Eiðakveðja - 01.09.1921, Side 35
31
Menn ng málefni.
Æskilegt væri, að í Eiðakveðjunni gæti framvegis orðið
grein, eða greinar, um þetta efni, og yrðu þá sagðar frjett-
ir af sambandsmönnum og frá aðgerðum í þeim málum,
er það lætur sig mestu varða. En sökum rúmleysis verður
slíkt að bíða að þessu sinni, og einnig það, er ætlað var,
að geta merkra bóka. Stjórnin.
Guðmundur Þorsteinsson.
Eiðakveðjan flytur nú sambandsmönnum sorgarfregnina urn
andlát hans. Hann dó á Eiðum 31. okt. siðastl., eftir stutta
legu. Hann var góður piltur og grandvar í öllu, og verður
því minningin um hann biört í hugum okkar.
Næsta mót
verður haldið að forfallalausu dagana 30. júní til 2. júlí n.
á., og lýkur því með hádegisguðsþjónustu. Þess er vænst,
að þeir, sem mótið sækja, verði komnir að Eiðum fimtu-
dagskvöldið 29, júní. Fyrirkomulag' verðnr svipað og í ár.
— Þeir sem hafa í hyggju að flytja erindi, eða hafa fram-
sögu í málum, Iáti stjórnina vita svo fljótt sem þeir geta.
Greinar í næstu Eiðakveðju sjeu komnar til ritnefndar fyrir
1. sept. n. á. Er æskilegt að þær sjeu sem stystar, sökum
þess hve rúmið er lítið. Stjórnin.