Fréttablaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 22
Nýjast
Það var mögnuð
stund að vera í
KA-heimilinu bæði á mánu-
dag og þriðjudag og ég fékk
bara gæsahúð að sjá troð-
fulla höll af glöðu KA-fólki
að hampa titlunum.
Arnar M. Sigurðsson,
formaður blakdeildar KA
Spá Fréttablaðsins fyrir Pepsi Max-deild karla 2019
PEPSI MAX
DEILDIN
2019
1. ?
2. ?
3. KR
4. Breiðablik
5. Stjarnan
6. ÍA
7. KA
8. Fylkir
9. Víkingur
10. ÍBV
11. Grindavík
12. HK
Fréttablaðið spáir því að KR geri
einu betur en í fyrra og nái þriðja
sæti. Undirbúningstímabilið gekk
eins og í sögu þar sem KR vann öll
þrjú mótin og tapaði ekki leik.
KR mun fá mörk frá miðjumönn-
um sínum en til að gera atlögu að
titlum þurfa Tobias og Ægir Jarl að
reima á sig markaskóna og gera
útslagið fyrir Vesturbæinga.
KR
hafnar í 3. sæti
Nýju andlitin
Fylgstu með þessum
Finnur Tómas Pálmason hefur
verið öflugur á undirbúningstíma-
bilinu. Hann lék tólf leiki með
Þrótti á síðasta tímabili og fær
eflaust einhver tækifæri í sumar.
Alex Freyr Hilmarsson frá Víkingi.
Arnþór Ingi Kristinsson frá Víkingi
Tobias Thomsen frá Val
Ægir Jarl Jónasson frá Fjölni
Tölfræði sem
skiptir máli
Mikil stígandi hefur verið í leik KR eftir að Rúnar
Kristinsson tók við stjórnartaumunum á nýjan leik og
gengi liðsins í vetur hefur verið gott.
Fólki verður tíðrætt um háan aldur liðsins en ég tel
það síður en svo ókost að hafa reynslumikla leik-
menn ef blandan er góð í leikmannahópnum.
Hópurinn var helst til þunnur í fyrra en KR-ingar
gerðu skynsamlega hluti á leikmannamarkaðnum
í vetur og bólstruðu þau svæði á vellinum þar sem
þess þurfti. KR gæti hæglega endað ofar í töflunni.
Álitsgjafinn segir
Kristján Guðmundsson
18 KR er án taps í síð-
ustu 18 leikjum
gegn íslenskum
andstæðingum.
26 KR er sigursæl-
asta lið Íslands-
mótsins með 26
titla.
GENGIÐ SÍÐUSTU SEX TÍMABIL 2018 4. SÆTI ❘ 2017 4. SÆTI ❘ 2016 3. SÆTI ❘ 2015 3. SÆTI ❘ 2014 3. SÆTI ❘ 2013 1. SÆTI
Haukar - Stjarnan 30-23
Haukar: Orri Freyr Þorkelsson 6, Adam
Haukur Baumruk 5, Daníel Þór Ingason
4, Tjörvi Þorgeirsson 3, Brynjólfur Snær
Brynjólfsson 3, Ásgeir Örn Hallgrímsson 3,
Halldór ingi Jónasson 2, Heimir Óli Heimis-
son 1, Atli Már Báruson 1, Jón Þorbjörn
Jóhannsson 1.
Stjarnan: Aron Dagur Pálsson 7, Andri
Hjartar Grétarsson 6, Andri Már Rúnarsson
3, Árni Þór Sigtrygsson 2, Hjálmtýr Alfreðs-
son 2, Ari Magnús Þorgeirsson 1, Leó Snær
Pétursson 1, Birgir Steinn Jónsson 1.
Haukar vinna einvígið 2-1 og fara áfram í
undanúrslitin..
Olís-deild karla
Átta liða úrslit
Wolves - Arsenal 3-1
1-0 Reuben Neves (28.), 2-0 Matt Doherty
(37.), 3-0 Diego Jota (45+2), 3-1 Sokratis
(80.).
Man. United - Man. City 0-2
1-0 Bernando Silva (54.), 2-0 Leroy Sane
(66.).
Enska úrvalsdeildin
Keflavík - Valur 96-100
Keflavík: Brittanny Dinkins 39, Sara Rún
Hinriksdóttir 23, Birna Valgerður Benón-
ýsdóttir 12, Erna Hákonardóttir 8, Þóranna
Kika Hodge-Carr 8, Bryndís Guðmunds-
dóttir 4, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 2 .
Valur: Helena Sverrisdóttir 35/10 fráköst,
Heather Butler 27, Guðbjörg Sverrisdóttir
12, Hallveig Jónsdóttir 11, Bergþóra Holton
Tómasdóttir 6, Simona Podesvova 6/15 frá-
köst, Dagbjört Samúelsdóttir 3.
Valur leiðir einvígi liðanna 2-0 en hafa þarf
betur í þremur leikum til þess að tryggja sér
Íslandsmeistaratitilinn.
Domino’s-deild kvenna
Úrslit
BLAK KA náði í vikunni þeim sögu-
lega áfanga að verða sexfaldur
meistari í blaki, það er verða deild-
ar, bikar- og Íslandsmeistari bæði í
karla- og kvennaflokki. Bæði liðin
léku til úrslita gegn HK en kvenna-
liðið reið á vaðið og varð Íslands-
meistari á mánudagskvöldið og
karlaliðið fullkomnaði dæmið
eftir spennuþrunginn leik á þriðju-
dagskvöldið. Bæði einvígin réðust í
hreinum úrslitaleik sem báðir fóru
fram í KA-heimilinu.
