Fréttablaðið - 20.04.2019, Blaðsíða 10
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Hversu mikið
nær þarf að
komast, eða
eru þessir
kaupmenn að
mælast til
þess að þeim
verði heimilt
að starfrækja
bílalúgur?
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Alzheimersamtakanna verður haldinn
fimmtudaginn 9. maí 2019 í Hásal, Hátúni 10
og hefst hann kl. 17:00.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Vakin er athygli á að samkvæmt lögum
Alzheimersamtakanna hafa
þeir einir rétt til að sitja aðalfund sem lokið
hafa greiðslu árgjalds liðins árs.
Stjórnin
Það þykir flott að vera farsæll. Daglega flæða yfir okkur fréttir af fólki sem af undraverðu fyrirhafnarleysi skrifar metsölubækur, klífur Everestfjall, stofnar fyrirtæki og selur þau fyrir milljarða eða hleypur svo hratt að það er verðlaunað með góðmálmi um hálsinn.
Umfjöllun um afrek annarra í fjölmiðlum er eflaust
ætlað að gefa okkur hinum byr undir báða vængi; hvetja
okkur til að slökkva á Netflix, standa upp úr sófanum
og verða líka farsæl. En gerir hún það?
„Í hvert skipti sem vinur nýtur velgengni deyr
eitthvað innra með mér,“ er haft eftir bandaríska
rithöfundinum Gore Vidal. Á morgun er alþjóðlegi
nýsköpunardagurinn en þá mun veröldin, að áeggjan
Sameinuðu þjóðanna, fagna velgengni í sinni fjölbreytt-
ustu mynd. Í ljósi þess að við fögnum velgengni alla
daga ársins má velta fyrir sér hvort ekki væri nær að
beina sjónum í þennan eina dag að hinni hlið penings-
ins.
10.000 mistök
„Velgengni er aðeins hægt að öðlast með því að mistak-
ast ítrekað,“ er haft eftir iðnjöfrinum Soichiro Honda.
„Velgengni er það eina prósent vinnu manns sem er
afrakstur 99 prósentanna sem kallast mistök.“
Velgengni hljómar alltaf svo hnökralaus á síðum
blaðanna. En samkvæmt rannsóknum er raunin önnur.
Flestir þurfa að reyna og mistakast í tíu þúsund klukku-
tíma áður en velgengni er náð. Hvort sem um er að ræða
viðskiptajöfra, íþróttafólk, listamenn eða vísindamenn
tekur það viðkomandi tíu þúsund klukkustundir að
komast til metorða á sínu sviði. Bítlarnir urðu ekki
heimsfræg hljómsveit fyrr en þeir höfðu spilað á 1.200
tónleikum í tíu þúsund klukkustundir í Hamborg í
Þýskalandi. Mozart varð ekki almennilegt tónskáld
fyrr en hann hafði æft tónsmíðar í tíu þúsund klukku-
stundir. Bill Gates eyddi tíu þúsund klukkustundum af
unglingsárum sínum í að forrita á frumstæða tölvu sem
hann fékk aðgang að í gagnfræðaskólanum sínum.
Fyrir þau okkar sem, eins og Gore Vidal, finna lítinn
innblástur í afrekum annarra er hér listi yfir fimm
flopp sem kunna að vera líklegri til að koma okkur upp
úr sófanum:
1) Átta árum áður en Barack Obama varð forseti
tapaði hann svo stórt í prófkjöri fyrir þingkosningar að
hann hætti næstum í pólitík.
2) Momofuku Ando hóf starfsferil sinn á misheppn-
uðum tilraunum til að selja vefnað, vélarparta, hús og
sokka. Hann fór fyrir sparisjóði sem fór á hausinn og
lenti í fangelsi fyrir skattsvik. Í heilt ár lokaði Momo-
fuku sig inni í skúr í garðinum sínum og vann að upp-
finningu. Eftir margar misheppnaðar tilraunir varð
skyndinúðlan til. Árið 1958 komu núðlur Momofuku
fyrst á markað. Árið 2005 voru innbyrtir 86 milljarðar
potta af skyndinúðlum um heim allan.
3) Oprah Winfrey var rekin úr fyrsta starfi sínu sem
sjónvarpsþulur því hún var „algjörlega óhæf“.
4) J. K. Rowling var einstæð móðir sem barðist í
bökkum og skrifaði Harry Potter á servíettur á kaffi-
húsum á meðan barnið svaf. Þegar bókin var loks
tilbúin vildi enginn sjá hana. Í heilt ár gekk handritið
milli bókaforlaga í Bretlandi sem öll töldu barnabók
um galdrastrák glataða hugmynd. Barry Cunningham,
ritstjóri hjá Bloomsbury, sagðist loks vera til í að gefa
bókina út en sagði Rowling að fá sér alvöru vinnu því
Harry Potter væri ekki líklegur til stórræða. Allir vita
hvað gerðist næst.
