Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.04.2019, Qupperneq 60

Fréttablaðið - 20.04.2019, Qupperneq 60
Þótt Eyjafjallajökull sé ekki nema sjötti stærsti jökull landsins (39 km2) þá er hann þeirra þekktastur. Það á hann eldgosinu sem hófst 14. apríl 2010 að þakka, en það truflaði f lugferðir milljóna manna um allan heim á þeim rúma mánuði sem gosið stóð. Áður hafði þessi tignarlega eldkeila gosið nokkrum litlum gosum frá landnámi; 920, 1612 og 1821. Eyjafjallajökull hefur hopað töluvert vegna loftslagshlýnunar auk þess sem gosið 2010 bræddi jökulísinn þannig að einn af fáum skriðjöklum hans, Gígjökull, nánast hvarf. Engu að síður er Eyjafjalla- jökull með fallegustu jöklum landsins, ekki síst vegna tveggja glæsitinda sem raða sér á barm 3 km breiðrar gígskálar efst á jöklinum. Í vestri er Goða- steinn (1.627 m) en sunnar og austar er ekki síður tilkomumikill tindur, Guðnasteinn (1.639 m); báðir klæddir klakabrynju stóran hluta ársins. Aðeins norðar er hæsti tindurinn, Hámundur (1.648 m), sem er minna þekktur, enda ávallt hvítklæddur og sést því síður en bræður hans neðan úr sveit. Til eru nokkrar útgáfur af nafngift Guðnasteins en þá skemmti- legustu má finna í þjóðsögum. Þar segir að Guðni hafi verið einn af fjórum þrælum sem fengnir voru til að drepa húsbónda sinn Rút, en hann þótti bæði óvinsæll og ómenni. Rútur komst að tilræðinu og elti þá alla uppi og drap. Guðna vó hann efst á jöklinum við klett sem fékk nafnið Guðnasteinn. Það er sérlega gaman að ganga á Eyjafjallajökul og enn skemmti- legra á skíðum, enda bjóðast þarna einhverjar bestu fjallaskíðabrekkur landsins. Að lokum köstum við fram hugmynd til að fyrirbyggja frekari rugling á Steinunum tveimur á Eyjafjallajökli. Hún felst í því að nefna Guðnastein í höfuðið á forseta vorum, Guðna Th. Jóhannessyni, og kalla Guðnatind, en nafnið Mt. Gudni yrði ekki síður þjált á ensku. Íslendinga vantar jú tind sem kenndur er við forseta landsins – en til samanburðar geta Bandaríkjamenn státað af fimmtán Mt. Washington. Guðnatindur er með glæsilegustu tindum landsins og myndi hæfa vinsælum forsetanum vel. Síðan er það engin þjóðsaga að for- setinn hefur toppað Eyjafjallajökul í einkaerindum. „Guðnatindur“ á Eyjafjallajökli Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Fjallaskíða­ hópur hvílir lúin bein á leiðinni upp Eyjafjalla­ jökul frá Seljavöllum. Í baksýn trónir Guðnasteinn. MYND/ÓLAFUR MÁR BJÖRNSSON Gengin Skerjaleið upp á Eyjafjallajökul. Í baskýn Markarfljót og vegur inn í Þórsmörk. MYND/ÓLAFUR MÁR BJÖRNSSON Göngufólk á tindi Guðna­ steins. Myndin er tekin til suðvesturs af Hámundi, hæsta tindi Eyjafjallajökuls. MYND/ÓLAFUR MÁR BJÖRNSSON 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 0 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :0 6 F B 0 8 0 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 D 6 -E 0 1 4 2 2 D 6 -D E D 8 2 2 D 6 -D D 9 C 2 2 D 6 -D C 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 8 0 s _ 1 9 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.