Eiðakveðja - 01.09.1921, Blaðsíða 22

Eiðakveðja - 01.09.1921, Blaðsíða 22
18 að sjóði, er úr sje veittur styrkur fátækum og efnilegum nemendum, er skólann sækja. H. M.: Legg til að lán sjeu veitt úr nemendasjóðnurn, en ekki gjafir. Notin af honum verða þá víðtækari. B. Bl.: Matarfiel. Eiðaskóla hefir gefið nemendasjóðnum rúmar 200 kr., sem eru ársarður af viðskiftum þess við Kaupfjel. Hjeraðsbúa. Mun þeirri venju haldið framvegis af hálfu Mf. E. E. Þ.: Mótfallinn tillögu frummælanda um happdrætti. Tel betur til fallið að halda iðnsýningu hjer á Eiðum og rynni ágóðinn af henni í nemendasjóð. H. P.: Legg til að haldin verði framvegis opinber sam- koma á Eiðum síðasta mótsdaginn, er helguð væri nem- endasjóðnuni. Á. G.: Vafasamt, hvort slík samkoma getur orðið næsta sumar, vegna væntanlegrar húsagjörðar á Eiðum, en sjálf- sagt er að gefa gaum tillögu þessari. Þá kom tillaga E. J. á þessa leið: „Fundurinn felur skólastjóra í samráði við kennara skólans að semja skipu- lagsskrá fyrir nemendasjóð Eiðaskóla". Tillagan var samþ. í einu hljóði. Á. Q. Iýsti þá yfir því, að mál þetta væri út- rætt og fleiri mál væru eigi til umræðu. Var þá fundi slitið. Hlje var því næst í 10 mín. Þá flutti Ásmundur Guðmundsson erindi. Mun það prentað í ársriti prestafjelagsins. Var á undan sunginn sálm- urinn „Guð, allur heirnur", en á eftir var sunginn sálmur- inn „Son Guðs ertu með sanni". Eins og í gærkvöldi fóru allir í kirkju til kvöldbæna, áður gengið var til svefns. Var fyrst sunginn sálmurinn „Ó drottinn minnar sálar sól“. Þá talaði nokkur orð Guðgeir Jóhannsson, út frá Lúk. 11., 9.—-13. Að því loknu stóðu menn upp og gengu fram á kirkjugólfið, tókust í hendur og sungu: „Ó, Guð vors Iands“. Sunnudaginn 3. júlí kl. 2. e. h. hófst guðsþjónusta í kirkj- unni. Prjedikaði Ásmundur Guðmundsson, skólastjóri.

x

Eiðakveðja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eiðakveðja
https://timarit.is/publication/1329

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.