Fréttablaðið - 20.04.2019, Side 4

Fréttablaðið - 20.04.2019, Side 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið Samkvæmt okkar skilningi þá liggur það beinast við að veiðar Hvals hf. á stórhvelum hafi verið ólöglegar. Ragnar Aðalsteinsson, lögfræðingur Jarðarvina UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 jeep.is NÝR JEEP CHEROKEE PÁSKATILBOÐ ® JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY VERÐ FRÁ: 7.990.000 KR. JEEP® CHEROKEE LIMITED VERÐ FRÁ: 9.580.000 KR. Aukahlutir að verðmæti 730.000 kr. fylgja öllum nýjum Jeep® Cherokee út apríl. 30” breyting sem innifelur 3,5cm upphækkun, 30” Cooper heilsársdekk og aurhlífar. Losanlegt dráttarbeisli, gúmmímottur framan og aftan og málmlitur. ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF STJÓRNSÝSLA Hvalveiðar Hvals hf. árið 2018 voru, að mati dýravernd- unarsamtakanna Jarðarvina, ólög- legar vegna þess að veiðileyfi fyrir- tækisins var runnið út samkvæmt lögum. Lögmaður samtakanna segir margt í stjórnsýslu hvalveiða sem megi bæta. Jarðarvinir, samtök hér á landi sem berjast gegn hvalveiðum, hafa með atbeina lögfræðinga reynt að komast til botns í stjórnsýslunni á bak við hvalveiðar Íslendinga. Fréttablaðið hefur upp á síðkastið flutt fréttir af því að gögn sem Hval hf. ber að skila til Fiskistofu hafi ekki borist þangað í fimm ár og að Fiski- stofa hafi engin þvingunarúrræði til að fá gögnin afhent. Það sem Jarðarvinir benda helst á er að samkvæmt fyrstu grein laga um hvalveiðar er það skilyrði leyfis til veiða að fyrirtæki uppfylli skil- yrði til að mega stunda fiskveiðar. Í lögum um stjórn fiskveiða er gerð grein fyrir því að veiðileyfi í atvinnu- skyni falli niður hafi fiskiskipi ekki verið haldið til veiða í tólf mánuði. „Samkvæmt okkar skilningi þá liggur það beinast við að veiðar Hvals hf. á stórhvelum hafi verið ólöglegar eftir að fyrirtækið lagði niður veiðar á löngum tímum síð- astliðið veiðitímabil,“ segir Ragnar Aðalsteinsson, lögfræðingur Jarðar- vina. „Því hefði verið eðlilegast að eftirlitsaðilar hefðu stöðvað veiðar á meðan fyrirtækið endurnýjaði veiðileyfi sín. Vitað er að veiðileyfin voru ekki endurnýjuð og því voru veiðarnar að okkar mati ólöglegar og án leyfis.“ Gustað hefur um fyrirtækið og hvalveiðar þess síðustu misseri. Vitað er að í það minnsta eitt dýr sem Hvalur hf. drap á síðustu vertíð var blendingur langreyðar og steypi- reyðar. Dýraverndunarsamtök hafa bent á að Hvalur hf. hafi ekki haft leyfi til að veiða steypireyði og því sé líklegt að þar hafi fyrirtækið brotið lög. Stefnt er að því að veiðileyfi til ársins 2023 verði gefin út af hinu opinbera á næstu vikum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er ekki loku fyrir það skotið að engin stór- hveli verði veidd hér við land þar sem nægar birgðir eru til af lang- reyðarkjöti. sveinn@frettabladid.is Telja veiðileyfi Hvals hafa verið útrunnið árið 2018 Jarðarvinir telja að leyfi Hvals hf. til veiða á langreyði hafi verið útrunnið þar sem fyrir- tækið lagði niður veiðar á löngum kafla. Í lögum er kveðið á um að fiski- skip missi leyfi sitt hafi það ekki farið á veiðar í tólf mánuði samfellt. 10 aðgerðum hefur þurft að fresta á Landspítala á fyrstu mánuðum ársins vegna plássleysis á gjörgæslu Þrjú í fréttum Neyslurými, Notre Dame og kjarasamningar Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgar- svæðinu veitti frumvarpi heilbrigðisráðherra um neyslurými svarta umsögn og sagði það lýsa skiln- ingsleysi á hlutverki lögreglu. Ríkissaksóknari tekur undir gagnrýnina. Kristján Andri Stefánsson sendiherra í París sagði almenning í Frakklandi sleginn yfir stórbruna í Notre Dame dóm- kirkjunni, það hefði verið óraunverulegt að sjá kirkjuna fuðra upp með þessum hætti. Endur- reisn kirkjunnar frægu er nú þegar hafin. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR sagðist treysta félagsmönnum sínum til að taka upplýsta ákvörðun í atkvæða- greiðslu um nýjan kjarasamning. Niðurstöðurnar verða kynntar seinna í þessum mánuði, eða þegar liðsmenn annarra verkalýðsfélaga hafa gert upp hug sinn til samning- anna í atkvæðagreiðslu. Jarðarvinir berjast gegn hvalveiðum og hafa beint athygli að stjórnsýslunni kringum veiðarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/EGILL TÖLUR VIKUNNAR 14.04. 2019 TIL 20.04. 2019 36% var hlutdeild útlendinga í at- vinnuleysi í febrúar síðastliðnum. 45% Íslendinga eru mjög eða frekar neikvæð í garð laxeldis í opnum sjókvíum, sam- kvæmt könnun MMR.20% kjörsókn var í atkvæðagreiðslu VR um lífskjarasamningana. 3.600 farþegar Icelandair lentu í vand- ræðum á Keflavíkurflugvelli vegna óveðurs í vikunni. 3.940 manns gengu í hjónaband árið 2017, en sama ár skildu 1.370. 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 0 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :0 6 F B 0 8 0 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 D 6 -E E E 4 2 2 D 6 -E D A 8 2 2 D 6 -E C 6 C 2 2 D 6 -E B 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 8 0 s _ 1 9 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.