Fréttablaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 32
Svo virðist sem þykkbotna strigaskór séu það vinsælasta þegar sumarið gengur í garð.
Þeir eru klossalegir, hafa sést þó
nokkuð í vetur en verða enn vin-
sælli í sumar. Skórnir eru sagðir
þægilegir og passa vel við bæði
gallabuxur, stuttbuxur eða kjóla.
Balenciaga hefur verið framarlega
í framleiðslu á þessum skóm og
það sést varla sú fyrirsæta á götum
stórborga sem ekki er í skóm frá
þeim.
Skórnir geta verið ósköp lát-
lausir þó stórgerðir séu en sumir
eru afar skrautlegir, silfurlitir,
gylltir eða í lit sem kallast rósa-
gull og hefur verið mjög vinsæll
undanfarið.
Stórskornir
strigaskór
Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun fer fram í Hörpu 30. apríl.
Útskriftarhátíð Listahá-skóla Íslands hefst í dag, fimmtudag, og stendur
yfir til sunnudagsins 26. maí.
Hátíðin þykir einn af hápunktum
menningarlífsins á höfuð-
borgarsvæðinu en þá fara fram
fjölmargir viðburðir úr öllum
deildum Listaháskólans, þ. á m.
úr fatahönnunardeild.
Á útskriftarhátíðinni er sýndur
afrakstur á bæði bakkalár - og
meistarastigi en hvern viðburð
er hægt að kynna sér á vef Lista-
háskólans og á Facebook-síðu
skólans.
Meðal viðburða fatahönn-
unardeildar skólans má nefna
tískusýningu útskriftarnema í
fatahönnun sem fer fram í Hörpu
þriðjudaginn 30. apríl kl. 19.
Dagana 4.-19. maí verður
útskriftar sýningin OMEN haldin
en þar sýna nemar á meistarastigi
í fatahönnun verk sín. Sýningin
verður haldin í Ásmundarsal við
Freyjugötu og er opnun hennar
kl. 20.
Frítt er inn á alla viðburði
og eru allir gestir velkomnir á
meðan húsrúm leyfir. Stór hluti
annarra viðburða fer fram í
menningarhúsunum í Kópa-
vogi, t.a.m. útskriftarviðburður
meistaranema í listkennslu og
hluti tónleika útskriftarnema úr
tónlistardeild. Aðrir viðburðir
fara fram víðsvegar um Reykja-
vík.
Útskriftarhátíð Listaháskólans
Katrín, hertogaynja af Cambridge, er
alltaf glæsileg og virðulega klædd.
Katrín, hertogaynja af Cam-bridge, vekur ávallt athygli hvar sem hún kemur. Allt
sem hún klæðist vekur sömu-
leiðis athygli. Þegar hún mætti
í páskamessu á 93 ára afmæli
drottningarinnar í kapellu heilags
Georgs í Windsor-kastala var eftir
því tekið að Katrín var með sömu
demantseyrnalokka og hún bar
á brúðkaupsdaginn sinn 29. apríl
2011. Það styttist í átta ára brúð-
kaupsafmælið sem kallast brons.
Bretar eru ánægðir með að hún
skuli nota hlutina sína oftar en
einu sinni.
Katrín var í ljósbláum kjól
og kápu úr smiðju Alexander
McQueen en hatturinn er frá
Jane Taylor. Venjulega kemur öll
konungsfjölskyldan í páskamessu
en að þessu sinni var Meghan fjar-
verandi enda á hún von á barni
á hverri stundu. Karl og Camilla
voru sömuleiðis fjarverandi sem
og Filippus prins sem er orðinn
97 ára.
Vekur alltaf
athygli
FRÍTT Í SUND
OG FJÖLSKYLDUGARÐINN!
HOPPUKASTALAR OG ALLSKONAR
SKEMMTILEGT SKÁTAFJÖR
VIÐ LAUGARNAR OG
Í FJÖLSKYLDUGARÐINUM
Á SUMARDAGINN
FYRSTA
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ÍTR.IS
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
2
5
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
D
B
-4
A
C
4
2
2
D
B
-4
9
8
8
2
2
D
B
-4
8
4
C
2
2
D
B
-4
7
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K