Fréttablaðið - 20.04.2019, Síða 63

Fréttablaðið - 20.04.2019, Síða 63
ÉG VAR BÚIN AÐ VERA AÐ GLÍMA VIÐ AÐ FINNA MIG LENGI ÁÐUR EN ÉG FÓR ÚT Í ÞETTA NÁM OG VAR EKKI MEÐ KEPPNISSKAP ÁÐUR EN ÉG KYNNTIST MATAR- GERÐ. „Ég setti mér strax það markmið að verða best í faginu,“ segir Snædís. matargerð. Hún fór á listnáms- og hönnunarbraut í Verkmennta- skólanum á Akureyri, þar sem hún lagði stund nám í hárgreiðslu og svo í fatasaumi. „Ég vann á sushi-stað meðfram náminu og líkaði það vel. Þar óx áhugi minn á matargerð. Þar var ég hvött áfram til að læra matreiðslu. Ég sýndi starfinu svo mikinn áhuga og var mjög dugleg, mætti vel, spurði spurninga og var sjálfstæð. Einn yfirkokkurinn spurði mig hvort ég hefði ekki áhuga á að fara í þetta nám. Ég varð hissa og spurði hann af hverju. Þá sagðist hann sjá fáar stelpur sýna þessu starfi svo mikinn áhuga. Ég hætti og f lutti suður. Fór fyrst í fatatækni í Tækni- skólanum en svo í matreiðslu. Boðið í landsliðið fyrir útskrift Ég setti mér strax það markmið að verða best í faginu,“ segir Snædís sem fór á starfssamning hjá Sushi Samba. Þaðan færði hún sig á Apó- tekið og þaðan á Grillið á Hótel Sögu þar sem hún kláraði námið. Snædísi var boðið að vera með kokkalandsliðinu áður en hún útskrifaðist en varð ekki fullgildur meðlimur fyrr en að námi loknu og hún fór með því á heimsmeistara- mótið sem haldið var í Lúxemborg í nóvember á síðasta ári þar sem liðið vann til gullverðlauna. „Það gekk ofsalega vel hjá okkur. Við elduðum úr góðu íslensku hrá- efni, notuðum þorsk í forrétt, lamb í aðalrétt og skyr og hindber í eftir- rétt.“ Snædís tók einnig þátt í keppn- inni um matreiðslumann ársins. Hún segir það skemmtilega til- hugsun að verða mögulega fyrsta konan til að ná þeim titli. Aldrei höfðu fleiri konur skráð sig til leiks en í ár og þær komust allar áfram í lokakeppnina. Ætlaði bara að pakka saman Veikindi og dauðsfall settu strik í reikninginn. Snædís er í sambúð með Sigurði Helgasyni, yfirmanni matreiðslusviðs á Hótel Sögu, en viku fyrir mótið fékk faðir hans heilablóðfall. „Þetta var erfiður tími fyrir okkur öll. Ég hafði lagt hart að mér við æfingar í þrjá mánuði fyrir keppnina. En lífið setti strik í reikninginn. Við vorum meira og minna inni á spítala. Ég svaf lítið og auðvitað setur maður fjölskylduna í fyrsta sæti,“ segir Snædís og segir aðra hluti verða heldur ómerkilega í samanburði þegar allt kemur til alls. „Ég ætlaði bara að hætta við en ákvað hins vegar að ég væri komin alltof langt áfram til þess. Daginn fyrir keppnina var okkur tilkynnt að hann væri að fara á líknar- deild. Það væri ekki langt í að hann myndi deyja. Á sama tíma var ég svo óheppin að hljóðhimnan sprakk og ég var komin með sýkingu. Ég heyrði eiginlega ekkert á keppnis- daginn. Ég var því að niðurlotum komin á keppnisdaginn og gerði eiginlega ekkert fyrsta klukkutím- ann. Mér var skapi næst um tíma að pakka saman dótinu mínu og fara því ég var svo hrædd um að ná ekki að kveðja hann,“ segir Snædís. Hún lauk hins vegar keppni og náði að kveðja tengdaföður sinn sem lést daginn eftir. „Ég er afskap- lega þakklát fyrir það að hafa náð að kveðja,“ segir Snædís og líka fegin að hafa tekið þá ákvörðun að taka þátt. Elskar íslensk sumur Snædís segir gott að deila ástríðu fyrir matargerð með Sigurði. „Það er ekki það eina sem við höfum áhuga á,“ segir hún og hlær. Hann ýtti mér út í veiði og mér finnst gott að vera úti í náttúrunni,“ segir hún. Og þó að sólin og blítt veðurfar á Filippseyjum heilli stundum þá elskar hún að búa á Íslandi. „Það er eitthvað við íslenskt sumar sem hrífur mig og mér finnst einfald- lega geggjað að búa hér. Ég fíla líka veturinn og finnst leiðinlegt ef það snjóar ekki almennilega. Matar- gerð á Íslandi verður einnig sífellt fjölbreyttari. Mér finnst gaman að fara út að borða og kokkar leyfa sér að verða sífellt djarfari.“ Sjálf segist hún enn vera að móta eigin sýn. „Ég er nú bara nýútskrifuð og enn í mótun. Ég var búin að vera að glíma við að finna mig lengi áður en ég fór út í þetta nám og var ekki með keppnisskap áður en ég kynnt- ist matargerð. Nú er ég staðráðin í að skara fram úr. Ég er gríðarlega kröfuhörð á sjálfa mig og finnst ég alltaf geta gert betur, en það er alls ekki vond tilfinning,“ segir Snædís. Snædís gefur lesendum upp- skrift sem flestir lesendur ættu að geta spreytt sig á. „Einfalt getur líka verið gott og lambakjöt er mjög við- eigandi um páskahelgina.“ MEÐAN BIRGÐIR ENDAST Í dag laugardag 11:00 - 16:00 Sunnu-mánudag Lokað OPNUNARTÍMAR Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 TÖLVUTEKS PÁSKAEGGJALEIT Í REYKJAVÍK OG Á AKUREYRI - OPIÐ Í DAG 11-16 PÁSKA TILBOÐA LOKADAG UR MEST 2 EGG Á MANN :) 20. apríl 2019 • B irt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabrengl H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 27L A U G A R D A G U R 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 2 0 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :0 6 F B 0 8 0 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 D 6 -E 9 F 4 2 2 D 6 -E 8 B 8 2 2 D 6 -E 7 7 C 2 2 D 6 -E 6 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 8 0 s _ 1 9 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.