Fréttablaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 17
Reykjavík – Það var um 1960 að ungur tónsmíðanemi í Köln fékk símskeyti frá Íslandi þar sem hann var beðinn að fara á járnbrautarstöðina í Hamborg til að taka á móti mikil- vægum gesti frá Berlín og fylgja honum á Hotel Vier Jahreszeiten, fínasta hótel Hamborgar þá sem nú. Og þá sem nú var jafnlangt frá Köln til Hamborgar eins og frá Akureyri til Reykjavíkur. Gestur- inn var Jón Leifs tónskáld. Neminn var Atli Heimir Sveinsson. Atli kom á stöðina á tilskildum tíma, lestin kom frá Berlín, en Jón Leifs var hvergi að sjá. Atli beið næstu lestar frá Berlín og ekki birtist Jón. Enn beið Atli unz hann sá að eitt- hvað hlaut að hafa farið úrskeiðis svo hann fór á hótelið. Þar var Jón. Hann hafði tekið sér leigubíl frá Berlín, tæplega 300 km leið. Atli Heimir leit upp til Jóns Leifs. Ef við tökum upp nýjan þjóðsöng, sagði Atli, þá á hann að vera lag Jóns Leifs við „Rís þú, unga Íslands merki“ eftir Einar Benediktsson. Tónverk Jóns Leifs náðu ekki mikilli hylli meðan Jón lifði, hún kom síðar. Jón vissi sem var að tónlist hans þyrfti tíma og lét það ekki á sig fá. Eftir hans dag voru verk hans flutt æ oftar og víðar og seljast nú á diskum eins og heitar lummur heima og erlendis. Kvæði skáldanna Atli Heimir naut þess umfram Jón Leifs að lögin hans mörg sungu sig inn í hjarta þjóðarinnar, lög sem næstum allir kunna. Það kom sér vel á leikhúsferðalagi Íslendinga um Þýzkaland fyrir mörgum árum þegar listafólkið fremst í rútunni tók eftir því að Atli sat einn aftarlega í bílnum hnugginn að sjá. Eitthvað virtist angra hann. Einn farþeginn bað þá litla stúlku að fara til Atla og syngja fyrir hann. Barnið fór aftur í og söng fyrir hann „Kvæðið um fuglana“ (Snert hörpu mína, himinborna dís), lag Atla við kvæði Davíðs Stefánssonar, öll erindin. Atli tók gleði sína. Atli var jafnan glaður og reifur, af burðaskemmtilegur félagi, frjálslyndur, fróður og víð- sýnn og sjór af sögum. Sönglög Atla Heimis eru fágætur fjársjóður og fjölbreyttur. Lögin hans 27 við kvæði Jónasar Hall- grímssonar hafa verið hljóð- rituð tvisvar, 1997 og 2007, og eru einnig til á prenti. Atli sagðist vilja „hafa lögin alþýðleg, einföld og rómantísk; einhvers staðar á milli Schuberts og Sigvalda Kaldalóns.“ Atli tónsetti kvæði mikils fjölda innlendra og erlendra skálda, þ.m.t. Einar Benediktsson og Pablo Neruda sem ekki mörg önnur tón- skáld hafa glímt við. Atli skildi að kvæði skáldanna geta lifað lengur séu þau sungin. Tónskáld í stóru broti Stundum er sagt um Edvard Grieg, helzta tónskáld Norðmanna, að hann geti varla talizt hafa verið stórbrotið tónskáld. Það þykir mér undarleg skoðun á tónskáldi sem samdi einn fínasta píanókonsert heimsins við hlið smærri píanó- verka og sönglaga sem eru mest fyrirferðar á verkaskrá Griegs. Atli Heimir Sveinsson var jafn- vígur á stórvirki og smærri verk. Hann var stórbrotið tónskáld, einn með öllu. Auk sönglaga hans, þ.m.t. kórverk og leikhústónlist, liggja eftir hann sex sinfóníur, Atli Heimir Sveinsson Þorvaldur Gylfason Í DAG fimm óperur, fjölmargir konsertar og verk fyrir smærri hljóðfæra- hópa ýmist í framsæknum eða gömlum stíl eftir atvikum. Verk hans eru til