Eiðakveðja - 01.09.1921, Blaðsíða 21

Eiðakveðja - 01.09.1921, Blaðsíða 21
17 tíma hagkvæmastan, þótt annatími sje. Til þess að kostnað- ur við mótin yrði sem minstur, mundi heppilegast að afla nokkurra matfanga að haustinu til. Væri gott að stjórnin athugaði þetta atriði. Óskuöu þá ekki fieiri að taka til máls og var fundi slitið. — Tók þá við hlje í l1/^ klst. Þegar sá tími var liðinn, þótti veður ekki jafn tryggilegt og áður. Var þoka um loft alt og svalur norðaustan kuldi. Qengu því allir í tjaldið og ver þar settur fjórði fundur mótsins. Framsögumaður var Emil B. Jónasson. Umræöuefni: Hemendasjððurlnn. E. J.: Skólinn á Eiðum enn í bernsku. Vantar því margt, er gjörir aðstöðuna betri, bæði kennurum og nem- endum. Meðal þess má telja nemendasjóð. Vísir til slíks sjóðs er þegar kominn, en sióðurinn er þó enn óstofnað- ur. Væri vel til fallið að Eiðasambandið stæði á bak við stofnun hans. Mundi heppilegast að fela skólastjóra að semja skipulagsskrána í samráði við kennara skólans. Má telja vafalaust, að siíkur sjóður verði skólanum til mikillar blessunar á ókomnum tíma. Og ætti það aö vera sam- bandsmönnum hvöt tii þess að efla hann sem best. Nem- endur gætu skrifað sig fyrir árstillagi, hver eftir sínum ástæðum. Möguleg't að fara auk þess sjerstaka leið til að afla sjóðnuin fjár. Hafa t. d. happdrætti um einhvern eigu- legan grip. Lán mundu ekki veitt úr sjóðnum fyrri en hann næmi 1000 kr. Mætti þá veita alt að helming hans að láni. Ættu nemendur helst að fá lánið vaxtalaust meðan þeir stunduðu nám við skólann, en borguðu síðan höfuðstól og vöxtu. Á. 6.: Samþykkur frummælanda. Stærsta atriði þessa máls lánveitingar og fyrirkomulag sjóðsins. Qet þess í sambandi við nemendasjóðinn að Jónas Eiríksson á Breiðavaöi hefir nýlega gefið Eiöaskóla rúmar 2000 kr., er verða skal stofn

x

Eiðakveðja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eiðakveðja
https://timarit.is/publication/1329

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.