Fréttablaðið - 20.04.2019, Page 25
D-vítamín þurfum
við alltaf að taka
inn á bætiefnaformi, alla
ævi, en það sér um að
líkaminn taki upp
kalkið úr næringunni.
K2-vítamín er ekki síður
mikilvægt þar sem það
sér um að binda kalkið í
beinunum.
Hrönn Hjálmars-
dóttir, heilsu-
markþjálfi hjá
Artasan
Bein-
þynn-
ing er
sjúkdómur
sem ber að
taka alvar-
lega.
D-vítamín, eða sólarvítamín-ið eins og það er oft kallað, gegnir gríðarlega víðtæku
hlutverki í líkamsstarfsemi okkar
og hafa fjölmargar rannsóknir
gefið okkur vísbendingar um
hversu alvarlegar afleiðingar
D-vítamínskortur hefur í för
með sér. Skortur D-vítamíns
þegar kemur á fullorðinsár getur
valdið beinþynningu, beinmeyru,
vöðvarýrnun og tannskemmdum.
D-vítamínskortur hjá fólki
á norðlægum slóðum
Sérfræðingar við Friedman School
of Nutrition Science and Policy
hafa birt rannsóknir sem gerðar
voru á skólabörnum í Boston og
sýndu að allt að 90% þeirra skorti
D-vítamín. Einnig kom þar fram
að þá sem eru í ofþyngd, með
dökka húð og/eða lifa á norðlæg-
um slóðum skorti oftar D-vítamín
en aðra. Þessar niðurstöður ættum
við á Íslandi ekki að hundsa þar
sem hér vantar verulega upp á að
sólin skíni nægilega mikið á okkur
og einnig eru allt of mörg börn í
ofþyngd. Við þetta má svo bæta
að landskönnun á mataræði 6 ára
barna á Íslandi frá 2011–2012 sýndi
að einungis um 25% barnanna
fengu ráðlagðan dagskammt eða
meira af D-vítamíni og var neysla
fjórðungs barna undir lágmarks-
þörf (2,5 µg/dag). Vonandi er
þessar tölur orðnar betri í dag en
það er full þörf á stöðugri umfjöll-
un þar sem þetta vítamín er okkur
svo lífsnauðsynlegt.
Byggjum upp og viðhöldum
sterkum beinum
Fyrstu 30 ár æv-
innar byggjum
við upp beinin
og því afar mikil-
vægt að við fáum
alltaf þau nær-
ingar- og bætiefni
sem þarf til að
gera beinin sterk.
Allt að þrefaldur
dagskammtur
Í september voru svo birtar niður-
stöður klínískra rannsókna (við
sama skóla) þar sem skoðað var
hvað þyrfti mikið magn í dag-
legri inntöku af D-vítamíni til að
hækka gildin hjá þeim börnum
sem mældust með skort. Í ljós kom
að stærstur hluti barnanna þurfti
að taka 2.000 a.e. (alþjóðlegar
einingar) af D-vítamíni í 6 mánuði
til að ná ásættanlegum gildum en
hámarksskammtur fyrir 9 ára og
eldri er 4.000 a.e. á dag. Þetta segir
okkur að ef um D-vítamínskort er
að ræða, dugir ekki að taka bara
ráðlagðan dagskammt, enda eru
eru þeir hugsaðir til að viðhalda
þeim gildum sem fyrir eru, ekki
til að hækka þau. Þessar niður-
stöður eiga ekki síður við um full-
orðna einstaklinga og þá í stærri
skömmtum en hjá börnum.
Hvar fáum við D-vítamín
Þetta vítamín er ekki eins og
önnur vítamín sem við getum
fengið úr fjölbreyttri fæðu en
aðeins um 10% af D-vítamíni
koma úr matnum. Sólin er helsta
og besta uppspretta D-vítamíns en
það verður til í líkama okkar vegna
áhrifa UVB-geisla sólarinnar á
húðina. Þetta gerist eingöngu
þegar hún er mjög hátt á lofti og ef
hún skín á stóran hluta líkamans.
Því er erfitt fyrir fólk á norðlægum
slóðum að tryggja sér nægilegt
magn nema kannski rétt yfir
hásumarið. Landlæknisembættið
hvetur fólk til þess að taka D-víta-
mín sérstaklega á formi bætiefna
því eins og áður kom fram er það
okkur lífsins ómögulegt að fá það
úr fæðunni eða frá sólinni nema í
takmörkuðum mæli.
K-vítamín gegn beinþynningu
Beinþynning er sjúkdómur sem
ber að taka alvarlega en til 30
ára aldurs erum við að byggja
upp beinin og það skiptir miklu
máli að beinþéttni sé góð þegar
komið er á þennan aldur. Það
eru nokkur efni sem við þurfum
nauðsynlega að fá nóg af til að
fyrirbyggja beinþynningu en
þar eru einna mikilvægust kalk,
magnesíum, D- og K-vítamín.
D-vítamín þurfum við alltaf að
taka inn á bætiefnaformi, alla ævi
en það sér um að líkaminn
taki upp kalkið
úr næringunni.
K2-vítamín er ekki
síður mikilvægt
þar sem það sér
um að binda
kalkið í beinun-
um. Nú er talið að í
mataræði okkar Vesturlandabúa
sé sjaldnast nægilega mikið magn
af þessu vítamíni til að það nái að
sinna sínu hlutverki og því þeim
mun mikilvægara fyrir marga að
fá það á bætiefnaformi.
D og K2 fyrir beinin
BetterYou DLux D+K2 munn-
spreyið inniheldur 3.000 a.e. af
D-vítamíni ásamt K2 og er það
sérstaklega hannað í þeim til-
gangi að styðja við beinheilsu.
Munn sprey er góður kostur þar
sem meltingin getur verið undir
álagi vegna ýmiss konar veikinda
og með því að úða munnspreyi
frá BetterYou út í kinn, förum
við framhjá meltingarkerfinu og
tryggjum hraða og mikla upptöku,
meiri en næst með töflum.
D+K2 fæst í apótekum, heilsu-
húsum og heilsuhillum verslana.
Það hentar grænmetisætum og
sykursjúkum, sem og þeim sem
eru á glútenlausu fæði.
Hair Volume inniheldur jurtir og bætiefni
sem sem eru mikilvæg fyrir hárið og getur
gert það líflegra og fallegra.
Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Nánar á artasan.is
Aldrei haft jafn þykkt hár
„Eftir að hafa misst allt hár í krabbameinsmeðferð
byrjaði ég að taka Hair Volume frá New Nordic.
Eftir 4-6 vikur fór hárið að vaxa aftur og ég hef
aldrei haft jafnt löng augnhár, þykkar augabrúnir
og þykkt hár eins og núna og það hvarflar ekki
að mér að hætta að taka þetta bætiefni inn.“
Edda Dungal
Hair Volume – fyrir líflegra hár
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9
2
0
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:0
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
D
7
-0
7
9
4
2
2
D
7
-0
6
5
8
2
2
D
7
-0
5
1
C
2
2
D
7
-0
3
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
8
0
s
_
1
9
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K