á 45 diskum. Atli gerði sér stundum leik að því að bregða sér í líki annarra tónskálda. Hvernig skyldi Wagner hafa haft þetta lag eftir Kaldalóns? gat Atli átt til að spyrja, settist við hljóðfærið og leyfði vinum sínum að heyra. Allir skellihlógu. Langhlaup út yfir líf og gröf Sum stórvirkja Atla Heimis hafa náð útbreiðslu um heiminn, önnur bíða, einkum sinfóníurnar sex. Þær þyrfti að f lytja á ný og gefa út. Heildarútgáfa þeirra myndi auka hróður Íslands. Atli sendi mér fyrir mörgum árum einkahljóðritun af f lutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands á 2. sinfóníu hans, frábært verk sem tekur heila klukkustund í f lutningi. Nokkru síðar kom gamall kennari minn og kollegi frá Princeton-háskóla í heimsókn til Reykjavíkur, sérfróður um evrópska nútímatónlist. Hann þekkti verk Jóns Leifs og bað mig að benda sér á yngri tónskáld íslenzk. Ég fékk leyfi Atla til að senda manninum hljóðritið af 2. sinfóníunni. Nokkrum vikum síðar fékk ég svohljóðandi skeyti frá Princeton: Sveinsson er betri en Leifs. Ég framsendi skeytið til Atla. Hann fór hjá sér eins og feiminn unglingur. Hann hampaði ekki sjálfum sér. Honum var ekki sýnt um að koma verkum sínum á framfæri. Atli vissi eins og Jón Leifs á undan honum að fram- sæknar tónsmíðar eru langhlaup út yfir líf og gröf. Nú er rödd hans þögnuð, en tón- list Atla Heimis Sveinssonar mun lifa lengi á Íslandi og úti um heim. B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt ti l l ei ð ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t á n fy rir va ra . Síðustu sætin Íslensk fararstjórn, taska og handfarangur innifalið. BÓKAÐU SÓL ALLUR PAKKINN 595 1000 . heimsferdir.isBókaðu þína ferð á Laguna Bellevue Apartments *** FRÁ KR. 119.950 Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn Innifalið: Flug, Gisting, Ekkert fæði innifalið 169.095 m.v. 2 fullorðna saman í herbergi SUNDLAUG 100-400M Á STRÖNDINA FJÖLSKYLDUVÆNT BARNALAUG BARNALEIKSVÆÐI Villaggio Marco Polo *** FRÁ KR. 140.845 Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn Innifalið: Flug, Gisting, Morgunverður 149.695 m.v. 2 fullorðna saman í herbergi BARNALEIKSVÆÐI BARNAKLÚBBUR 650M Á STRÖNDINA FJÖLSKYLDUVÆNT BARNALAUG Villaggio Planetarium Resort *** FRÁ KR. 145.795 Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn Innifalið: Flug, Gisting, Hálft fæði 166.995 m.v. 2 fullorðna saman í herbergi VEITINGASTAÐUR SUNDLAUG 1,3KM Á STRÖNDINA FJÖLSKYLDUVÆNT BARNALAUG Hotel Florida **** FRÁ KR. 165.995 Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn Innifalið: Flug, Gisting, Morgunverður 181.895 m.v. 2 fullorðna saman í herbergi SUNDLAUG BARNAKLÚBBUR VIÐ STRÖNDINA FJÖLSKYLDUVÆNT FRÁBÆR STAÐSETNING ÍTALÍU KRÓATÍU KRÓATÍA ÍTALÍA ÍTALÍAÍTALÍA Komdu með okkur til 13. júní í 11 nætur Flug báðar leiðir frá kr. 69.900,- m/tösku og handfarangri. EÐA FRÁBÆRIR FLUGTÍMAR S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15F I M M T U D A G U R 2 5 . A P R Í L 2 0 1 9 2 5 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 D B -1 E 5 4 2 2 D B -1 D 1 8 2 2 D B -1 B D C 2 2 D B -1 A A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 7 2 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.