Fréttablaðið - 20.04.2019, Síða 22

Fréttablaðið - 20.04.2019, Síða 22
mjög mikið í þessu. Þau hjálpuðu mér mikið í eldhúsinu, bæði með uppskriftir og að elda. Útlend­ ingarnir áttu ekki orð þegar þeir mættu þeim. Amma var að gefa öllum hjónabandssælu og afi var að reyna að kenna þeim að borða hákarl,“ segir Unnar Helgi. „Það er gaman að hugsa um hvaðan rætur manns koma. Annar afi minn, sem er nýlátinn, átti Caruso og hann var þekktur fyrir að ná að veiða fólk inn sem var búið að borða.“ Erfitt að láta allt ganga upp Mikið hefur verið fjallað um að undan förnu að veitingastaðir í miðborginni séu að draga saman seglin, til dæmis með því að hafa lokað í hádeginu. Nokkrum stöð­ um hefur þurft að loka á sama tíma og háværar raddir í samfélaginu segja að veitingamenn séu að okra. Fram kom í máli formanns Sam­ taka ferðaþjónustunnar á fundi þingnefndar í síðustu viku að ekki væri línulegt samhengi milli fjölda ferðamanna og viðskipta, á meðan verð væri hátt færu ferðamenn frekar í Bónus en á veitingastaði. Unnar Helgi telur sig hvorki vera með einhverja töfralausn né vera í aðstöðu til að skóla aðra til. „Ég hef ætlað að koma inn á skuldsettan stað með svaka hug­ mynd og bjarga öllu. Það er ekki alltaf hægt. Ég er 29 ára gamall, ég er ekki fasteignamógúll sem getur labbað inn í banka og fengið það sem hann vill. Það er bara mjög erfitt að láta allt ganga upp árið 2019,“ segir hann og lítur niður. Er íslenskur matur of dýr? „Ég er sammála því sem aðrir veitingamenn hafa sagt um mál­ f lutning Þórarins [Ævarssonar] í IKEA.“ Þórarinn sagði í erindi á ráðstefnu ASÍ í mars síðastliðnum að verðlagning veitingastaða væri „yfirgengileg“ sem ekki væri hægt að réttlæta. „IKEA er með öðru­ vísi mat. Það er ekkert hægt að bera saman hóp af kokkum sem mæta snemma til að preppa mat við mötuneyti. En já, matur er dýr og hann getur verið ódýrari. Við sjáum hvað Þrír frakkar gerðu, það var fullt áður en þeir lækkuðu, nú er biðröð. Af hverju ekki að selja meiri mat og græða jafn mikið?“ Hann sjálfur leggur mikið upp úr því að reyna að vera eins ódýr og hægt er. „Fólk getur komið og borgað 1.490 krónur fyrir súpu og fengið fría áfyllingu. Þú mátt sitja inni frá opnun til lokunar. Ekki einu sinni IKEA býður upp á þetta.“ Aldrei þurft að henda mat Til þess að láta það ganga upp þarf hann að leggja allt undir. „Þá er ég að meina allt. Ég stend úti með prufur til að fá fólk til að koma inn. Þú sérð þetta í útlöndum, en ekki hér. Mér finnst þetta ekkert skammarlegt. Íslendingar hlæja að mér og halda að ég sé ruglaður. En ég er bara að gera það sem þarf að gera. Það er ekki hægt að koma með flott lógó og geðveika hugmynd og ætlast til að allt gerist af sjálfu sér. Þetta er mjög erfiður markaður.“ Það er ástæða fyrir því að enginn hefur rekist á auglýsingu frá Ice­ land ic Street Food. „Ég set engan pening í markaðssetningu. Ég gef um tonn af eftirréttum á mánuði. Það er mín markaðssetning.“ Á meðan Unnar Helgi talar stendur erlent par fyrir aftan hann, þau líta til skiptis á símann og á merki staðarins áður en þau ganga inn. „Við erum búin að vera í fyrsta sæti á TripAdvisor í meira en ár. Ég komst í fyrsta sæti með 77 umsagn­ ir, nú eru þær 2.400. Það er mikið af slæmum umsögnum líka, þær eru um 100. Það stingur alltaf í hjartað,“ segir Unnar Helgi og hlær. „Ég hef aldrei þurft að henda mat úr mínu eldhúsi. Aldrei, síðan ég opnaði. Það skiptir líka miklu máli hversu góðir kokkar eru í að nýta hráefnið. Ég ætla ekki að skóla neinn. Plokkfiskur er ekki fallegasti matur í heiminum, en hann getur verið góður. Góð þjónusta gerir matinn líka betri.