Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.04.2019, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 25.04.2019, Qupperneq 38
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Eygló, sem er 46 ára, stefnir á að klára sveinsprófið fyrir fimmtugt. Það er reyndar nóg að gera hjá henni um þessar mundir. Hún og eiginmaður hennar, Sigurður E. Vilhelmsson, standa í húsbyggingu í Mosfellsbæ auk þess sem hún stýrir undirbún- ingi og framkvæmdum fyrir nýtt fjölbýlishús Kvenna athvarfsins. „Ég byrjaði á samningi hjá Hótel Sögu í janúar og finnst það alveg dásamlegt. Þar er góður andi, skemmtilegir vinnufélagar og svo fæ ég að vinna með mat allan daginn,“ segir hún. Eygló vill ekki meina að gamall draumur sé að rætast með kokkastarfinu en hún hafi engu að síður alltaf haft ástríðu fyrir matargerð. „Þegar ég tók ákvörðun um að hætta í pólitík þurfti ég að velta fyrir mér hvað mig lang- aði að verða þegar ég yrði stór. Matargerðin var það sem ég hafði mestan áhuga á og hefur fylgt mér alla ævi en ég velti líka fyrir mér smíði,“ segir hún. Eygló er með stúdentspróf frá FB og fil. kand.- próf í listasögu frá Stokkhólms- háskóla. Þá nam hún viðskipta- fræði við Háskóla Íslands. Kokkanámið tekur fjögur ár og er bæði starfsnám og þrjár annir í Menntaskólanum í Kópavogi. Þegar Eygló er spurð hvort eitthvað hafi komið henni á óvart í nýja starfinu, svarar hún því játandi. „Ég er núna í veislu- þjónustunni og það hefur komið mér á óvart hversu mikið magn af mat við erum oft að undirbúa. Það er talsverður munur að elda fyrir fjölskylduna sína eða 250 manns. Einnig hópvinnan, verkaskipting- in og hversu gríðarlega mikilvæg skipulagning er hjá matreiðslu- mönnum,“ útskýrir Eygló. Hún segist ekkert hafa fundið fyrir því að hún sé elsti neminn. „Þarna starfar alveg ótrúlega líf legur og fjölbreyttur hópur saman. Fólk alls staðar að úr heiminum og með mismunandi bakgrunn. Það er mikilvægt að prófa nýja hluti í eldhúsinu og ef það mistekst þá reynir maður aftur. Okkur mis- tekst alltaf eitthvað í matseldinni sem og lífinu. Aðalatriðið er að læra af mistökum,“ segir hún. „Ég er mjög þakklát fyrir að fá tæki- færi til að starfa við það sem mér finnst skemmtilegt,“ segir Eygló sem gefur lesendum einfaldar og góðar grilluppskriftir. Sumarlegt kartöflusalat 500 g rauðar kartöflur, soðnar, skornar í grófa bita 1 sítróna 2-3 stilkar ferskt timjan 1 lítið búnt ferskt dill, saxað fínt 1-2 msk. smjör 1-2 msk. ólífuolía 2-3 handfyllir af klettasalati Salt og pipar Skolið kartöf lurnar, skerið í hæfilega stóra bita og setjið í pott með vatni. Skrælið börkinn af sítrónunni út í pottinn og skutlið timjanstilkunum úti í. Sjóðið þar til kartöf lurnar eru mjúkar þegar hnífi er stungið í þær, um það bil 10 mínútur. Hellið vatninu af kartöf lunum þegar þær eru orðnar soðnar og setjið til hliðar á meðan dillið er saxað. Setjið kartöf lurnar í skál ásamt dillinu, smjörinu og ólífuolíunni og blandið saman. Saltið og piprið. Blandið saman 2-3 handfyllum af klettasalati við rauðu kartöf l- urnar rétt áður en kartöf lusalatið er borið fram og kreistið safann úr hálfri sítrónu yfir. Grillaðir hamborgarar með papriku- og cheddar-ostablöndu 230 g majónes 230 g rauð paprika, fínt söxuð 400 g cheddar-ostur, rifinn gróft Salt og pipar 600 g nautahakk Olía 4 hamborgarabrauð, skorin í tvennt og ristuð 8 sneiðar beikon, eldaðar stökkar 4 sneiðar laukur, grillaðar 4 sneiðar stór tómatur 1 stór súr gúrka, skorin þunnt Best að skera fyrst niður græn- metið og rífa ostinn. Skerið brauðin ef þarf og setjið á ofn- plötu. Setjið beikonið á bökunar- pappír og á ofngrind. Majónesið er saltað og piprað að smekk í skál. Paprikan og osturinn eru sett saman við majón esið. Blandið varlega saman. Setjið yfir skálina og kælið í allavega 30 mínútur fyrir notkun. Undirbúið grillið. Bakið beik- onið í ofni. Takið úr ofninum þegar það er orðið stökkt og setjið á pappír til að ná mestri fitunni af. Munið að rista brauðin, í ofni eða á grillinu ef það er pláss. Saltið og piprið hakkið. Deilið því upp í fjóra jafn stóra skammta. Mótið hvern skammt í borgara með dæld í miðjunni fyrir ostablönduna. Berið olíu á báðar hliðar borgaranna. Grillið borgara á báðum hliðum þar til þeir eru orðnir gullinbrúnir, jafn- vel brúnaðir og eldaðir í samræmi við óskir hvers og eins. Síðustu mínútuna af eldunartíma er osta- blandan sett ofan á hvern borgara og grilllokið sett yfir, í um það bil 1 mín. Ekki gleyma að grilla laukinn létt. Hamborgararnir fara á brauðin og þar ofan á er sett beikon, lauk- sneið, tómatsneið og súr gúrka. Gerði áhugamálið að starfi sínu Eygló Harðardóttir, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, söðlaði heldur betur um í janúar og hóf matreiðslunám á Hótel Sögu undir handleiðslu Ólafs Helga Kristjánssonar yfirmatreiðslumanns. Girnilegur hamborgari er alltaf vinsæll á útigrillið. Eygló gefur uppskrift að hamborgara og heitu kartöflusalati sem hún segir að sé mjög sumarlegt. Eygló Harðardóttir var á kafi í byggingarvinnu um páskana þegar myndin var tekin. Hún hefur ekki bara áhuga á matargerð heldur einnig smíðum. Hún stundar nú nám í matreiðslu á Hótel Sögu og finnst gaman. MYND/ERNIR HALLVEIGARSTÍG 1 FAXAFENI 14 SMIÐJUVEGI 2 GLEÐILEGT GIRNILEGT GRILLSUMAR OPIÐ 10:00 TIL 22:00 ALLA DAGA Austin and Barbeque - Gæða grill m ð fjölda ei inleika 4+1 BRENNARA GASGRILL 45.999 FERÐA GASGRILL 10.999 3 BRENNARA GASGRILL 31.999 6+1 BRENNARA GASGRILL 59.999 GRILLIN FÁST Í VERSLUNUM SUPER1 Í FAXAFENI OG SMIÐJUVEGI. GRILLIN SELJAST ÓSAMSETT Í KASSA. MJÖG GOTT - MJÖG GOTT - MJÖG GOTT VERÐ - OPIÐ TIL 22:00 ALLA DAGA 6 KYNNINGARBLAÐ 2 5 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RSUMARGRILL 2 5 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 D B -2 8 3 4 2 2 D B -2 6 F 8 2 2 D B -2 5 B C 2 2 D B -2 4 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.