Eiðakveðja - 01.09.1921, Page 17
13
inn á Eiðum taki þátt í slíkuin fjelagskap. Þar mun einmitt
oft þörf á hjúkrun sökum fjölmennis.
H. H.: Tiifinnanlegur skortur á samúð og samstarfi. Efl-
ing samúðar verður þjóðlífinu til blessunar. Sá sem gjörir
gott verk öðlast við það hvöt og styrk til þess að gjöra
enn meira. Mikilvægt hlutverk fyrir sambandið að hjálpa
bágstöddum og sjúkum.
B. Bl.: Ættum ekki að taka neitt mál á stefnuskrá sarn-
bandsins í heild sinni, sem veit út á við. Þetta fjelag stefn-
ir fyrst og fremst að efling innri þroska. Svo var um ann-
an félagsskap alkunnan — ungmennafélögin. — Þau tóku
á stefnuskrá sína mörg erfið mál. Ytri barátta fyrir þessum
málagrúa varð þeim ofurefli og dró úr þroska þeirra inn
á við; og nú eru þau víða á fallanda fæti. Sambandið okk-
ar ætti að læra af reynslu þeirra. Takmark þess sje að
glæða með sjer svo styrkar og göfugar hugsjónir, að hver
og einn, sem í því er, vinni af öllum mætti sínum að hverju
góðu málefni. Andinn og krafturinn til þess þarf að ríkja
í skólanum, þá m«n eigi skorta endurnæringu fyrir sam-
bandið sem dögg fyrir gróður, er nemendur koma heim
að Eiðum eða á sambandsmótin.
L G.: Kall hugsjónanna þarf að heyrast, og hver og einn
verður að bregðast vel við og koma þeim í framkvæmd
eftir mætti. En ytri störf eru oft göngin inn í námur arid-
ans, þar sem gull.hans er geymt. Þessi alda líknar og lækn-
inga þarf að snerta okkur svo við tökum til starfa. En að
sjálfsögðu varast sambandið alt yfirborðshjal og hættu þá,
sem stafar af því að taka mikinn málafjölda á fasta stefnuskrá.
H. H.: Kristilegt hugarfar og ættjarðarást sje grundvöllur
þessa sambands. Vafas'amt, hvort við erum öll svo þrosk-
uð, að hugsjónir einar nægi. Væri svo, kæmu öll ytri at-
riði af sjálfu sjer. Innri styrkur og þroski fæst oft við eld-
raunir, sem að nokkru koma fram í hinu ytra. En að vísu
er andinn fyrir öllu og hann á að skapa framtíð sambandsins.
H. p.: Ein leið mikilvæg til þroska sambandinu ersú að hver