“ Unnar Helgi og viðskiptafélagar hans á Secret Cellar reyndu þetta með áfengi, gat fólk drukkið að vild fyrir 5 þúsund krónur á meðan það hlýddi á uppistand. Viðskiptamód­ elið gekk ekki upp við þær aðstæður og í staðinn ákváðu þeir að lækka verðið á einstökum drykkjum. Íslendingar fara ekki niður í bæ Hann segir að ferðamenn eigi miðbæinn og hann hitti sjaldan Íslendinga. „Lítum til bara til árs­ ins 2007. Þá voru miklu færri á ferli í miðbænum á miðjum degi í apríl en í dag. Ég óska þess að ég gæti þjónað fleiri Íslendingum. Þeir eru bara hættir að koma í bæinn.“ Hvað myndir þú segja að hlut- fallið sé? „Að meðaltali? Ég fæ um 300 gesti á dag og hitti svona fjóra Íslendinga. Íslendingar sem koma, þeir koma síðan alltaf aftur.“ Vilja Íslendingar frekar ham- borgara og pítsur en plokkfisk? „Það kann að vera. Ég held að Íslendingar séu búnir að fá nóg af miðbænum. Fólk vill frekar fara á hverfisstaði. Við erum að sjá Von Mathús og Mathús Garðabæjar slá í gegn. Ég hef líka séð þetta á skemmtistöðunum, það er langt síðan túristarnir í North Face­jökk­ unum urðu f leiri en stelpur.“ Getur ekki níu til fimm Unnar Helgi hefur engar áhyggjur af áhrifum falls WOW air á ferða­ mannastrauminn. „Ísland hættir ekkert að verða vinsæll áfanga­ staður. Við komum bara sterkari til baka. Ég tek ofan fyrir Skúla [Mogensen] að ætla ekki að gefast upp.“ Hann tekur eftir því að ferða­ menn koma oftar en einu sinni til landsins. „Ég er að hitta fólk aftur sem kom þegar ég var að opna. Það er ótrúlegt. Það er kannski búið með norðurljósin og vill koma aftur til að upplifa miðnætursól­ ina. Við erum mjög gestrisin þjóð, við kunnum að taka á móti fólki.“ Unnar Helgi tekur veitingastaðinn Messann sem dæmi, en þeir deila húsnæði. „Þeir eru með geggjaðan mat og fólki finnst skrítið að ég mæli með þeim. Mér finnst bara að veitingamenn eigi að hjálpast að.“ Unnar Helgi hikar dálítið þegar hann er spurður um áhrif vinn­ unnar á einkalífið. „Á meðan ég get þetta, á meðan ég er þetta gamall, á meðan ég á ekki börn, þá geri ég það sem mér finnst gaman. Þetta er bæði vinnan mín og áhugamálið.“ Það er augljóst að vinnan á hug hans allan. „Ég er ekki að þessu fyrir peninga. Það skiptir mig engu máli, það sem ég græði fer í annað verkefni,“ segir hann og hikar. „Ég á kærustunni minni svo margt að þakka fyrir að leyfa mér að þrosk­ ast í þessu umhverfi. Ég er ekki níu til fimm gaur og verð það aldrei. Ég get það ekki.“ Unnar Helgi segist ekki vera að fljúga of hátt, hann sé ekki með nein lán og geri allt upp á gamla mátann. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI ÉG ER EKKI KOMINN Í AMERÍKUFLUG. ÉG ER EKKI MEÐ NEIN BANKALÁN. ÉG ER BARA MEÐ LEIGU- SAMNING OG STAÐGREIÐI ÖLL ÚTGJÖLD. „Amma og afi eiga mjög mikið í þessu. Þau hjálpuðu mér mikið í eldhúsinu, bæði með uppskriftir og að elda.“ Hér er Unnar Helgi með Óskari Henning Val- garðssyni og Kolbrúnu Karlsdóttur. Þau eru bæði 85 ára gömul en slá ekkert af í eld- húsinu. 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 0 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :0 6 F B 0 8 0 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 D 6 -E 5 0 4 2 2 D 6 -E 3 C 8 2 2 D 6 -E 2 8 C 2 2 D 6 -E 1 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 8 0 s _ 1 9 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.