Fréttablaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 38
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Eygló, sem er 46 ára, stefnir á að klára sveinsprófið fyrir fimmtugt. Það er reyndar
nóg að gera hjá henni um þessar
mundir. Hún og eiginmaður
hennar, Sigurður E. Vilhelmsson,
standa í húsbyggingu í Mosfellsbæ
auk þess sem hún stýrir undirbún-
ingi og framkvæmdum fyrir nýtt
fjölbýlishús Kvenna athvarfsins.
„Ég byrjaði á samningi hjá Hótel
Sögu í janúar og finnst það alveg
dásamlegt. Þar er góður andi,
skemmtilegir vinnufélagar og
svo fæ ég að vinna með mat allan
daginn,“ segir hún. Eygló vill ekki
meina að gamall draumur sé að
rætast með kokkastarfinu en
hún hafi engu að síður alltaf haft
ástríðu fyrir matargerð.
„Þegar ég tók ákvörðun um
að hætta í pólitík þurfti ég að
velta fyrir mér hvað mig lang-
aði að verða þegar ég yrði stór.
Matargerðin var það sem ég hafði
mestan áhuga á og hefur fylgt mér
alla ævi en ég velti líka fyrir mér
smíði,“ segir hún. Eygló er með
stúdentspróf frá FB og fil. kand.-
próf í listasögu frá Stokkhólms-
háskóla. Þá nam hún viðskipta-
fræði við Háskóla Íslands.
Kokkanámið tekur fjögur ár og
er bæði starfsnám og þrjár annir í
Menntaskólanum í Kópavogi.
Þegar Eygló er spurð hvort
eitthvað hafi komið henni á
óvart í nýja starfinu, svarar hún
því játandi. „Ég er núna í veislu-
þjónustunni og það hefur komið
mér á óvart hversu mikið magn af
mat við erum oft að undirbúa. Það
er talsverður munur að elda fyrir
fjölskylduna sína eða 250 manns.
Einnig hópvinnan, verkaskipting-
in og hversu gríðarlega mikilvæg
skipulagning er hjá matreiðslu-
mönnum,“ útskýrir Eygló. Hún
segist ekkert hafa fundið fyrir því
að hún sé elsti neminn. „Þarna
starfar alveg ótrúlega líf legur og
fjölbreyttur hópur saman. Fólk
alls staðar að úr heiminum og
með mismunandi bakgrunn. Það
er mikilvægt að prófa nýja hluti
í eldhúsinu og ef það mistekst þá
reynir maður aftur. Okkur mis-
tekst alltaf eitthvað í matseldinni
sem og lífinu. Aðalatriðið er að
læra af mistökum,“ segir hún. „Ég
er mjög þakklát fyrir að fá tæki-
færi til að starfa við það sem mér
finnst skemmtilegt,“ segir Eygló
sem gefur lesendum einfaldar og
góðar grilluppskriftir.
Sumarlegt kartöflusalat
500 g rauðar kartöflur, soðnar,
skornar í grófa bita
1 sítróna
2-3 stilkar ferskt timjan
1 lítið búnt ferskt dill, saxað fínt
1-2 msk. smjör
1-2 msk. ólífuolía
2-3 handfyllir af klettasalati
Salt og pipar
Skolið kartöf lurnar, skerið í
hæfilega stóra bita og setjið í pott
með vatni. Skrælið börkinn af
sítrónunni út í pottinn og skutlið
timjanstilkunum úti í. Sjóðið þar
til kartöf lurnar eru mjúkar þegar
hnífi er stungið í þær, um það bil
10 mínútur.
Hellið vatninu af kartöf lunum
þegar þær eru orðnar soðnar og
setjið til hliðar á meðan dillið er
saxað.
Setjið kartöf lurnar í skál ásamt
dillinu, smjörinu og ólífuolíunni
og blandið saman. Saltið og
piprið.
