Fréttablaðið - 20.04.2019, Side 28
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Netverslun Pennans er með einstaklega breitt vöru úrval, allt frá smárri rekstrar-
vöru á borð við bréfaklemmur og
strokleður, yfir í eitt stærsta úrval
landsins af íslenskum og erlendum
bókum fyrir alla aldurshópa auk
heildstæðra skrifstofulausna,
húsgagna og fallegrar hönnunar-
vöru, segir Ásta María Karlsdóttir,
sölustjóri fyrirtækjasviðs Pennans.
„Vöruflokkar okkar eru misvin-
sælir eftir árstíma. Til dæmis eru
skrifstofuvörur og -húsgögn vin-
sælli í ársbyrjun og við skólasetn-
ingar, sala á gjafavöru eykst gjarnan
um fermingar, við útskriftir og í
brúðkaupsvertíð sumarsins og
bækurnar eru auðvitað sívinsælar
um jólin. En vöruúrval okkar gerir
okkur kleift að koma til móts við
eftirspurn viðskiptavina okkar,
burtséð frá því hvert tilefnið er.“
Sífellt nýjar vörur
Hún segir leit að nýjum og spenn-
andi vörum aldrei ljúka og að
starfsmenn Pennans séu stöðugt
að reyna að finna nýjar, flottar og
spennandi vörur á góðum kjörum.
„Ein þeirra sem við erum hvað
spenntust fyrir eru afar fallegir
umhverfisvænir hita- og kælibrús-
ar sem bera nafnið „Skittle Bottle“
frá enska framleiðandanum Lund
London. Við hófum sölu á þeim
fyrir skemmstu og hafa móttök-
urnar nú þegar farið fram úr okkar
björtustu vonum.“
Þægilegt ferli
Viðskiptavinirnir eru í fyrirrúmi
að sögn Ástu Maríu sem segir alla
nálgun við þá miðast út frá þæg-
indum. „Öflug leitarvélin okkar er
í sífelldri þróun og gerir fólki kleift
að finna allt sem það langar í, hvort
sem leitað er eftir vöruheiti, vöru-
númeri eða -lýsingu, annaðhvort í
heild eða að hluta. Hægt er að ganga
frá kaupum á öllum vörum sem
Penninn Eymundsson og Penninn
Húsgögn hafa upp á bjóða á einum
og sama vefnum. Viðskiptavinir
geta ýmist sótt pantanirnar í þá
verslun sem hentar þeim best eða
fengið pakkann sendan heim að
dyrum.“
Fyrirtæki sem nýta sér vefversl-
un Pennans geta haldið auðveld-
lega utan um pöntunarsögu sína.
„Þannig er t.d. einfalt að endurtaka
síðustu kaup ef sá sem sér venjulega
um að panta er frá vinnu og óvissa
ríkir um hvers konar skrifstofu-
gögn eru jafnan keypt. Fyrirtækin
sjá svo kjör sín á öllum vörum og
einfalt er að leita í vefversluninni
eftir vörulýsingum og finna þannig
hvað hentar hverjum og einum
best.“
Þjónustan aukin
Ásta María segir þau sjá fram á
gríðarlegan vöxt á næstu árum,
sérstaklega þar sem tilfærsla á
verslun frá hefðbundnum búðum
yfir í stafrænar lausnir hefur aukist
mikið á heimsvísu. „Þá skiptir
ekki máli hvort litið er til Banda-
ríkjanna, Norðurlanda eða Evr-
ópu. Bara í Bandaríkjunum hefur
netsala vaxið úr 5,1% af heildar-
viðskiptum yfir í 14,3% á áratug,
á sama tíma og vöxtur verslunar
hefur verið að meðaltali um 3,4%
á ári. Netverslun hefur hins vegar
aukist að umfangi um 15% á ári á
síðustu tíu árum.“
Hún segir þróun vefverslunar
verða mest í því að nýta notenda-
gögn (e. datamining) til að auka
þjónustu við viðskiptavini. „Þá
t.d. með þeim hætti að finna vörur
sem viðskiptavinir vita hugsan-
lega ekki að þeir þurfi ennþá, eins
og við sjáum til dæmis hjá Target,
Amazon og AliExpress. Því má
segja að mesta nýjungin sem verður
á næstu árum sé þjónusta við við-
skiptavini og hvernig gögnin um þá
eru notuð þeim til hagsbóta.“
Sjá nánar á www.penninn.is.
Netverslun Pennans er með einstaklega breitt vöru úrval, segir Ásta María Karlsdóttir, sölustjóri fyrirtækjasviðs Pennans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Penninn býður upp á allt frá smáum rekstrarvörum upp í fallegar hönnunarvörur, heildstæðar skrifstofulausnir og úrval húsgagna.
Mikið úrval
af vönduðum
ferðatöskum.
Coffee Table
er án efa
frægasta
hönnun
Isamu
Noguchi.
Eames House
Bird prýddi
hús Eames-
hjónanna í
yfir 50 ár.
Nýstárleg hönnun og skemmtilegar litasamsetningar einkenna brúsana. Marglit Ball klukkan er mjög vinsæl enda afar falleg.
Taktu for-
ystuna í
leiknum
með
Sandberg
Commander
leikja-
stólnum.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RNETVERSLUN
2
0
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:0
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
D
7
-2
0
4
4
2
2
D
7
-1
F
0
8
2
2
D
7
-1
D
C
C
2
2
D
7
-1
C
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
8
0
s
_
1
9
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K