Fréttablaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 28
búningum í óperuuppfærslum þá þarf hún að eiga mikið af glæsi- kjólum til að mæta á hinar ýmsu uppákomur og koma fram á tón- leikum. „Ég hef fundið alls konar indverskar brúðarkjólaverslanir í New York. Þær bjóða hádrama- tíska, pallíettuskreytta glæsilega síðkjóla. Þetta eru litríkir kjólar sem henta mjög vel á sviði. Það er partur af „showinu“ að vera svo- lítið skrautlegur. Ég á orðið allt of marga kjóla sem fylla alla skápa. Þetta er að verða vandamál þar sem þeir taka mikið pláss. Ætli ég þurfi ekki að selja eitthvað af þessu til að grisja,“ segir hún. „Ég reyni að eiga sem flesta liti af kjólum sem henta við hin ýmsu tæki- færi. Sumir eru aðsniðnir en aðrir með prinsessupilsi. Þegar ég söng á jólatónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands árið 2015 leitaði ég að alveg sérstökum kjól þar sem Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 Gleðilegt sumar Síðbuxur, kvartbuxur, stuttbuxur og leggings Fólk er kynningarblað sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Benedikt Bóas Hinriksson, benediktboas@frettabladid.is s. 550 5725 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Dísella segist fyrst hafa sungið við Metropolitan-óperuna í New York árið 2008 og síðan árlega frá árinu 2011. Hún var fast- ráðin í eitt ár við óperuhúsið frá 2013-2014. Það er mikill sigur fyrir söngvara að fá hlutverk í þessu glæsilega húsi þar sem margir helstu óperusöngvarar sögunnar hafa sungið. Það vakti til dæmis mikla athygli hér á landi árið 1993 þegar Kristján Jóhannsson söng þar. Fyrsti Íslendingurinn sem söng í Metropolitan var María Markan en þá var það talið hámark frægðar söngvara. „Ég er ákaflega stolt að hafa fengið þetta tækifæri,“ segir Dísella. „Stjórn- endur eru fljótir að skipta út lista- mönnum ef þeir eru ekki ánægðir með þá og þess vegna er þetta mikill heiður fyrir mig,“ segir hún. Skype-mamma Dísella segir að það hafi ekki hentað sér að búa og starfa í New York. Hún er með tvo unga drengi og vill að þeir alist upp á Íslandi og læri móðurmálið. „Skólar í New York eru mjög dýrir og það hentar mér betur að fara út með reglulegu millibili og dvelja hér heima þess á milli,“ segir hún en synir hennar, Jökull Orri og Bjartur Lárus, eru 4 og 9 ára. „Þetta er púsl en gengur ágætlega. Ég var núna í burtu í sex vikur en maðurinn minn, Bragi Jónsson, kom með strákana og var með mér síðustu vikuna,“ segir Dís- ella en maður hennar er rekstrar- stjóri leigumarkaðar BYKO. „Í haust dvaldi ég í tvo mánuði og mun gera aftur næsta haust. Einnig fer ég í sumar en þá get ég tekið þá með mér,“ útskýrir hún. „Skype er helsti vinur minn á ferð- unum því ég er í stöðugu sambandi við fjölskylduna í gegnum tölvuna, get hjálpað við heimalærdóminn og lesið í svefn og svona þegar ég er að heiman. Það er þó ekki nóg að vera Skype-mamma þannig að við eigum okkar gæðastundir þegar ég er heima og get verið alveg til staðar. Ég vona að ég geti verið meira heima á næsta ári,“ bætir hún við. Dísella hefur ekki sungið mikið hér heima undanfarið en vonast til að það geti orðið breyting á því. „Ég er að undirbúa útgáfu geisladisks með klassískri tónlist og tveimur dægurlögum sem er mjög skemmtilegt. Hann er fyrir íslenskan markað,“ segir hún. Í júní syngur Dísella í nýrri óperu, Proserpine eftir Silviu Colasanti, á Spoleto Festival dei Due Mondi á Ítalíu og hlakkar mikið til þess. Glæsilegir indverskir kjólar Þótt Dísella klæðist ákveðnum Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Dísella er með annan fótinn í New York og oft lengi að heim- an. Hún segist vera í stöðugu sambandi við fjölskyldu sína í gegnum Skype þann tíma. MYND/ERNIR Dísella er óhrædd við liti og hún á kjóla í öllum regnbogans litum. Sumir kjólarnir eru fyrirferðar- miklir og það setur skápapláss í uppnám á heimilinu. Allir skápar fullir af síðkjólum, segir söngkonan. Hvítur og elegant síðkjóll sem fer Dísellu einstaklega vel á sviðinu. Skype er helsti vinur minn því ég er í stöðugu sambandi við fjölskylduna í gegn- um tölvuna, get hjálpað við heimalærdóminn og lesið í svefn þegar ég er að heiman. ég átti að flytja lag úr Frozen. Ég varð að finna bláan prinsessu- kjól fyrir litlu aðdáendur þeirrar teiknimyndar í salnum,“ segir Dísella og hlær. „Þegar ég er utan sviðsljóssins vel ég frekar galla- buxur og þægilegan fatnað. Það er mjög erfitt fyrir bakið að vinna á hallandi sviði, eins og þau eru oft, og þess vegna geng ég orðið alltaf í strigaskóm til að verja það dags- daglega.“ Dísella segist vera dugleg að hreyfa sig og göngutúrar séu í mestu uppáhaldi. „Mér finnst gott að fara út og labba í ferska loftinu. Svo er ég að reyna að lyfta meira til að styrkja mig. Þar sem ég er alltaf á ferðalögum get ég þó ekki fest mig í einni líkamsræktarstöð. Í þessu starfi er engu að síður nauð- synlegt að hreyfa sig reglulega. Maður þarf að geta notað allan líkamann í söngtúlkuninni.“ Frábær ferill Dísella útskrifaðist úr Söng- skólanum í Reykjavík árið 2002 og fór þaðan í meistaranám við Westminster Choir College, Rider University í Princeton í Banda- ríkjunum. Þaðan útskrifaðist hún í maí 2005. Stuttu síðar bar hún sigur úr býtum í Astral Artistic Services 2006 National Auditions, komst í undanúrslit í Lauren S. Zachary National Vocal Competit- ion, og í undanúrslit í söngkeppni Plácido Domingo, Operalia 2006. Árið 2007 bar hún sigur úr býtum í Greenfield-keppni Fíladelfíu- hljómsveitarinnar. Síðan hefur verið nóg að gera hjá söngkonunni. Hún hefur lítið sungið í Evrópu en því meira í Bandaríkjunum og mest hjá Metropolitan-óperunni í New York. Fyrir tveimur árum söng hún titilhlutverkið í óper- unni Lulu eftir Alban Berg í Róm. „Núna er draumur minn að syngja meira hér heima. Því miður eru tækifærin ekki mörg í íslenska óperuheiminum en það er ágætt að minna á sig með plötu,“ segir söngkonan en eins og flestir vita er mikil tónlist í ætt hennar. Móðir hennar, Sigríður Þorvaldsdóttir leikkona, söng í revíum á fjölum leikhússins og faðir hennar, Lárus heitinn Sveinsson, var trompet- leikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Þá hafa systur hennar tvær, Þórunn og Ingibjörg, báðar verið öflugar söngkonur. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 2 5 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 D B -6 3 7 4 2 2 D B -6 2 3 8 2 2 D B -6 0 F C 2 2 D B -5 F C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.