Blandið saman 2-3 handfyllum
af klettasalati við rauðu kartöf l-
urnar rétt áður en kartöf lusalatið
er borið fram og kreistið safann úr
hálfri sítrónu yfir.
Grillaðir hamborgarar
með papriku- og
cheddar-ostablöndu
230 g majónes
230 g rauð paprika, fínt söxuð
400 g cheddar-ostur, rifinn gróft
Salt og pipar
600 g nautahakk
Olía
4 hamborgarabrauð, skorin í
tvennt og ristuð
8 sneiðar beikon, eldaðar stökkar
4 sneiðar laukur, grillaðar
4 sneiðar stór tómatur
1 stór súr gúrka, skorin þunnt
Best að skera fyrst niður græn-
metið og rífa ostinn. Skerið
brauðin ef þarf og setjið á ofn-
plötu. Setjið beikonið á bökunar-
pappír og á ofngrind.
Majónesið er saltað og piprað
að smekk í skál. Paprikan og
osturinn eru sett saman við
majón esið. Blandið varlega
saman. Setjið yfir skálina og
kælið í allavega 30 mínútur fyrir
notkun.
Undirbúið grillið. Bakið beik-
onið í ofni. Takið úr ofninum
þegar það er orðið stökkt og setjið
á pappír til að ná mestri fitunni af.
Munið að rista brauðin, í ofni eða
á grillinu ef það er pláss.
Saltið og piprið hakkið.
Deilið því upp í fjóra jafn stóra
skammta. Mótið hvern skammt
í borgara með dæld í miðjunni
fyrir ostablönduna. Berið olíu á
báðar hliðar borgaranna. Grillið
borgara á báðum hliðum þar til
þeir eru orðnir gullinbrúnir, jafn-
vel brúnaðir og eldaðir í samræmi
við óskir hvers og eins. Síðustu
mínútuna af eldunartíma er osta-
blandan sett ofan á hvern borgara
og grilllokið sett yfir, í um það
bil 1 mín. Ekki gleyma að grilla
laukinn létt.
Hamborgararnir fara á brauðin
og þar ofan á er sett beikon, lauk-
sneið, tómatsneið og súr gúrka.
Gerði áhugamálið að starfi sínu
Eygló Harðardóttir, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, söðlaði heldur betur um í janúar og hóf
matreiðslunám á Hótel Sögu undir handleiðslu Ólafs Helga Kristjánssonar yfirmatreiðslumanns.
Girnilegur hamborgari er alltaf vinsæll á útigrillið. Eygló gefur uppskrift að
hamborgara og heitu kartöflusalati sem hún segir að sé mjög sumarlegt.
Eygló Harðardóttir var á kafi í byggingarvinnu um páskana þegar myndin var tekin. Hún hefur ekki bara áhuga á
matargerð heldur einnig smíðum. Hún stundar nú nám í matreiðslu á Hótel Sögu og finnst gaman. MYND/ERNIR
HALLVEIGARSTÍG 1 FAXAFENI 14 SMIÐJUVEGI 2
GLEÐILEGT GIRNILEGT GRILLSUMAR
OPIÐ 10:00 TIL 22:00 ALLA DAGA
Austin and Barbeque - Gæða grill m ð fjölda ei inleika
4+1 BRENNARA
GASGRILL
45.999
FERÐA
GASGRILL
10.999
3 BRENNARA
GASGRILL
31.999
6+1 BRENNARA
GASGRILL
59.999
GRILLIN FÁST Í VERSLUNUM SUPER1 Í FAXAFENI OG SMIÐJUVEGI. GRILLIN SELJAST ÓSAMSETT Í KASSA.
MJÖG GOTT - MJÖG GOTT - MJÖG GOTT VERÐ - OPIÐ TIL 22:00 ALLA DAGA
6 KYNNINGARBLAÐ 2 5 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RSUMARGRILL
2
5
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
D
B
-2
8
3
4
2
2
D
B
-2
6
F
8
2
2
D
B
-2
5
B
C
2
2
D
B
-2
4
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K