Karlaliðið var að verja titil sinn
á meðan kvennaliðið var að vinna
sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil
í sögunni en KA hafði einu sinni
orðið deildarmeistari í kvenna-
f lokki. KA tryggði sér hins vegar
Íslandsmeistaratitilinn í sjötta
skipti í sögu félagsins karlamegin.
Aldrei áður hefur félag verið hand-
hafi allra sex titlanna í blaki á
Íslandi á sama tíma og afrekið því
einstakt hjá norðanmönnum.
Fréttablaðið fékk Arnar M. Sig-
urðsson, formann blakdeildar KA,
til þess að útskýra ótrúlegan árang-
ur blakdeildarinnar á nýloknu
keppnis tímabili og þá tilfinningu
sem bærðist í brjósti hans þegar
alslemman var í höfn.
„Við tókum þá ákvörðun í stjórn-
inni síðasta haust að við ætluðum
að gefa í, þá sérstaklega kvenna-
megin. Við vorum á leið í titilvörn
karlamegin og vildum að sjálfsögðu
viðhalda árangrinum og stefnt var
á að vinna alla titla sem í boði voru
þar þrátt fyrir að við gerðum okkur
grein fyrir því að það yrði erfitt. Það
er erfiðara að verja titil en að vinna
hann eins og margoft hefur sýnt sig
en okkur tókst það sem betur fer,“
segir Arnar um þessa ríkulegu upp-
skeru.
„Það var hins vegar ákveðið
sömuleiðis að bæta umgjörðina
verulega hjá kvennaliðinu og
spýta í lófana á þeim vettvangi. Við
bjuggumst hins vegar ekki við því
að vinna alla titlana kvennamegin
þrátt fyrir að við værum meðvituð
um að við værum búin að smíða
sterkt lið þar. Þar snerist það um
að brjóta blað í sögunni og skapa
hefð sem er ekki síður áskorun. Við
réðum spænskan þjálfara, Miguel
Mateo Castrillo, sem var óreyndur
á þjálfarasviðinu. Við höfðum hins
vegar fulla trú á honum og hann
endurgalt traustið svo sannarlega,“
segir hann um uppganginn hjá
kvennaliðinu.
„Liðið er samansett af íslenskum
stelpum sem sækja í það að koma
hingað út af háskólanum hérna og
þeim líður vel hérna. Við erum með
sterkan kjarna af góðum íslenskum
leikmönnum sem hafa sest hér að
og svo er eiginkona þjálfarans öfl-
ugur spilari auk þess sem við erum
með leikmann frá Venesúela,“ segir
Arnar um samsetningu kvenna-
liðsins.
„Karlamegin hefur Filip Szew-
czyk verið að vinna gríðarlega gott
starf og hann hefur sett saman öfl-
ugt lið með heimamönnum í bland
við erlenda leikmenn. Þar erum við
til að mynda með sterka Banda-
ríkjamenn sem líta á Ísland sem
stökkpall út í deildirnar í Evrópu.
Svo er Ísland bara vinsælt land fyrir
erlent fólk til þess að búa í og við
erum að njóta góðs af því bæði hjá
karla- og kvennaliðinu. Árangurinn
hefur svo vakið eftirtekt erlendis
og leikmenn liðanna eru að kanna
þann möguleika að reyna fyrir sér
í Evrópu á næstu leiktíð,“ segir for-
maðurinn stoltur.
„Það var mögnuð stund að vera
í KA-heimilinu bæði á mánudag
og þriðjudag og ég fékk bara gæsa-
húð að sjá troðfulla höll af glöðu
KA-fólki hampa titlunum. Það er
nú ekki oft sem ég klökkna en ég
viðurkenni að það gerðist á þessum
augnablikum. Við erum fámennur
en duglegur kjarni sem stendur að
blakdeildinni en þegar leikir eru
mætir KA-fjölskyldan á svæðið.
Mér finnst félagið og félagsmenn
hafa staðið sig mjög vel í því að
fylkja sér að baki liðunum sama
í hvaða deild það er. Við höfum
fengið góðan stuðning úr stúkunni,
það hefur gefið okkur auka kraft og
við metum það mikils,“ segir Arnar
hrærður. hjorvaro@frettabladid.is
Klökknaði á sigurstundu
KA er handhafi allra sex titlanna í blaki eftir að karla- og kvennaliðin unnu oddaleiki um Íslandsmeist-
aratitilinn í vikunni. Karlaliðið varði titilinn í ár en í fyrsta sinn tókst kvennaliði KA að landa titlinum.
Sigurliðin tvö, kvennalið KA og karlalið KA, eftir að karlaliðið hafði tryggt sér þriðja og síðasta titil tímabilsins á heimavelli fyrr í vikunni. MYND/KA
HANDBOLTI Ríkjandi deildarmeist-
arar Hauka mæta ríkjandi Íslands-
meisturum ÍBV í undanúrslitum
Olís-deildar karla. Þetta varð ljóst
eftir sigur Hauka á Stjörnunni í
oddaleik í Hafnarfirði í gær. Þetta
verður annað árið í röð sem Haukar
og ÍBV mætast í undanúrslitunum
eftir að Eyjamenn sendu Haukana í
sumarfrí á síðasta ári á vegferð sinni
að Íslandsmeistaratitlinum.
Í seinna einvíginu mætast Selfoss
og Valur þar sem Selfyssingar eru
með heimaleikjaréttinn. – kpt
Haukar mæta
Eyjamönnum
2 5 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
2
5
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
D
B
-2
8
3
4
2
2
D
B
-2
6
F
8
2
2
D
B
-2
5
B
C
2
2
D
B
-2
4
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K