Eiðakveðja - 01.09.1921, Blaðsíða 25

Eiðakveðja - 01.09.1921, Blaðsíða 25
21 H. G., að þarna var orsökin að eymdinni, sem fylgir auð og framförum, þarna varna var skýring á skoðun gamla prentarans. Með fólksfjölguninni stígur jörðin í verði, og þeir sem vilja vinna hana verða stöðugt að borga hærra og hærra verð fyrir notkunarrjettinn. Frá þessari stundu helg- aði H. G. alt líf sitt baráttunni fyrir jafnrjetti allra manna að náttúrlegum auðæfum jarðarinnar. Eitt er eftirtektarvert í þessu sambandi og næsta lær- dómsríkt. Lífið sjálft leggur spurnlnguna fyrir H. G. Hann leitar svars í bókum, en fær það ekki svo aö honum nægi. Lífið sjálft svarar svo spurningunni löngu seinna. H. G. barðist hjeðan í frá fyrir þessu merkilega máli af mikilli alvöru, bæði í ræðu og riti. Honum var það eigi neitt fordildar mál, heldur var undirstraumurinn djúpur og innilegur mannkærleikur. Mikilsverðustu mál mannanna voru honum viðkvæm og heilög, eins og lítil saga frá fyrsu árum hans í San Francisko sýnir. Góðviðrisdag nokkurn hafði H. G. boðið ástmey sinni, Annie Fox, með sjer á skemtigöngu. Þrátt fyrir góða veðrið, og þótt hann gengi við hliðina á mey þeirri, er hann unni hugástum, var hann þungbúinn og þögull. A. F. spyr hvað valdi ógleði hans. Hann svarar, að hinar hræðilegu frjettir yllu henni, að borgarastyrjöld væri hafin í landinu. „Erþaðekki annað", svarar hún aftur. „Jeg hjelt að pabbi þinn elskulegur, eða einhver annar nákominn vandamaður, væri nýlátinn." „Ekki annað“, endurtók hann, „getur nokk- ur hræðilegri atburður hent nokkra þjóð en þessi“. Titr- ingarinn af æðaslögum þjóðar hans gagntók hann. Svo fer eigi öðrum en þeim, sem eiga einlæga og fölskvalausa samhygð ineð mönnunum. Hjarta þeirra titrar fyrir hinum minsta vindgára, er hreyfir sig á þjóðiífshafinu, og skelfur fyrir ofsafengnum öldum mannhatursins. H. G. átti mikinn mannkærleika og hann átti Iíka djúp- an skilning á kiörum þeirra, er bágt áttu. Þann skilning hafði hann öðlast í skóla lífsins. Hann þekti af eigin reynslu,

x

Eiðakveðja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eiðakveðja
https://timarit.is/publication/1329

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.