Eiðakveðja - 01.09.1921, Blaðsíða 8

Eiðakveðja - 01.09.1921, Blaðsíða 8
4 Sama heiðríkjan er yfir Baldvini Einarssyni, Fjölnismönn- unum og Jóni Sigurðssyni. í starfi Baldvins brennur heitast eldur ungrar sálar, svo að þjóðin hlaut að verða snortin af honum. Fjölnismenn „brjóta skarð í stíflurnar og veita fram lífsstraumi þjóðarinnar“. Jón Sigurðsson leiðir hana beint að verkefnum sínum út í daginn. Hugsjónin, sem ættjarðar- ástin gefur þeim að Iifa fyrir, verður að veruleika að ein- hverju leyti. Nú uppskerum við seinni kynslóðir það, sem þeir sáðu. Freisisbarátta okkar og helstu framfarir alt til þessa dags eru runnar frá ættjarðarást þessara fáu manna. Því sem þeir hrundu í framkvæmd hefir að eins verið haldið áfram og veittur stuðningur. Sigur er fenginn í ýmsu hið ytra. En yfir því hefir okkur mjög gleymst, að tímarnir mega ekki aðeins vera uppskerutímar, heldur eiga þeir jafnframt að vera sáningartímar fyrir komandi ár. Starfið sem ætt- jarðarástin hefir tekist á hendur hefir orðið einhliða. Við það hefur andlegur þróttur þjóðarinnar orðið minni. Innra líf hennar hefir sýkst. Níðhöggur nagar ræturnar neðan. Sundrung, flokkadrættir, eigingirni, ábyrgðarleysi og sið- ferðilegt los hefir grafið um sig meir og meir. Sterka trú vantar og þrek til átaka af öllu afli sálar. Ef við höfumst ekki að, þá mun innan skamms skyggja aftur yfir sjón- deildarhringnum andlega af vængjum myrkraandanna, sem Eggert kvað um og' spurningin vakna frá tímunum hans: „Hvar eru jurtir heiða? Hvar en dýru grös?“ Sáðmennirnir sofa. Jafnvel um þá, sem heitasta eiga ætt- jarðarástina, verður sagt hið fornkveðna: „Grjet hann og gat henni’ ei bjargað.,, Nú þegar verður sáning að byrja, svo að nýr gróður geti seigt rót að hjarta móður okkar og varið það helkulda. Hjer á þessu sviði bíður okkar sameiginlega hlutverkið, sem ættjarðarástin Ieggur okkur öllum á herðar. Á þetta verður hún að gjöra okkur glöggskygn. Það er sál þjóðar-

x

Eiðakveðja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eiðakveðja
https://timarit.is/publication/1329

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.