Morgunblaðið - 10.01.2019, Síða 14
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
M
örgum að óvörum
nýtur hún hylli að
nýju aftur eftir
nokkurra áratuga
hlé. Þeim yngri þyk-
ir hún svöl, þeir sem eldri eru fyllast
fortíðarþrá. Sú sem er svona vinsæl
er kassettan sem sumir vilja kalla
snældu, en í Bandaríkjunum jókst
sala á kassettum
með átekinni tón-
list um tæp 19% á
síðasta ári.
„Það er
vegna þess að
þetta þykir svo
svalt,“ segir dr.
Arnar Eggert
Thoroddsen, að-
junkt í félags- og
fjölmiðlafræði við
Háskóla Íslands og sérfræðingur
um tónlist. „Hipsterarnir eru búnir
að koma kassettunni aftur á kortið.
Þetta hefði manni ekki dottið í hug
að myndi gerast í vestrænum tón-
listarheimi.“
Og hún er svo sannarlega kom-
in aftur á kortið, kassettan. Á vef-
síðu Grammy-tónlistarverð-
launanna er fjallað um þessa þróun
mála og þar segir að sala á kass-
ettum hafi meira en fjórfaldast und-
anfarin átta ár og að verslanir, sem
þykir flottar og smart, selji nú kass-
ettutæki í bílförmum. Í nýrri skýrslu
Buzz Angle, sem heldur utan um
plöturnar sem fengu aftur sinn sess
eftir nokkurra áratuga tímabil þar
sem fáir tónlistarmenn gáfu tónlist
sína út í því formi. „Kassettan var
nánast gleymt form. Það er ekki
tæknin eða þægindin sem fólk er að
sækjast eftir
til að koma sér á framfæri, það er
meira um að þeir sem eru þekktir og
vinsælir gefi út takmarkaðan fjölda
af kassettum og það verða þá safn-
gripir. Svo er þetta algengt hjá
svartþungarokkssveitum.“
Tekið upp úr útvarpinu
Sjálfur segist Arnar Eggert
ekki hlusta á kassettur og að það sé
m.a. vegna þess að hann eigi ekkert
kassettutæki.
Margir þeirra sem voru ung-
lingar á 9. áratugnum og fyrr muna
eftir því að hafa tekið tónlist úr út-
varpinu upp á kassettur. „Ég veit
ekki til þess að fólk sé mikið að
stunda það, enda margar auðveldari
leiðir til að nálgast tónlist og deila
henni,“ svarar Arnar Eggert spurð-
ur um hvort fortíðarþráin sé farin að
ganga alla leið. „En það verður
kannski næsta skrefið hjá ein-
hverjum.“
Snældan er orðin svöl á ný
Kassettur eru komnar
aftur fram á sjónarsviðið
eftir að hafa nánast
dottið út um skeið. Sala
á snældum með áteknu
efni jókst um tæp 19%
í Bandaríkjunum á síð-
asta ári og sífellt fleiri
tónlistarmenn velja
þennan miðil.
Thinkstock/Getty Images
Arnar Eggert
Thoroddsen
Kassettur og vasadiskó Það jók enn útbreiðslu kassettanna þegar vasadiskóin svokölluðu, sem kölluðust Walkman á ensku, komu á markað.
upplýsingar um tónlistariðnaðinn
vestanhafs, kemur fram að árið 2017
hafi selst rúmlega 99 þúsund átekn-
ar kassettur í Bandaríkjunum og í
fyrra hafi salan verið 118.200 kass-
ettur og nemur aukningin 18,9%.
Arnar Eggert segir að endur-
reisn kassettunnar hafi byrjað fyrir
um fimm árum, nokkrum árum eftir
að áþekk þróun varð með vínil-
þegar það velur kassettu,“ segir
hann. „Sumir vilja hráan hljóm og
margir voru aldrei sáttir við geisla-
diskana; fannst þeir vera of „ster-
ílir“. Áður fyrr miðaði öll þróun í
miðlun tónlistar að því að koma
henni á sem þægilegastan hátt í
eyrun okkar, núna eru aðferðirnar
sem slíkar farnar að fela í sér alls
konar merkingu.“
Þekktir gefa út kassettur
Að sögn Arnars Eggerts
var kassettan áður sú aðferð
sem neðanjarðarbönd og minna
þekktir tónlistarmenn notuðu
gjarnan til að koma tónlist sinni
á framfæri. „Þetta var lang-
ódýrasta formið, þetta var fljót-
unnið tæknilega séð og umslögin
inni í kassettuhylkinu voru oft
ljósrituð til að spara. Í dag þykir
það listrænt og svalt. Núna eru
tónlistarmenn ekki að nota þetta
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
Fyrsta kassettan, snældan, hljóð-
snældan eða spólan – eftir því hvað
fólk vill kalla fyrirbærið – leit dagsins
ljós í tilraunastofum belgíska raf-
tækjaframleiðandans Philips og kom
á almennan markað árið 1962.
Kassettan var upphaflega ætluð
þeim sem þurftu að skrifa upp texta
eftir upplestri, en eftir því sem hljóð-
gæðin á bandinu urðu meiri jókst
notagildið og á árunum 1970 til 2000
var kassettan algengasta formið til
að miðla og hlusta á tónlist, ásamt
vínilplötunni og síðar geisladisknum.
Kassetta samanstendur af tveimur
snældum. Bandið sem geymir tónlist-
ina er segulmagnað og úr plasti og er
undið upp á snældurnar. Margir
þeirra sem voru unglingar fram á 10.
áratug síðustu aldar ættu að muna
eftir að hafa strekkt á bandinu með
því að snúa snældunni með penna
eða blýanti.
Utan um bandið er svo plasthylki
og algeng lengd efnis á hvorri hlið
kassettunnar er 30 eða 45 mínútur.
Kassettutæki er ekki lengur stað-
alútbúnaður en við netleit fundust
slík tæki í nokkrum raftækjaversl-
unum hér á landi.
Kassetta, snælda, hljóðsnælda eða spóla
Var algengasta formið á tónlist
í áratugi ásamt vínilplötunni
Snældan Hún kom á markað árið 1962 og var mikið notuð næstu áratugina.
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
ÚTSALA
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
20-80%
afsláttur af umgjörðum