Eiðakveðja - 01.09.1921, Page 11
7
Sama Ieiðin liggur fyrir okkur öllum. Eitt veitir gieðina,
það er kærleikur. Eitt kærleikann og hreinleikann — Guð.
Reynum að lifa daglega í ljósi Guðs og fyrirgefningar synd-
anna og ganga þannig að hverju starfi okkar, hversu lítil-
fjörlegt sem það kann að þykja. Þá verður það okkur köll-
unarstarf og guðsþjónusta og við lifum á sigurbraut. Við
finnum, hvernig forsjón Ieiðir okkur og ósýnilegt merki
Guðs blaktir yfir okkur. Við stöndum á þröskuldi þeirra
heima, þar sem andi Jesú lifir í mætti og fyllingu Guðs.
Starfið að hugsjón okkar út á við verður svo ekki annað
en afleiðing af innra starfinu. Áhrif þess munu koma fram
á öllum sviðum lífs okkar og við vinna þannig fyrir hana
í auðmýkt og kyrþey. Okkur mun vissulega aldrei bresta
tækifærin, sje þrótturinn nógur hið innra. Eldur kveikist af
eldi og andi fæðist af anda. Ytri verkahringur okkar flestra
er að vísu ekki vfður, en hann er djúpur og óendanlega
mikilsverður. Við eigum hvert okkar heimili. Svo kann verka-
hringurinn að færast út með líðandi árum, starfsmönnum
að fjölga og okkur Ijettast meir og meir að ná höndum
saman um áhugamálin okkar. Það á að vera yndi okkar á
komandi timum, að skiftast á hugsun um það, hvar sje verk
til að vinna, og eignast skarpari sjón á því. Jeg mun þess-
vegna ekki í dag fara nánar út í einstök atriði, heldur láta
staðar numið við það, að nefna eitt grundvallaratriði, sem
við getum öll bygt á, hversu skamt sem þroski okkar kann
að vera á veg kominn. Við eigum að sameina hugi og
hendur þeim til liðs, sem eiga að stríða við erfiðleika eða
bágindi. Kærleiksstörf kalla okkur. Og ef við byrjum j)ann-
ig, þá mun vaxa upp af sömu rót í kringum okkur aflmeira
andlegt Iif, heilindi hugarfarsins og vilji og þrek til þess,
að gefa alt göfugu málefni — fórnarlund, sem týnir Iífi
sínu og finnur það. Þá mun kristindómur breiðast út. Og
hann er það, sem þjóð okkar þarfnast síðast og fyrst.
Svo þakka jeg ykkur öllum veruna hjer, bæði ykkur sem
jeg vonast til að sjá hjer aftur á skólabekkjum og ykkur,