Fréttablaðið - 20.04.2019, Síða 29
Við erum líka búin
að setja upp sam-
eiginlega körfu, svo það
sem þú setur í körfu t.d.
á ellingsen.is fer með þér
í körfu á air.is eða
skór. is, svo þú getur
gengið frá öllum kaup-
unum á einum stað.
S4S opnaði fyrstu búðina sína árið 2003, en fyrir það var fyrirtækið heildsala. Hægt og
rólega hefur þetta svo byggst upp
og Steinar Waage og fleiri búðir
hafa bæst við. Í grunninn erum
við skósalar og allt hefur þetta
snúist um skó, en fötin og allt sem
þeim fylgir komu inn með Air- og
Ellingsen-búðunum,“ segir Auður
Jónsdóttir, rekstrarstjóri net-
verslana S4S. „Í dag erum við með
fjórtán búðir og þrjár netversl-
anir. Netverslanirnar eru ætlaðar
sem gluggi inn í búðirnar og við
bjóðum upp á sömu vörurnar í
netverslununum og búðunum.“
Vönduð netverslun í
stöðugri þróun
„Kerfislega séð og hvað notenda-
viðmót varðar erum við komin
langt í netverslun,“ segir Auður.
„Þú átt að geta nálgast allar vörur
búðanna í netverslunum okkar
og skór.is, air.is og ellingsen.is eru
allar undir sama hattinum, þannig
að ef þú ferð inn á eina af þessum
síðum getur þú flakkað á milli
þeirra allra.
Við erum líka búin að setja
upp sameiginlega körfu, svo það
sem þú setur í körfu t.d. á ell-
ingsen. is fer með þér í körfu á air. is
eða skór. is, svo þú getur gengið
frá öllum kaupunum á einum
stað,“ segir Auður. „Með Advania
erum við líka að leggja lokahönd
á leitarsíur sem einfalda vöru-
leit mikið og birta einnig í hvaða
búðum varan fæst.
En netverslun er aldrei 100%
klár, það er alltaf hægt að gera
betur,“ segir Auður. „Það er ein
ástæða þess að við erum með staf-
rænan starfsmann frá Íslenskri
gervigreind í þjálfun, en hann
mun koma til með að svara öllum
helstu fyrirspurnum frá viðskipta-
vinum sem koma í gegn um netið.
Við hlökkum mikið til að fá hann
í fullt starf, sem verður líklega í
haust, en þá getum við veitt ennþá
betri þjónustu.“
Lágmarka plastnotkun
„Netverslun er stór partur af
framtíðinni og því er mikilvægt
að byggja slíkar verslanir upp
af ábyrgð og vandvirkni,“ segir
Auður. „Netpöntunum fylgir
t.d. mikið plast, þar sem þeim er
pakkað í innsiglaða plastpoka. Við
ætlum að lágmarka plastnotkun
okkar með því að nota „slöngu“
sem getur innsiglað vörurnar í
akkúrat passlegri stærð. Við teljum
að þetta geti minnkað plastnotkun
um helming og það er fyrsta
skrefið í rétta átt. Við pökkum
heldur ekki inn pöntunum sem
eru sóttar til okkar.“
Fjórtán verslanir á einum stað
Netverslanir S4S, skor.is, air.is og ellingsen.is eru sameinaðar undir einn hatt þar sem hægt er að
versla í fjórtán búðum í einu hvar og hvenær sem er og ganga frá öllum viðskiptunum í einu lagi.
Auður segir að netverslanir S4S séu langt komnar kerfislega séð og hvað notendaviðmót varðar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Vöruúrval úr 14 búðum: Steinar
Waage Kringlu og Smáralind,
Skechers Kringlu og Smáralind,
Kaupfélagið Kringlu og Smáralind,
Ecco Kringlunni, Kox Kringlunni,
Toppskórinn og Toppmarkaður,
Air Kringlu og Smáralind og svo
Ellingsen Fiskislóð og Tryggvagötu
Akureyri.
Ein karfa fyrir 3 netverslanir: Til
að einfalda fyrir þig, segjum að þú
kaupir kuldaskó frá Ecco, snjógalla
frá Ellingsen og Nike-æfingabuxur
úr Air. Það bæði sparar þér tíma og
einfaldar málin að ganga frá þessu á
einum stað og fá allt saman í einu.
Opið allan sólarhringinn: Þú getur
verslað hvar sem er, hvenær sem er,
svo lengi sem þú ert með aðgengi
að interneti. Það eru einnig margir
fastir við vinnu og daglegt amstur
sem vilja einfaldlega komast heim
í rólegheit í lok dags. Þá er hægt að
setjast niður og versla heima í stofu
þegar allt er komið í ró.
14 daga endurgreiðslufrestur: Ef þú
fílar ekki vöruna sem þú færð eða
hún passar þér ekki, þá er ekkert
mál að skila henni og fá endur-
greitt, skipta um stærð eða velja
aðra vöru. Eftir 14 daga geturðu
enn skilað vörunni og fengið að
skipta í aðra vöru.
Fjórir afhendingarstaðir: Nú
bjóðum við viðskiptavinum að
sækja pantanirnar sínar í Ellingsen
Fiskislóð, Kox Kringlunni, Kaup-
félagið Smáralind og Guðríðarstíg
Grafarholti, svo við erum komin í
alfaraleið fyrir nánast alla á höfuð-
borgarsvæðinu.
Sendum hvert á land sem er og frí
heimsending fyrir pantanir fyrir 10
þúsund krónur eða meira.
KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 NETVERSLUN
2
0
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:0
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
D
7
-2
F
1
4
2
2
D
7
-2
D
D
8
2
2
D
7
-2
C
9
C
2
2
D
7
-2
B
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
1
9
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K