Fréttablaðið - 20.04.2019, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 20.04.2019, Blaðsíða 14
Staðan var bara þannig að það var annaðhvort að fara í aðgerð- ina eða hætta. Ég er algerlega meiðslalaus núna eftir að hafa spilað meidd í um það bil ár og komið mér í gegn- um það með sterasprautum og verkjalyfjum. Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu. Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu og ágætan hagnað. Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða möguleika á veltuaukningu bæði í verslun, heildverslun og verktöku. Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða samhenta fjölskyldu. Fyrirtæki með mikla möguleika Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu. Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu og ágætan hagnað. Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða möguleika á veltuaukningu bæði í verslun, heildverslun og verktöku. Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða samhenta fjölskyldu. Fyrirtæki með mikla möguleika Fyrirtæki með mikla möguleika Gamalgróin og vel þekkt raftækjaverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu. Mikill eigin innflutningur á ýmis konar rafmagnsvörum sem gefur töluverða möguleika á veltuaukningu bæði í verslun og heildverslun. Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða samhenta fjölskyldu. Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu. Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu og ágætan hagnað. Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða möguleika á veltuaukningu bæði í verslun, heildverslun og verktöku. Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða samhenta fjölskyldu. Fyrirtæki með mikla möguleika FÓTBOLTI Fyrir um það bil hálfu ári lauk Guðbjörg Gunnarsdóttir, landsliðsmark vörður í k natt- spyrnu, keppnistímabilinu í Sví- þjóð með liði sínu Djurgården. Guðbjörg var sárþjáð í hásin og hafði nýverið farið úr axlarlið þegar tím bilinu lauk. Ljóst var að hún þyrfti að fara í aðgerð á hásin ætlaði hún að halda knattspyrnu- ferli sínum áfram og geta sinnt dag- legum athöfnum á þess að vera með sáran verk. Nú hálfu ári síðar hefur aðgerð, mikil vinna hennar og endurhæfing með hæfu sjúkrateymi orðið til þess að henni líður mun betur líkamlega. Næsta verkefni er að vinna sér sæti Allt annað líf eftir aðgerðina Guðbjörg Gunnarsdóttir, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, gekkst undir aðgerð vegna þrálátra meiðsla á hásin síðasta haust. Hún segir líkama sinn vera á allt öðrum stað en fyrir hálfu ári. í byrjunarliði Djurgården á nýjan leik. „Staðan var bara þannig að það var annaðhvort að fara í aðgerð á hásininni eða hætta í fótbolta. Fyrst var það þannig að verkurinn haml- aði því að ég gæti hlaupið eðlilega og fótavinnan var orðin brengluð. Undir lok síðasta tímabils var það þannig að mig sárverkjaði bara við það að labba. Það bætti svo ekki úr skák að hafa farið úr axlarlið,“ segir Guðbjörg um aðdraganda þess að hún fór í aðgerð í lok október á síðasta ári. „Eftir að hafa farið í aðgerðina tók við langt og strangt endurhæfingar- ferli og ég ákvað að leita um leið til sjúkraþjálfara sem sérhæfir sig í axlarmeiðslum markvarða. Hún tók í rauninni bara allan líkamann í gegn og ég fór að gera æfingar sem ég hef ekki gert áður og hafa gert mér mjög gott. Ég er algerlega meiðsla- laus núna eftir að hafa í raun spilað meidd og komið mér í gegnum það með sterasprautum og verkjalyfjum í ár áður en ég fór í aðgerðina,“ segir hún um bataferlið. „Ég spilaði leik með varaliðinu í vikunni og fann ekkert fyrir meiðslum þrátt fyrir að spilformið væri að sjálfsögðu ekki gott. Ég hefði alveg getað spilað í fyrstu umferð- inni um síðustu helgi en þjálfara- teymið ákvað að hvíla mig aðeins lengur. Svo hefur bandarískur markvörður sem leyst hefur mig af hólmi bara leikið mjög vel þann- ig að ég skil það vel að það sé erfitt að hrófla við byrjunarliðinu þegar hlutirnir hafa gengið vel,“ segir þessi margreyndi markvörður um stöðu mála þessa stundina en hún sat allan tímann á varamannabekk Djurgården þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Piteå í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar. „Það er hins vegar mjög erfitt að bíða þolinmóð eftir að hafa verið fjarverandi svona lengi, ég viður- kenni það alveg. Nú þarf ég hins vegar bara að æfa vel og sýna það og sanna að ég á heima í byrjunar- liðinu. Mér finnst ég persónulega eiga heima í byrjunarliðinu í þessu liði en það er ekki nóg að mér finn- ist það, ég þarf að sýna það í verki sömuleiðis. Ég geri mér vonir um að vera í markinu þegar við mætum Linköping í deildinni á mánudaginn kemur,“ segir Guðbjörg enn fremur um stöðu sína. Tímabilið í fyrra olli Djurgården