5) Thomas Edison þarf vart að kynna. Skapari
ljósaperunnar með meiru gerði 10.000 misheppnaðar
tilraunir til að búa til söluvæna ljósaperu. Þegar blaða-
maður spurði hann hvernig honum hefði liðið eftir að
hafa mistekist svona oft svaraði Edison: „Mér mistókst
ekki 10.000 sinnum. Mér mistókst ekki einu sinni. Mér
heppnaðist að sýna fram á 10.000 leiðir sem ganga ekki
upp. Þegar ég er búinn að útiloka leiðir sem ekki eru
færar finn ég þá sem virkar.“
Innblásin mistök
Til stendur að gera Laugaveginn að varan-legri göngugötu, en tilraunir og útfærslur í þá átt hafa verið prófaðar undanfarin ár.Eins og endranær vakna gamalkunnar umkvörtunarraddir þegar þessi mál ber á góma. Í furðulega framsettri forsíðufrétt
Morgunblaðsins var því meira að segja haldið fram
fullum fetum að allir kaupmenn á Laugavegi sem vett-
lingi geta valdið séu á sömu skoðun: Varanleg göngu-
gata muni „stórskaða rekstur og ýta undir hnignun“.
Hægt er að búa til hvaða fyrirsögn sem er ef við-
mælendahópurinn er handvalinn. Í þessu tilviki
virðist það raunin. Viðbrögðin sýna að kaupmenn við
Laugaveg eru alls ekki á einu máli. Raunar benda fag-
legar kannanir til þess að meirihluti kaupmanna við
Laugaveg sé fylgjandi götulokunum.
Einnig er því ósvarað hvort borgaryfirvöld eigi
almennt að miða stefnumótandi ákvarðanir við hags-
muni lítilla, skipulagðra og háværra hópa, eða hvort
almennari mælikvarða eigi að nota. Það er almenn
stefna borgaryfirvalda í nánast öllum málsmetandi
borgum að þrengja að bílaumferð og setja gangandi
vegfarendur í öndvegi.
Þetta hafa hægrisinnuðustu stjórnmálamenn verið
að gera í áratugi víða um lönd. Það virðist séríslenskur
siður að rugla skilyrðislausri ást á einkabílnum saman
við hægristefnu.
Auðvitað þarf að taka tillit til kaupmanna við
stefnumótun. Gallinn í málflutningi þeirra er bara sá
að miðborg Reykjavíkur er sennilega sá borgarkjarni
í heiminum sem hvað auðveldast er að komast um á
einkabíl. Óháð því hvort bílar komist um Laugaveg
eða ekki.
Það er ofgnótt bílastæða og bílastæðahúsa, en
frá slíkum húsum þarf að ganga um 350 metra að
hámarki til að komast í verslanir. Hversu mikið nær
þarf að komast, eða eru þessir kaupmenn að mælast til
þess að þeim verði heimilt að starfrækja bílalúgur?
Hvað rekstrarvanda verslana varðar þá er það
vissulega rétt að við Laugaveg og nærliggjandi götur er
ofgnótt af tómu verslunarhúsnæði. Það er ekki sérís-
lensk þróun, heldur tengist hún alþjóðlegu munstri og
innreið netverslana. Sami vandi er uppi á Manhattan
og í miðborg Lundúna. Og meira að segja í Kringlunni
og Smáralind.
Hefðbundin verslun á undir högg að sækja. Á Íslandi
sem annars staðar. Í Reykjavík hafa skipulagsákvarð-
anir borgaryfirvalda ekki hjálpað til, en þau hafa gert
óraunhæfar kröfur um verslunarhúsnæði í nýbygg-
ingum. Þetta hefur valdið framboði umfram eftir-
spurn. Vinda þarf ofan af því.
Kvabbið í kaupmönnunum er algerlega á skjön við
raunveruleikann. Verst er þó að þeir draga upp svarta
mynd af miðbæ Reykjavíkur sem þeir sem þar eiga leið
um daglega kannast ekki við. Með því ganga þeir ekki
bara á eigin hagsmuni heldur líka kollega þeirra sem
eru á öndverðum meiði, og vinna hörðum höndum að
því að gera miðbæinn að eftirsóknarverðum sam-
komustað fyrir okkur öll og þá sem sækja okkur heim.
Brenglun
2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
0
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:0
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
D
7
-2
A
2
4
2
2
D
7
-2
8
E
8
2
2
D
7
-2
7
A
C
2
2
D
7
-2
6
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
8
0
s
_
1
9
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K