efni og borgar ekki
fyrir það fást minni tekjur og því er
minna fjármagn til svo hægt sé að
framleiða meira efni.
„Þessi síða er náttúrulega, eins og
alþjóð veit, rekin af Íslendingum
og hefur verið sérstaklega nýtt af
Íslendingum til að sækja sér íslenskt
efni. Það væri auðvitað ósk okkar að
lögreglan myndi taka sig til og rann-
saka þetta af einhverju viti,“ segir
Hallgrímur.
Aukinheldur segir hann að síðan
hafi fengið að vera óáreitt í mörg ár.
„Hún hefur verið kærð en lögregla
hefur aldrei tekið af skarið og rann-
sakað þetta af neinu viti. Við höfum,
því miður, ekki heimildir eða tök á
Þúsundir hlaða enn
niður sjónvarpsefni
Atvinnumönnunum okkar og Game of Thrones hlaðið niður þúsundum
skipta á deildu.net. Stjórnarformaður FRÍSK segir þetta óþolandi. Hann segir
niðurhalið bitna á íslenskri framleiðslu en vera því miður ekki nýtt af nálinni.
Jon Snow hefur aldrei hlaðið neinu niður. Enda ekki til í raun og veru.
að rannsaka svona. Það er eingöngu
lögregla sem gerir það.“
Héraðsdómur hefur sett lögbann
á deildu.net en síðan er enn aðgengi-
leg og tiltölulega lítið vandamál að
nálgast þannig efni án þess að þurfa
að greiða fyrir það. Hallgrímur segir
að þetta sé gömul saga og ný.
Sé horft til eldri þátta má sjá að
Ófærð, Strákunum, Vaktaseríunum,
Stelpunum, Sönnum íslenskum
sakamálum, Stiklum, Audda og
Sveppa og fleiri þáttum hefur verið
hlaðið niður þúsundum skipta.
Ólöglegt niðurhal á Game of
Thrones er langt frá því að vera
nýtt af nálinni né einskorðast það
við Ísland. Samkvæmt greiningar-
fyrirtækinu MUSO var fyrsta
þætti þessarar nýjustu þáttaraðar
streymt ólöglega eða hlaðið niður
samtals 55 milljón sinnum á fyrsta
sólarhringnum eftir frumsýningu.
Stærsti hluti þessa ólöglega
áhorfs var í gegnum streymi, eða
77 prósent. Restin hlóð þættinum
svo niður af veraldarvefnum, líkt
og þessi tæpu sjö þúsund gerðu á
deildu.net. thorgnyr@frettabladid.is
✿ Mikið niðurhal
Atvinnumennirnir okkar 3 Game of
Thrones 8
3.
þ
át
tu
r
2.
þ
át
tu
r
1.
þ
át
tu
r
1.
þ
át
tu
r
4.058
3.673
2.218
6.723
VERSLUN ÍSAM, heildsölu- og fram-
leiðslufyrirtæki sem á Mylluna,
Ora, Kexverksmiðjuna Frón og
Kexsmiðjuna boðar 3,9% hækkun
á öllum vörum fyrirtækjanna verði
kjarasamningar samþykktir. Þetta
kemur fram í tölvupósti Hermanns
Stefánssonar, forstjóra ÍSAM, til
viðskiptavina.
Í póstinum segir líka að allar inn-
fluttar vörur muni hækka um 1,9%,
verði samningarnir samþykktir.
Samtök atvinnulífsins undir-
rituðu kjarasamninga við félög
verslunarmanna og aðildarfélög
Starfsgreinasambandsins í byrjun
apríl. Þessa dagana eru meðlimir
þessara verkalýðsfélaga að kjósa um
samninginn, en í stuttu máli gengur
samningurinn út á að hækka laun
þeirra lægst launuðu mest. Hjá VR
er atkvæðagreiðslu lokið en niður-
stöður verða ekki birtar fyrr en 23.
apríl, þegar atkvæðagreiðslu hjá
hinum félögunum er einnig lokið.
Fréttablaðið.is greindi frá því í
gær að Myllan, sem er í eigu ÍSAM,
muni hækka verð um 2,7% verði
nýir kjarasamningar samþykktir.
Nú er ljóst, samkvæmt tölvupósti
ÍSAM til viðskiptavina, að hækkan-
irnar eru enn víðtækari. Ora, Frón
og Kexsmiðjan munu hækka verð
um 3,9%, verði samningarnir sam-
þykktir auk þess sem innf luttar
vörur verða hækkaðar um 1,9%.
„Þar sem ekki er búið að sam-
þykkja kjarasamningana er hækk-
unin með fyrirvara um að þeir
verði samþykktir,“ segir Hermann
í póstinum. „Með von um skilning
og áframhaldandi góða samvinnu.“
– bg
Verðhækkanir
boðaðar vegna
kjarasamninga
HEILBRIGÐISMÁL Skaðaminnkunar-
verkefnið Frú Ragnheiður fer af stað
á Suðurnesjum í haust en talið er að
um 30 manns þar noti vímuefni í æð.
Hannes Friðriksson, formaður
Rauða krossins á Suðurnesjum,
sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að um
mikið fagnaðarefni væri að ræða.
„Þetta er þannig verkefni að þetta
er skaðaminnkandi og hefur hjálpað
þeim sem hafa leiðst út í neyslu, og
því mikilvægt að þetta sér til staðar,“
sagði Hannes.
Þarfagreining Rauða krossins
á Suðurnesjum hefur leitt í ljós að
hópurinn sem notar vímuefni í æð á
svæðinu er að yngjast. – khn
Um 30 sem nota
vímuefni í æð á
Suðurnesjum
Hannes
Friðriksson,
formaður Rauða
krossins á Suður-
nesjum
3,9%
er boðuð hækkun á vörum á
vegum fyrirtækja ÍSAM.
2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
0
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:0
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
D
6
-D
B
2
4
2
2
D
6
-D
9
E
8
2
2
D
6
-D
8
A
C
2
2
D
6
-D
7
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
1
9
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K