Fréttablaðið - 20.04.2019, Blaðsíða 52
Ef vara er mjög ódýr
getur verið að
kostnaður við innflutn-
ing hennar sé meiri en
hún kostar.
Oft er hægt að gera veru-lega góð kaup á netinu og ekki er verra að fá vöruna
senda heim að dyrum. Áður en
lokaskrefið er tekið og gengið frá
greiðslu er nauðsynlegt að skoða
vel skilareglur og einnig hvaða
gjöld þarf að borga þegar verslað er
í erlendum vefverslunum. Annars
er hætt við að kaupandinn sitji
uppi með vöru sem hann hefur
ekkert að gera með, fyrir hærra
verð en hann gerði ráð fyrir.
Allar vörur eru tollskyldar
Skynsamlegt er að skoða vel
heimasíðu Tollstjórans en þar má
finna upplýsingar um hvað gott
er að hafa í huga þegar vörur eru
pantaðar frá útlöndum í gegnum
netið. Þar kemur meðal annars
fram að allar vörur sem fluttar
eru til landsins eru tollskyldar án
tillits til verðmætis nema annað sé
sérstaklega tekið fram í lögum og
reglugerðum, svo sem vegna toll-
fríðinda tækifærisgjafa eða ferða-
manna. Þetta merkir að allar vörur
eru tollskyldar, sama hvort þær
eru 10 króna virði eða 100 þúsund
króna virði.
Eru gjöld hærri en verðið?
Áður en vara er pöntuð á netinu
þarf að gera ráð fyrir því að hún
kosti meira þegar hún er komin til
landsins en verðmerking seljanda
segir til um. Verð eru stundum
gefin upp án flutnings- og pökk-
unarkostnaðar. Ef vara er mjög
ódýr getur verið að kostnaður við
innflutning hennar sé meiri en
hún kostar. Það getur margborgað
sig að nota reiknivél á heimasíðu
tollsins til að áætla innflutnings-
gjöld svo endanlegur reikningur
komi ekki á óvart.
Er netverslunin örugg?
Hvað öryggisatriði varðar er ráð
að kanna bakgrunn þess sem selur
vöruna á netinu áður en korta-
númer og aðrar upplýsingar eru
gefnar upp. Hægt er að gúggla
umsagnir um viðkomandi net-
verslun og skoða hvort hún hafi
fengið góða eða slæma dóma ann-
arra kaupenda.
Það á aldrei að borga fyrir vöru
með kreditkorti hjá netverslun
sem ekki er með svokallaðan
SSL-staðal en hann er notaður af
Netið og öryggið
Sífellt fleiri kjósa að versla á netinu, enda þægilegt að fá
vöruna senda heim að dyrum. Mikilvægt er að skoða vel
skilmála og reglur áður en gengið er frá pöntuninni.
Ætli sé stutt í að þessi blái hnappur komi á lyklaborð fartölvunnar? Stórt er spurt. NORDICPHOTOS/GETTY
Gott ráð er að kanna bakgrunn þess sem selur vöruna.
Skynsamlegt er að skoða heimasíðu Tollstjórans en þar má finna upp-
lýsingar um hvað gott er að hafa í huga þegar vörur eru pantaðar.
viðurkenndum netverslunum. Það
á heldur aldrei að gefa upp kredit-
kortanúmer í tölvupósti. Með því
er hættunni boðið heim og fólk
getur orðið fyrir stórtjóni sé það
gert.
Til að fá upplýsingar um verslun
á netinu er hægt að spyrjast fyrir
hjá vinum og vandamönnum eða
senda inn fyrirspurn á Facebook-
hópa sem snúast um netverslun.
Svo er sumt harðbannað að flytja
til landsins, jafnvel þótt hægt sé að
kaupa það á netinu. Má í því sam-
bandi nefna dýr og plöntur, lyf til
lækninga og að sjálfsögðu vopn.
Upplýsingar m.a. fengnar af vef-
síðunni www.tollur.is.
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
ÍSLENSK HÖNNUN
NETVERSLUN WWW.LINDESIGN.IS
FANGNAR 10 ÁRA AFMÆLI
Job.is
GLÆNÝ OG
FERSK STÖRF
Í HVERRI VIKU
Þú finnur draumastarfið á
6 KYNNINGARBLAÐ 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RNETVERSLUN
2
0
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:0
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
D
7
-2
F
1
4
2
2
D
7
-2
D
D
8
2
2
D
7
-2
C
9
C
2
2
D
7
-2
B
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
1
9
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K