Fréttablaðið - 20.04.2019, Síða 62

Fréttablaðið - 20.04.2019, Síða 62
Það er óhætt að segja að Snædís Xyzu Mae Ocampo matreiðslu-maður hafi náð hreint ótrúlegum árangri. Það er aðeins tæpt ár síðan hún útskrifaðist frá matvæladeild Menntaskólans í Kópavogi. Hún er þrátt fyrir það í kokkalandsliðinu og náði í lokaúrslit í keppninni um matreiðslumann ársins sem haldin var nýverið. Hún starfar á Mími á Hótel Sögu, sem er tiltölulega nýr staður og í eigu íslenskra bænda. Á veitinga- staðnum er lögð mikil áhersla á hrá- efni úr íslenskri náttúru sem hentar hverri árstíð. Snædís er fædd á Filippseyjum. Foreldrar hennar voru ungir þegar þeir áttu hana og bjuggu við fátækt. Þegar Snædís var tveggja ára gömul Flókið en gott líf Snædís Xyzu Mae Ocampo var lengi að finna sína réttu fjöl en í dag á matreiðsla hug hennar allan. Hún segir frá lífi sínu og gefur lesendum uppskrift að einfaldri en góðri lambasteik fyrir páskahelgina. „Ég á eiginlega tvær fjölskyldur hér heima á Íslandi. Mömmu og Jón pabba og svo fósturfjölskyldu mína,“ segir Snædís. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR kynntist móðir hennar íslenskum manni og f lutti til Íslands. Snædís varð eftir og kom ekki til Íslands fyrr en fjögurra ára gömul. Á tvær fjölskyldur á Íslandi „Ég er alin upp á Dalvík. Líf mitt hefur verið svolítið f lókið og ætli fjölskyldan sé ekki stærri en gengur og gerist,“ segir Snædís. „Ég hef farið þrisvar sinnum til Filippseyja með margra ára milli- bili til að hitta fjölskyldu mína,“ segir Snædís sem fann föður sinn fyrir nokkrum árum með aðstoð Facebook. Faðir hennar býr reyndar ekki á Filippseyjum en kom þangað til að hitta hana. „Við erum í ágætu sambandi, hann fylgist með því sem ég er að gera á Facebook. Hann á konu og börn. Mér fannst gott að koma þangað og varð fyrir miklum innblæstri þar,“ segir Snædís sem sagði frá æsku sinni í viðtali við Fréttablaðið á síðasta ári en hún flæktist á milli fósturheimila þar til félagsmálastjóri Dalvíkur tók hana inn á heimili sitt. „Ég á eiginlega tvær fjölskyldur hér heima á Íslandi. Mömmu og Jón pabba og svo fósturfjölskyldu mína,“ segir Snædís og á við Eyrúnu Rafnsdóttur, félagsmálastjóra á Dal- vík, og Ingvar Örn Sigurbjörnsson, eiginmann hennar. „Þau eiga þrjá syni sem ég lít á sem bræður mína,“ segir hún. Lærði að elda hrísgrjón sjö ára Matargerð var ríkur þáttur í heim- ilishaldinu og hún lærði snemma réttu handtökin af móður sinni. „Ég held ég hafi bara verið sjö ára þegar ég lærði að elda hrísgrjón. Og ég er alin upp við bæði filippseyska og íslenska matargerð. Stundum var bara fiskur í raspi og kartöflur í matinn, og kannski asískur réttur til hliðar og þá blandaði maður bara þessu öllu saman.“ Hún leiddi þó ekki hugann að því nærri strax að hún gæti starfað við Lambalæri með sellerírót, svartkáli og krækiberjagljáa 1 lambalæri 1 búnt sellerí 1 stikill svartkál 1 lítri gott lambasoð 1 lítri krækiberjasafi frá Ís- lenskri hollustu 100 g heslihnetur án hýðis 2 búnt steinselja 1 búnt rósmarín 3 hvítlauksgeirar 50 g eplaedik 50 g vatn 50 g sykur Olía Salt Sítrónusafi Rósmarín, 1 búnt af selleríi og hvítlaukur er allt sett í mat- vinnsluvél með smá olíu þar til að þetta er orðið að mauki. Maukinu er svo makað á lamba- lærið og það eldað í 6 tíma á 68°C, svo grillað í lokin. Sellerírótin er böðuð upp úr olíu og söltuð vel og pökkuð svo inn í álpappír. Sett inn í ofn í 2 tíma á 200°C. Heslihnetur eru næst settar í matvinnsluvél og smá olía sett út í og létt maukað. Edik, vatn og sykur er sett í pott og soðið upp úr því, heslihnetuolíunni er svo bland- að út í. Rest af steinselju er svo söxuð fínt niður. Helmingur af sellerírótinni er svo rifinn niður í kubba, dressaður með hesli- hnetuvinagrettunni og svo er rótinni velt upp úr steinselju. Hinn helmingurinn af sellerí- rótinni er settur í blandara og maukaður, smakkaður til með salti og sítrónusafa. Svartkálslaufin eru tekin af stilknum og djúpsteikt við 160°C olíu í potti. Krækiberjasafinn er soðinn niður í ¼ og lambasoðið líka og því er svo blandað saman. Smakkað til með salti, sítrónu- safa og þykkt með smjöri. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 0 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :0 6 F B 0 8 0 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 D 6 -D B 2 4 2 2 D 6 -D 9 E 8 2 2 D 6 -D 8 A C 2 2 D 6 -D 7 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 8 0 s _ 1 9 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.