Fréttablaðið - 20.04.2019, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 20.04.2019, Blaðsíða 36
Laus er til umsóknar staða skólastjóra Dalvíkurskóla Dalvíkurskóli er 220 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru: Þekking og færni, virðing og vellíðan. Skólinn flaggar Grænfána og vin- nur eftir hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar. Skólastarfið byggist á teymisvinnu og að nám og kennsla sé ávallt einstaklingsmiðað með áherslu á snemmtæka íhlutun. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn til að ganga glaður til verka og leiða af dugnaði öflugt skólasamfélag með samstöðu, jákvæðni og árangur að leiðarljósi. Starfssvið: l Að veita skólanum faglega forystu og leiða þróun skólastarfs til framtíðar í samræmi við skólastefnu Dalvíkurbyggðar, Aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla lAð stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans lAð bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins. Menntunar- og hæfniskröfur: lKennaramenntun og leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi er skilyrði lFramhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- og menntunarfræða er kostur lÞekking á áætlanagerð, fjármálastjórnun og stefnumótunarvinnu er kostur lReynsla á sviði stjórnunar og faglegrar forystu menntastofnana er kostur lFrumkvæði, leiðtogahæfni og góðir skipulagshæfileikar lFramúrskarandi færni í samskiptum lGóð íslenskukunnátta og færni til að miðla upplýsingum Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra framtíðarsýn í skólamálum og er skapandi og metnaðarfullur. Staðan er laus frá 1. ágúst 2019. Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Umsókn þarf að fylgja greinargott yfirlit um nám og störf (ferilskrá), leyfisbréf til kennslu, upplýsingar um frumkvæði á sviði skólamála og annað er málið varðar (kynningarbréf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um starfið. Dalvíkurbyggð er 1900 manna sveitarfélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og lærdómssamfélag og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi. Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar eru með því besta sem gerist hér á landi, jafnt sumar sem vetur. Dalvíkurbyggð er heilsueflandi samfélag. Sveitarfélagið er framsækið og leggur metnað sinn í að veita íbúum góða þjónustu Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2019 Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar, netfang gisli@dalvikurbyggd.is eða í símum 4604916 og 8631329. Umsókn ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi skal sent á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is. Skólastjóri Dalvíkurskóla Samstarfsnet opinberu háskólanna (sjá samstarf.hi.is) óskar eftir að ráða persónuverndarfulltrúa í fullt starf, í samræmi við VI. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Að samstarfsnetinu standa allir opinberu háskólarnir, þ.e. Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskólinn á Hólum. Persónuverndarfulltrúi mun verða ráðinn sem starfsmaður við Háskóla Íslands og hafa þar starfstöð sína, en mun sinna verkefnum á starfssviði sínu við alla opinberu háskólana. Um hæfni persónuverndarfulltrúa, stöðu hans og verkefni gilda að öðru leyti fyrirmæli 37.-39. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 frá 27. apríl 2016. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 13. maí nk. Sótt er um á vefsíðu Háskóla Íslands undir laus störf. Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn: I. Ferilskrá II. Bréf þar sem áhuga á starfinu er lýst og fjallað um hvað umsækjandi telur sig geta lagt af mörkum til þess III. Staðfest afrit af prófskírteinum – IV. Upplýsingar um umsagnaraðila. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Félags háskólakennara. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. Nánari upplýsingar um starfið veitir Magnús Diðrik Baldursson, skrifstofustjóri rektorsskrifstofu Háskóla Íslands, mb@hi.is, sími 525 4206. HELSTU VERKEFNI: • Vinna að verkefnum vegna innleiðingar nýrrar persónuverndarlöggjafar. • Umsjón með og eftirfylgni við persónuverndarstefnur opinberu háskólanna og framfylgni við persónuverndarlöggjöf. • Ráðgjöf um túlkun á löggjöf um persónuvernd og úrlausn álitaefna. • Fræðsla til stjórnenda og starfsmanna opinberu háskólanna. • Samskipti og samstarf við Persónuvernd og önnur stjórnvöld. • Samskipti við skráða einstaklinga um mál sem tengjast vinnslu á persónuupplýsingum þeirra. • Önnur verkefni að beiðni æðstu stjórnenda opinberu háskólanna. MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR: • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði. • Sérþekking á innlendum og evrópskum persónuverndarlögum. • Góð samstarfs- og samskiptahæfni. • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í vinnubrögðum. • Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. • Skilningur á öryggis- og upplýsingatæknimálum er kostur. • Reynsla af störfum í stjórnsýslu er kostur sem og þekking á starfi háskóla. PERSÓNUVERNDAR- FULLTRÚI Sumarstarf - hópstjóri Ertu í leit að áhugaverðu og gefandi starfi í sumar með möguleika á framlengingu?   Stígamót leita að skipulögðum og kraftmiklum einstaklingi til þess að leiða teymi fjáröflunarstarfsfólks í sumar. Verk- efnið miðar að því að kynna starf Stígamóta og bjóða fólki að leggja málefninu lið. Starfið felst í skipulagningu á vinnu hópsins sem og þátt- töku í götukynningu sem fram fer víðsvegar á höfuðborgar- svæðinu þar sem gengið er í hús. Vinnutíminn er frá kl. 13-21 mánudaga til fimmtudaga.   Ef þú… • ert mjög sjálfstæð(ur) í vinnubrögðum • vilt vinna að réttlátara samfélagi • ert þessi framfærna og opna týpa   ...þá er hópstjóri fjáröflunar hjá Stígamótum eitthvað fyrir þig!   Frekari upplýsingar gefur Steinunn í síma 562-6868. Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á steinunn@stigamot.is en umsóknarfrestur er til 2. maí. Félagsráðgjafi Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir stöðu félagsráðgjafa lausa til umsóknar. Um er að ræða 100% starf. Umsækjandi hafi starfsréttindi félagsráðgjafa MA Verkefni félagsráðgjafa taka til almennrar félags- og skólaþjónustu, barnaverndar og stuðningsþjónustu sveitarfélaga. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félagsráðgjafafélags Íslands. Skrifleg umsókn er tilgreini menntun, starfsferil, 1-2 umsagnaraðila ásamt prófskírteinum, starfsleyfi og sakavottorði berist undirrituðum sem jafnframt veitir frekari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 24. maí 2019 Sveinn Þór Elinbergsson, forstöðumaður Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbær sveinn@fssf.is; s. 430 7800, 861 7802 Ertu góður sölumaður? Við leitum að sölumanni, eða sölukonu, sem býr yfir góðri sölutækni, á auðvelt með að vinna sjálfstætt og býr yfir góðum hæfileikum í mannlegum samskiptum. Viðkomandi þarf að geta starfað skipulega með öðrum og veitt ábyrga þjónustu í starfi sínu. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af starfi á fasteignasölu og séu löggiltur fasteignasalar. Umsóknum skal skila til Finnboga Hilmarssonar; finnbogi@heimili.is fyrir 25. apríl, sem jafnframt veitir allar frekari upplýsingar. 2 0 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :0 6 F B 0 8 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 D 7 -0 7 9 4 2 2 D 7 -0 6 5 8 2 2 D 7 -0 5 1 C 2 2 D 7 -0 3 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 0 s _ 1 9 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.