töluverðum vonbrigðum og var gengi liðsins talsvert undir vænt- ingum. Liðið lenti í áttunda sæti deildarinnar og var þegar upp var staðið einungis þremur stigum frá fallsæti. Guðbjörg segir að sú niður- staða hafi ekki endurspeglað styrk liðsins. „Við erum með lið sem getur unnið öll lið þegar við spilum af eðlilegri getu. Það sem háir okkur hins vegar er að það hefur verið mikil velta á leikmannahópnum þau fjögur ár sem ég hef verið hér. Það eru tíu leikmenn að koma og fara á hverju ári og sárafáir leik- menn sem eru hér enn síðan ég gekk til liðs við félagið. Nú hefur það bæst við að tveir lykilleikmenn í varnar- línunni slitu krossbönd í upphafi leiktíðar. Við höfum fyllt þau skörð með leikmönnum sem eru að koma nýir til liðsins. Það tekur tíma að slípa það til en við eigum að geta gert betur en á síðasta tímabili ef við náum upp liðsheild og spilum eins vel og hæfileikar leikmanna liðsins segja til um,“ segir hún um framhaldið. hjorvaro@frettabladid.is Guðbjörg Gunnarsdóttir er á allt öðrum og miklu betri stað líkamlega núna en síðasta haust. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT Spá Fréttablaðsins fyrir Pepsi Max-deild karla 2019 Hitað verður upp fyrir deildina á Fréttablaðið.is PEPSI MAX DEILDIN 2019 1. ? 2. ? 3. ? 4. ? 5. ? 6. ÍA 7. KA 8. Fylkir 9. Víkingur 10. ÍBV 11. Grindavík 12. HK Fréttablaðið spáir því að ÍA sem er nýliði í deildinni nái að velgja toppliðum deildarinnar undir uggum og hafni í sjötta sæti deildarinnar þegar upp verður staðið. Skagamenn hafa leikið vel á undirbúningstímabilinu og fóru alla leið í úrslit Lengjubikarsins þar sem liðið tapaði fyrir KR. Frammi- staðan í vetur gefur góð fyrirheit. ÍA hafnar í 6. sæti Nýju andlitin Fylgstu með þessum Tryggvi Hrafn Haraldsson er kominn aftur á Skagann eftir veru sína í Svíþjóð. Skagamenn vonast til þess að hann muni raða inn mörkum fyrir liðið í sumar. Tryggvi Har alds son frá Halmstad Gonzalo Zamorano frá Vík ingi Ó. Vikt or Jóns son frá Þrótti R. Óttar Guðmunds son frá Stjörnunni Tölfræði sem skiptir máli Jóhannes Karl Guðjónsson og Sigurður Jónsson hafa náð að skapa sigurhefð uppi á Skaga á nýjan leik. Þeim gekk vel í Inkasso-deildinni síðasta sumar og tóku það góða gengi inn í veturinn þar sem liðið hefur spilað vel og náð góðum úrslitum gegn sterkum liðum. Skagamenn hafa verið klókir í kaupum sínum í vetur og fengið í sínar herbúðir leikmenn sem passa vel inn í það kerfi sem þjálfarar liðsins vilja spila. Þeir pressa hátt og geta gert hvaða liðum sem er skrá- veifu með beinskeyttum sóknaraðgerðum sínum. Álitsgjafinn segir Kristján Guðmundsson GENGIÐ SÍÐUSTU SEX TÍMABIL 2018 B-DEILD ❘ 2017 12. SÆTI ❘ 2016 8. SÆTI ❘ 2015 7. SÆTI ❘ 2014 B-DEILD ❘ 2013 12. SÆTI ❘ 6 ÍA hafði betur í sex af sjö leikjum sínum í Lengj- unni. 23 Skaga-menn skoruðu 23 mörk í sjö leikjum í Lengjunni. PEPSI MAX DEILDIN 2019 1. ? 2. ? 3. ? 4. ? 5. ? 6. ? 7. KA 8. Fylkir 9. Víkingur 10. ÍBV 11. Grindavík 12. HK Fréttablaðið spáir því að KA nái ekki að bæta árangur síðustu tveggja keppnistímabila og hafni í sjöunda sæti deildarinnar þriðja árið í röð. Liðið skipti um þjálfara síðasta haust og Óli Stefán Flóv entsson stýrir nú skútunni. Félagið hefur endurheimt öfluga heimamenn sem munu þó ekki ná að fleyta liðinu upp töfluna. KA hafnar í 7. sæti Nýju andlitin Fylgstu með þessum Daníel Hafsteinsson hefur fengið vaxandi hlutverk hjá KA-liðinu síðustu ár og hann mun að öllum líkindum vera í lykilhlutverki inni á miðsvæðinu hjá KA í sumar. Almarr Ormarsson frá Fjölni Andri Fannar Stefánsson frá Val Haukur Heiðar Hauksson frá AIK Torfi T. Gunnarsson frá Fjölni Tölfræði sem skiptir máli Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvernig KA tekst upp með að aðlagast þeirri leikaðferð sem Óli Stefán Flóventsson vill spila. Eftir að hafa spilað 4-3-3 undanfarin ár mun liðið spila 3-4-3 og spila hærra uppi á vellinum en síðustu ár. Liðið hefur fengið til sín gegnheila norðanmenn til þess að bólstra hópinn aftarlega á vellinum og liðið er með flinka leikmenn í fremstu víglínu. Þetta mun hins vegar ekki duga til þess að fleyta liðinu í baráttu um sæti í Evrópukeppni eins og KA-menn hafa leynt og ljóst stefnt að. Álitsgjafinn segir Kristján Guðmundsson GENGIÐ SÍÐUSTU SEX TÍMABIL 2018 7. sæti ❘ 2017 7. sæti ❘ 2016 B-DEIILD ❘ 2015 B-DEILD ❘ 2014 B-DEILD ❘ 2013 B-DEILD ❘ 5 Elfar Árni skoraði fimm mörk fyrir KA í Lengjunni. 17 KA skoraði 17 mörk í sex leikjum í Lengjunni. 2 0 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :0 6 F B 0 8 0 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 D 7 -1 1 7 4 2 2 D 7 -1 0 3 8 2 2 D 7 -0 E F C 2 2 D 7 -0 D C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 8 0 s _ 1 9 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.